Laugardagur 13. mars 2010 kl. 16:40

Ómar Smári og Saltfisksetrið fá menningarverðlaun Grindavíkur

Saltfisksetur Íslands í Grindavík og Ómar Smári Ármannsson fengu í dag menningarverðlaun Grindavíkur 2010 fyrir verkefni sitt, örnefna- og minjakort fyrir einstök svæði í Grindavík. Þetta er í fyrsta skipti sem menningarverðlaunin eru veitt í Grindavík og voru þau afhent við hátíðlega athöfn í Saltfisksetrinu nú áðan. Þá var jafnframt sett formlega menningarvika Grindavíkur sem mun standa næstu átta daga.


Í meðfylgjandi myndbandi má sjá afhendingu verðlaunanna og þar segir Ólafur Örn Ólafsson aðeins fram verkefninu sem var verðlaunað í dag.