Föstudagur 10. júní 2016 kl. 14:34

Sjónvarp: 40.000 gestir á Sjóaranum síkáta

– forseti Íslands flutti sjómannadagsræðuna

Gestir Sjóarans síkáta, sem fór fram um síðustu helgi, voru 40.000 talsins, að mati Grindavíkurbæjar. Hátíðin fagnaði 20 ára afmæli og var fjölbreytt dagskrá frá miðvikudegi til sunnudags.

Ólafur Ragnar Grímssonm, forseti Íslands, flutti sjómannadagsræðuna í Grindavík að þessu sinni. Sjónvarp Víkurfrétta ræddi við forsetann að lokinni ræðu. Viðtalið má sjá í meðfylgjandi innslagi í spilaranum hér að ofan.