Sjónvarp: Eina gróðrarstöðin á Suðurnesjum
- Sjóarinn síkáti og knattspyrnuveisla í þætti vikunnar
Sjónvarp Víkurfrétta er á dagskrá sjónvarpsstöðvarinnar ÍNN í kvöld kl. 21:30. Í þætti vikunnar skoðum við einu gróðrarstöðina á Suðurnesjum sem staðsett er við Stafnesveg í Sandgerði. Þar ræður Gunnhildur Ása Sigurðardóttir ríkjum en hún hefur staðið í ræktun á plöntum í næstum þrjár áratugi.
Við förum einnig til Grindavíkur þar sem Sjóarinn síkáti verður haldinn hátíðlegur í 20. sinn nú um helgina. Í innslaginu í þættinum förum við í götuhlaup og ræðum við hlaupara um hlaupið og hvað þeir ætla að gera á Sjóaranum síkáta.
Síðari hluti þáttarins er undirlagður af fótbolta en Sjónvarp Víkurfrétta myndaði dramatísk augnablik í tveimur leikjum þar sem nágrannar úr Keflavík og Grindavík áttust við. Þá erum við á hliðarlínunni með slökkvliðs- og sjúkraflutningamönnum í Keflavík.
Nýjasta þáttinn má sjá í spilaranum hér að ofan í háskerpu. Munið að stilla spilarann á 1080P.