Fimmtudagur 27. maí 2010 kl. 13:27

Sjómaður hætt kominn í brotsjó við Garðskaga

Sjómaður á trillu var hætt kominn þegar hann fékk á sig brotsjó við Garðskaga skömmu fyrir hádegi. Björgunarsveitir fengu misvísandi upplýsingar, allt frá því að maðurinn ætlaði að reyna að komast af sjálfsdáðum til Sandgerðis og yfir í það að báturinn væri sokkinn og maðurinn í sjónum.

Rúður brotnuðu í stýrishúsi en sjómaðurinn náði að sigla til Sandgerðis. Á leiðinni í land mætti hann tveimur björgunarskipum, sem bæði voru á leið í útkallið, en með þær upplýsingar að maður væri í sjónum útaf Garðskaga.

Báturinn, Hansa GK 106, hafði haldið út frá Sandgerði í morgun og var á leiðinni til Voga á Vatnsleysuströnd, þar sem taka átti bátinn upp. Við Garðskaga var hins vegar erfitt sjólag og reið brot yfir bátinn með þeim afleiðingum að rúður brotnuðu og tæki blotnuðu.

Samkvæmt heimildum Víkurfrétta voru bæði flugvél og þyrla Landhelgisgæslunnar sendar á vettvang við Garðskaga en var snúið við þegar ljóst var að sjómaðurinn hafði komist í land í Sandgerði.

Víkurfréttaljósmyndir: Sölvi Logason
Video: Hilmar Bragi Bárðarson