Kölluðu eftir borgarafundi í Garði
Það var mikill hiti í bæjarbúum í Garði í kvöld sem mættu á aukafund í bæjarstjórninni þar sem m.a. var fjallað um fundargerð skólanefndar og uppsögn bæjarstjóra. Eins og kunnugt er af fréttum hefur nýr meirihluti tekið við stjórnartaumum.
Undir umræðu um fundargerð skólanefndar tók Jónína Holm, forseti bæjarstjórnar, þá ákvörðun að loka fundinum fyrir áheyrendum í sal. Fundarsalur bæjarstjórnar var þétt setinn og einnig voru margir á göngum bæjarskrifstofunnar að fylgjast með umræðum.
Fundargestum varð heitt í hamsi þegar þeim var vísað úr salnum og hrópað var á bæjarstjórnina. Meðal annars var hrópuð krafa um borgarafund og orð látin falla eins og „við sýnum ykkur í annan heiminn,“ eins og sjá má og heyra í meðfylgjandi myndbroti sem tekið var upp á fundarstað í kvöld.