Fimmtudagur 3. nóvember 2016 kl. 13:00

Maraþonsund, golfakademía og ásýnd iðnaðarsvæðis

- ásamt myndarlegum fréttapakka í sjónvarpsþætti vikunnar

Sjónvarp Víkurfrétta sem er vikulegur magasínþáttur frá Suðurnesjum. Í þessum þætti förum við til Grindavíkur og fylgjumst með sundfólki synda maraþonsund og leggja um leið góðu málefni lið. Í Reykjanesbæ tökum við hús á golfakademíunni sem er ný æfingaaðstaða Golfklúbbs Suðurnesja og Púttklúbbs Suðurnesja. Við skoðum einnig ásýnd iðnaðarsvæðisins í Helguvík og hvernig uppbyggingin þar blasir við bæjarbúum. Þá sjáum við svipmyndir frá Hrekkjavöku í Reykjanesbæ og fáum fréttapakka frá Suðurnesjum.

Þátturinn er á dagskrá ÍNN í kvöld, fimmtudagskvöld kl. 21:30. Þáttinn má sjá hér að ofan í háskerpu.