Sjónvarp: Fjós varð að einu vinsælasta gistiheimili landsins
- Sjónvarp Víkurfrétta skoðaði Raven's Bed & Breakfast
Fjósið í Koti var byggt 1920 og fær góða dóma á einum vinsælasta ferðavef heims. Í fjósinu er rekið gistiheimili sem líkist mjög safni. Gistiheimilið Raven’s Bed and Breakfast hefur verið rekið í nokkur ár yfir sumartímann en er nú í fyrsta skipti opið yfir vetrarmánuði og það er nóg að gera, segir Hulda Sveinsdóttir gistihúsaeigandi.
Sjónvarp Víkurfrétta heimsótti Raven’s Bed and Breakfast.