Ljósanæturþáttur Sjónvarps Víkurfrétta
– Stefnumótastaurinn, ljósmyndir Jóns Tómassonar og fjölmargt annað
Ljósanæturþáttur Sjónvarps Víkurfrétta er kominn á vefinn í 1080P myndgæðum.
Í fyrri hluta þáttarins kíkjum við í Duushúsin á Ljósanótt en þar var meðal annars opnuð ljósmyndasýning í aldarminningu Jóns Tómassonar sem ljósmyndaði mannlífið í Keflavík í áratugi. Við ræðum við Margréti dóttur Jóns. Þá förum við á stofutónleika á Skólaveginum, sjáum dans og fjölbreyttar svipmyndir frá dagskrá Ljósanætur.
Í síðari hluta þáttarins förum við á stefnumót við Magnús Kjartansson og Björgvin Halldórsson við syngjandi stefnumótastaurinn á Hafnargötunni í Keflavík. Við fáum okkur einnig kjötsúpu frá Skólamat, skoðum minningalund og sjáum nokkur tónlistaratriði. Þá sjáum við einnig þúsundir Ljósanæturgesta í árgangagöngu.