Sjónvarp VF: Grænir unnu starfshlaup FS
- hressandi innslag Sjónvarps Víkurfrétta fylgir fréttinni
Hið árlega Starfshlaup Fjölbrautaskóla Suðurnesja fór fram í 21. sinn í síðustu viku en þessi keppni fór fyrst fram árið 1994. Fyrir þá sem ekki þekkja starfshlaupið þá reyna nemendur með sér í n.k. boðhlaupi þar sem keppt er í flestum þeim námsgreinum sem kenndar eru við skólann auk ýmis konar þrauta. Að þessu sinni kepptu fimm lið í hlaupinu en í hverju liði eru nokkrir tugir keppenda. Fyrir hverju liði fara nokkrir fyrirliðar sem koma úr hópi væntanlegra útskriftarnemenda skólans.
Þó Starfshlaupið fari alltaf fram síðasta kennsludag fyrir páska er það farið að hafa nokkurn aðdraganda. Í ár var nokkrum sinnum keppt á sal í hádeginu síðustu vikurnar fyrir keppnina sjálfa. Þar var m.a. keppt í spurningakeppni, þrautakeppni, bekkpressu og Sing Star. Liðin taka stigin síðan með sér í sjálft Starfshlaupið. Alltaf verða einhverjar breytingar milli ára, einhverjar þrautir og greinar detta út og aðrar koma inn.
Keppnin sjálf byrjaði í Íþróttahúsinu þar sem keppt var í reiptogi, badminton, stultuhlaupi og fleiri greinum. Síðan var synt, hjólað og hlaupið en að því loknu þeystu keppendur inn í skólann þar sem liðin hlupu milli kennslustofa og leystu verkefni auk þess að leysa ýmsar þrautir á göngum. Keppnin endaði síðan á sal þar sem liðin dönsuðu, léku o.fl.
Eins og áður sagði var keppnin mjög jöfn að þessu sinni sem hefur reyndar verið raunin undanfarin ár. Að lokum fór svo að Græna liðið vann en Gula liðið kom þar rétt á eftir og hin liðin voru ekki langt á eftir. Það var því Græna liðið sem hlaut Starfshlaupsbikarinn og pítsuveislu í verðlaun.
Umsjónarmenn Starfshlaupsins eru íþróttakennararnir Kristjana Hildur Gunnarsdóttir og Andrés Þórarinn Eyjólfsson. Við ræddum við Kristjönu eða Kiddý á meðan starfshlaupinu stóð.