Sunnudagur 23. apríl 2017 kl. 15:08

SjónvarpVF: Mikið líf í Hlíðahverfi (Nikel) fyrir jólin 2018

Fyrsta skóflustungan að nýju íbúðahverfi í Hlíðahverfi í Reykjanesbæ var tekin í síðustu viku. Það kom í hlut Kjartans Más Kjartanssonar, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, að taka skóflustunguna. Hlíðahverfi mun rísa á svæði sem hefur gengið undir nafninu Nikel-svæðið undanfarna áratugi.

Það er BYGG, Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf., sem hefur keypt byggingalandið, um 34 hektara lands þar sem hefur verið skipulögð byggð með allt að 485 íbúðum ásamt atvinnuhúsnæði.
Deiliskipulag fyrir hluta byggingarlandsins er þegar samþykkt og gerir ráð fyrir byggingu á samtals 300 íbúðum. Gatna- og holræsagerð hefur verið unnin að hluta til á svæðinu og hægt er að hefja framkvæmdir á hluta lóðanna nú þegar. Samkvæmt gildandi Aðalskipulagi Reykjanesbæjar er gert ráð fyrir byggingu allt að 185 íbúða til viðbótar.

Í áfanga eitt, sem er Grænalaut 1-31 og Hallalaut 1-15, verða fimm tveggja hæða fjölbýlishús með samtals 48 íbúðum, þetta eru 4 herbergja 100 fm. íbúðir. Tvö raðhús með samtals 7 íbúðum, 130 fm. hús með bílskúr. Átta parhús þá með 16 einingum þar sem stærð hverra eininga er um það bil 170 til 200 fm. og fjórtán einbýlishús sem eru um 210 til 250 fm.
Samtals í þessum fyrsta áfanga eru því 86 íbúðir og áætlar Hörður Már Gylfason, framkvæmdastjóri BYGG, að fyrstu kaupendur flytji inn fyrir skólaárið 2018. Mikið líf verði því komið í hverfið fyrir jólin 2018 og það verður klárað 100% með öllum lóðafrágangi sumarið 2019.
Áfangi tvö í Hlíðahverfi er stærri hluti í fjölbýli eða 170 af 235 í heild. Sumarið 2018 er svo áætlað að fara yfir Skólaveginn og byrja á Efrilaut og Asparlaut.

Áfangi 3 er svo með fleiri stærri fjölbýlishús. Þar er deiliskipulag ekki klárt en vinna er að hefjast við það. Samkvæmt aðalskipulagi Reykjanesbæjar eru áætlað að 185 til 200 íbúðir verði byggðar á því svæði.
Hörður Már segir að samtals verði í hverfinu yfir 500 íbúðir og byggingahraði fari auðvitað eftir söluhraða. Áætlun hljóðar upp á 7 til 10 ára ferli ef allt gengur upp og að fullbúið hverfi með öllu verði afhent eftir áratug.

VF ræddi við Hörð Gylfason, framkvæmdastjóra Bygg og Kjartan Má Kjartansson, bæjarstjóra eftir fyrstu skóflustunguna.