Lagt upp með það að spila góða vörn
Keflvíkingar áttu ekki í teljandi vandræðum með hálffleyga Hauka í Iceland Express-deild karla í gærkvöldi og sigruðu með 9 stiga mun á heimavelli sínum 85-79.
Leikurinn var jafn og rólegur í fyrri hálfleik þar sem Charlie Parker hjá Keflvíkingum sýndi hvers hann er megnugur.
Valur Orri Valsson leikmaður Keflvíkinga var sáttur í leikslok í gær eftir að Keflvíkingar höfðu borið sigurorð af Haukum í gær. Hann segir liðið hafa lagt upp með það að spila góða vörn og í framhaldi af því ætti sóknarleikurinn að smella.
Aðspurður um hvernig hann væri að aðlagast leik Keflavíkurliðsins þá sagðist hann vera hægt og bítandi að komast inn í leik liðsins og að það væri mikil hefð fyrir því að Keflvíkingar væru með gott lið.