Sunnudagur 16. október 2011 kl. 12:44

Nýjum störfum skipað upp

Með tilkomu gagnavers Verne Global á Ásbrú í Reykjanesbæ verður til fjöldi nýrra starfa í bæjarfélaginu. Unfanfarið hafa birst auglýsingar þar sem auglýst er eftir fólki í öryggisþjónustu og eins til annarra starfa við gagnaverið.

Gagnaverið kom með skipi til landsins í gær og nú er unnið að uppskipun tækjabúnaðarins í Helguvík. Flutningabílar munu svo síðar í dag og á morgun flytja gámaeiningarnar frá Helguvík og að Ásbrú, þar sem gagnaverið verður sett saman í einu af gömlu vöruhúsum Varnarliðsins. Þar hefur verið unnið að breytingum á húsakosti til að setja upp gagnaver sem nýtir endurnýjanlega orkugjafa og Suðurnesjarokið verður notað til að kæla tækjabúnaðinn.

Meðfylgjandi myndskeið var tekið í Helguvík nú áðan.