Sjónvarp:Frumkvöðlar á Suðurnesjum í útrás til Indlands
Fulltrúar sprotafyrirtækjanna geoSilica og Mýr design fóru á dögunum til Indlands að kynna vörur sínar og hönnun. Bæði geoSilica og Mýr Design eru til húsa í Frumkvöðlasetrinu Eldey á Ásbrú og kom boð um heimsókn til Indlands í kjölfar heimsóknar Félags kvenna í atvinnulífinu á Indlandi til Íslands fyrr á árinu. Fjörutíu indverskar athafnakonur heimsóttu frumkvöðlasetrið og hrifust af starfsemi sprotafyrirtækjanna.
Sjónvarp Víkurfrétta kíkti í heimsókn í Eldey.