Miðvikudagur 2. desember 2015 kl. 05:00

Norðurljósabærinn Garður

– sjáið innslag Sjónvarps Víkurfrétta um uppbyggingu á Garðskaga

Árlega koma yfir 100.000 ferðamenn í Garðinn og á Garðskaga. Nú ætla Garðmenn að ráðast í mikla uppbyggingu ferðaþjónustu á Garðskaga þar sem norðurljósum verður gert hátt undir höfði. Garðurinn verður hinn íslenski norðurljósabær eins og Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Garði, segir áhorfendum Sjónvarps Víkurfrétta í þættinum.