Miðvikudagur 21. apríl 2010 kl. 17:57

Glæsileg dagskrá að Ásbrú á morgun - video

Hinn árlegi Opni dagur á Ásbrú verður haldinn í þriðja sinn á morgun, sumardaginn fyrsta, þann 22. apríl frá kl 12.00 til 16.00.


Í fyrra mættu um 15. þúsund manns og skemmtu sér konunglega í hreint út sagt frábæru veðri. Þá voru meðfylgjandi videomyndir teknar.


Glæsileg dagskrá verður í boði á morgun og nokkuð ljóst að allur aldur ætti að finna eitthvað við sitt hæfi.


Verið velkomin á opinn dag á Ásbrú, í blíðskapar veðri, sumardaginn fyrsta þann 22. apríl nk. frá kl. 12.00-16.00.