Már í stuði á Ránni
Tónlistarmaðurinn og lagahöfundurinn Már Gunnarsson hélt jólatónleika á veitingastaðnum Ránni í Keflavík á dögunum. Þar flutti kappinn þekkta jólatónlist og og einnig frumsamin lög. Á tónleikunum naut Már einnig aðstoðar systur sinnar, Ísoldar Wilberg, sem söng með honum nokkur lög. Enginn aðgangseyrir var að tónleikunum sem voru vel sóttir. Sjáið myndskeið úr Sjónvarpi Víkurfrétta hér að neðan.