Hönnunarmæðgur, Guðni og buffið, íþróttafélagið Nes og sundpar í SVF
- sjónvarpsþætti vikunnar, Suðurnesjamagasíni Sjónvarps Víkurfrétta
Þetta er mínútustikla úr sjónvarpsþætti vikunnar, Suðurnesjamagasíni Sjónvarps Víkurfrétta.
Þar er kíkt á fjöruganföstudegi í Grindavík. Þar skoðum við framleiðslu á jólaskrauti, förum í hönnunarhús og borðum alvöru fisk og franskar.
Úr Grindavík förum við í afmæli og á æfingu hjá íþróttafélaginu NES á Suðurnesjum en það er íþróttafélag fatlaðra hér suður með sjó. Við heyrum í formanninum og iðkendum.
Við kíktum einnig við í Vatnaveröld í Reykjanesbæ og ræddum við ungt par sem er að gera góða hluti í sundíþróttinni.
Og í lok þáttarins grípum við forseta Íslands glóðvolgan á hlaupum um Reykjanesbæ með buffið fræga.
Suðurnesjamagasín er öll fimmtudagskvöld kl. 21:30 á Hringbraut, vf.is og á rás Kapalvæðingar í Reykjanesbæ.
Guðni setti upp buffið fræga í Reykjanesbæ.