Kynntu sér fjölbreytt framtíðarstörf
Hundruð nemenda í 9. og 10. bekk grunnskóla á Suðurnesjum tóku þátt í starfskynningu í Stapanum í Reykjanesbæ í vikunni. Markmiðið með starfskynningunni var að efla starfsfræðslu fyrir elstu bekki grunnskóla, stuðla að aukinni starfsvitund og skýrri framtíðarsýn, meðal annars vegna þess að hlutfall þeirra 10. bekkinga sem halda áfram námi að loknum grunnskóla er lægra á Suðurnesjum en annars staðar á landinu. Starfskynningin er liður í átaksverkefni til eflingar menntunar á Suðurnesjum.
Starfskynningin var fyrir alla nemendur í 9. og 10. bekk á Suðurnesjum. Níu grunnskólar eru á svæðinu og tóku þeir allir þátt í kynningunni. Þá var nemendum í lífsleikni við Fjölbrautaskóla Suðurnesja boðið að koma. Náms- og starfsráðgjafar frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Keili og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum voru á staðnum til að svara spurningum nemenda varðandi nám svo að þarna mættist samvinna allra menntastofnana og atvinnulífsins á Suðurnesjum. Alls mættu um 700 nemendur á kynninguna. Þar voru kynntar 80 starfsgreinar af mjög fjölbreyttu tagi. Mjög vel gekk að fá fólk til að kynna sína starfsgrein og var áhersla lögð á að fá Suðurnesjamenn til verksins.
Forsaga átaksverkefnisins er sú að sveitarfélög á Suðurnesjum hafa kallað eftir aðgerðum gegn atvinnuleysi og í þágu atvinnulífs á svæðinu. Ríkisstjórnin ákvað í lok árs 2010 að koma til móts við þessar óskir með því að hrinda af stað átaki til að efla atvinnu og byggð á Suðurnesjum. Leitað var eftir hugmyndum að aðgerðum frá öllum ráðuneytum ásamt því sem farið hefur verið yfir þær hugmyndir sem komu út úr vinnu að Sóknaráætlun 20/20 fyrir Suðurnes. Ákveðið var að verja fjármagni til tveggja verkefna til eflingar menntunar á Suðurnesjum og er verkefnið okkar annað þeirra. Tveir verkefnisstjórar voru ráðnir til verksins og hófu þeir störf í byrjun maí 2011. Verkefninu lýkur um áramótin 2012/2013.
Þau Hanna María Kristjánsdóttir og Rúnar Árnason, verkefnastjórar hjá stýrihópi um efwwlingu menntunar á Suðurnesjum vilja koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem tóku þátt í þessu verkefni í Stapanum á miðvikudaginn. Í meðfylgjandi myndskeiði er viðtal við þau Hönnu Maríu og Rúnar þar sem fjallað er um starfskynninguna.