Gleði og góðar minningar í Sjónvarpi Víkurfrétta
– 25. þátturinn kominn á netið í háskerpu
Gleðin er við völd í nýjasta þætti Sjónvarp Víkurfrétta sem nú er orðinn aðgengilegur hér á vf.is í 1080P myndgæðum.
Í nýjasta þættinum er rætt við Magnús Kjartansson tónlistarmann sem kemur nokkuð við sögu á Ljósanótt sem nú er hafin. Einnig fylgjum við Kjartani Má Kjartanssyni í vinnuna á fyrsta starfsdegi sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Í síðari hluta þáttarins eru svipmyndir frá setningu Ljósanætur, tóndæmi úr sýningunni Með blik í auga - Keflavík og kanaútvarpið, og að endingu sýnum við ykkur frá Sandgerðisdögum.
Sjónvarp Víkurfrétta // 25. þáttur // 4. september 2014