Laugardagur 8. desember 2018 kl. 12:57

Skreyttu Bryggjuhúsið fyrir gamaldags jólaball

Á fyrsta sunnudegi í aðventu var fjölskyldum boðið að stíga út úr amstri hversdagsins og njóta þess að koma saman í Bryggjuhúsi Duus Safnahúsa þar sem búin voru til kramarhús, jólahjörtu og músastigar og salurinn skreyttur.

Fyrir um 100 árum síðan stóð Duusverslunin fyrir jólatrésskemmtunum fyrir bæjarbúa í Bryggjuhúsi sem er elsta húsið í Duushúsalengjunni. Allt upp undir 300 börn komu þar saman og dönsuðu í kringum jólatréð og voru mörg þeirra að sjá þar jólatré í fyrsta sinn.

Síðastliðin tvö ár hefur þessi saga verið rifjuð upp og haldið gamaldags jólaball í Bryggjuhúsi. Helgina áður hefur verið boðið upp á föndurstund þar sem fjölskyldur útbúa skreytingar á jólatréð og í salinn en einnig til að taka með heim. Hefur þetta verið einstaklega vel heppnuð samverustund og því verður leikurinn endurtekinn í ár. Sunnudaginn 9. desember verður síðan haldið gamaldags jólaball í anda Duusverslunar.