Miðvikudagur 15. maí 2013 kl. 14:58

Heklugos 2013 haldið í Eldey og Atlantic Studios

Heklugos verður haldið í annað sinn í Eldey og Atlantic Studios fimmtudaginn 16. maí.
Eldey opnar kl. 19:00 og tískusýningin í Atlantic Studios hefst kl. 20:00. Allt kvöldið verða opnar vinnustofur hönnuða í Eldey auk þess sem sérstök handverkssýning verður á staðnum.
Lifandi tónlist og léttar veitingar. Tökum vel á móti sumrinu og eflum um leið tengslanetið. 

Heiðursgestir eru forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson og frú Dorrit Mousaief.