Magasín: Kraftur í Massa
Elsta kraftlyftingarfélag landsins, Massi í Njarðvík, átti fjóra landsliðsmenn í Norðurlandamótinu í kraftlyftingum fyrir skömmu. Það er um helmingurinn af landsliðinu sem sýnir styrk félagsins á landsvísu. Suðurnesjamenn eignuðust Norðurlandameistara í mótinu því Sindri Freyr Arnarsson sigraði í -66 kg. flokki. Hann lyfti samtals 490 kg samanlagt í hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu.
Víkurfréttir kíkti nýverið í heimsókn í Massa og leit við á æfingu. Afraksturinn má sjá í myndskeiðinu hér að neðan en innslag var um Massa í nýjasta þættinum af Suðurnesjamagasín sem frumsýndur var á mánudag.