Þriðjudagur 12. maí 2026 kl. 11:20

Fundur Járngerðar 11. maí: Mikil óvissa í húsnæðismálum Grindvíkinga og nýtt áhættumat í bígerð

Upplýsingafundur Járngerðar, samstarfshóps um málefni Grindavíkur, var haldinn mánudaginn 11. maí. Á fundinum var farið yfir stöðu atvinnulífsins, áætlanir um nýtt áhættumat og vaxandi áhyggjur íbúa af ákvörðunum fasteignafélagsins Þórkötlu og leigufélagsins Bríetar.

Nýtt áhættumat í gangi með aðstoð Alþjóðabankans

Skarphéðinn Berg Steinarsson fór yfir stöðu almannavarnamála og fyrirhugað áhættumat fyrir Grindavík. Almannavarnanefnd Grindavíkur fundaði nýverið með fulltrúum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, lögreglustjóranum á Suðurnesjum og forsætisráðuneytinu.

Að sögn Skarphéðins er hafin vinna við nýtt og ítarlegra áhættumat sem á að vera lokið fyrir lok júní. Verkefnið byggir á ábendingum úr samfélaginu og skýrslum Grindavíkurnefndarinnar og Alþjóðabankans.

• Áformað er að halda tveggja daga vinnustofu í fyrstu vikunni í júní þar sem leitað verður liðsinnis sérfræðinga Alþjóðabankans.

• Unnið verður náið með almannavarnanefnd Grindavíkur og stefnt er að því að styðjast við alþjóðlegan staðal við gerð matsins.

Sólveig Þorvaldsdóttir, fulltrúi frá Háskóla Íslands, benti á að aðferðafræðin í viðauka Alþjóðabankans væri hefðbundin áhættugreining sem kennd væri í jarðskjálftaverkfræði. Hún hvatti vísindamenn til að halda vísindamönnum við efnið og einblína á þær beinskeyttu spurningar sem brenna á íbúum, eins og tækifæri þeirra til að dvelja í húsunum sínum.

Hörð gagnrýni á Þórkötlu: „Lokað á aðkomu Grindvíkinga“

Veruleg óánægja kom fram á fundinum með stefnu fasteignafélagsins Þórkötlu. Pétur Hafsteinn Pálsson lýsti yfir þungum áhyggjum og sagði félagið vinna gegn upprunalegum markmiðum uppkaupanna, sem áttu að draga úr áföllum og hjálpa fólki að snúa aftur heim þegar færi gæfist.

„Hin sorglega niðurstaða er sú að það er búið að stoppa innkomu Grindvíkinga í sumar vegna þessara mála,“ sagði Pétur.

Ómar Davíð Ólafsson tók undir þetta og sagði það skjóta skökku við að um 20% íbúa dvelji þegar í bænum án þess að stjórnvöld hafi áhyggjur af þeim, aleiningis að það sé allt í einu talið hættulegt að búa í þeim húsum sem Þórkatla á. Hann taldi tregðuna við að hleypa fólki inn brjóta gegn jafnræðisreglu og sagði að íbúar yrðu að mótmæla ef skemma ætti sumarið fyrir þeim.

Sólveig og Guðbjörg Eyjólfsdóttir veltu því fyrir sér hvort Þórkatla væri að fara út fyrir valdsvið sitt með því að taka ákvarðanir um áhættu, þar sem slíkt væri á herðum lögreglunnar. Lagt var til að Járngerður myndi leita skýringa beint hjá stjórn Þórkötlu eða forsætisráðuneytinu.

Íbúar í eignum Bríetar standa frammi fyrir óvissu

Óvissan einskorðast ekki við Grindavík því leigufélagið Bríet hefur sett um 200 íbúðir á sölu sem keyptar voru utan Grindavíkur, til dæmis í Reykjanesbæ, til að koma fólki í skjól í upphafi hamfaranna.

Guðfinna Magnúsdóttir fundarstjóri og Ómar Davíð bentu á að Grindvíkingar búi í um helmingi þessara eigna og upplifi nú mikla óvissu. Ómar sagði þetta sýna algjört ósamræmi þar sem fólki sé gert að rýma þetta húsnæði en megi á sama tíma ekki fara heim til Grindavíkur.

Sólveig upplýsti að þetta úrræði hefði upphaflega verið sett til þriggja ára í lögum og fjármálaráðuneytið væri nú að ganga eftir því að klára það, fremur en að um nýja ákvörðun Bríetar væri að ræða. Ef breyta ætti þessu þyrfti Alþingi að grípa inn í.

Atvinnulífið á pari við fyrra ár og sprunguskönnun framundan

Sigurður A. Kristmundsson hafnarstjóri fór yfir stöðu atvinnu- og hafnarmála. Hann sagði mörg græn ljós í atvinnulífinu; unnið sé að milljarða fjárfestingum í Bláa lóninu, hjá orkuverinu og við seiðaeldisstöð Samherja. Rafmagns- og heitavatnsnotkun fer vaxandi.

• Hafnarmál: Afli á hafnarsvæðinu er á pari við síðasta ár. Aprílmánuður var erfiður vegna brælu og slæmrar tíðar, sem varð til þess að smærri bátar réru minna og stærri togarar þurftu að landa í Þorlákshöfn. Áætlun ársins gerir ráð fyrir 28 þúsund tonna afla í stað 25 þúsund tonna í fyrra og væntingar standa til að það jafni sig á seinni hluta ársins.

• Jarðvegs- og sprunguviðgerðir: Skarphéðinn upplýsti að samningar hefðu náðst við eigendur í nánast öllum tilvikum varðandi niðurrif húsa og gengi sú vinna vonum framar. Þá eru þrjú útboð vegna viðgerða á sprungum og jarðföllum í auglýsingu. Í öllum verkefnum í aðgerðapakka 2 hefur verið samið við verktaka í Grindavík.

• Utan þéttbýlis: Á næstu vikum hefst skönnun á sprungum á svæðinu milli þéttbýlisins og varnargarðanna, sem og á Þorbirni, til að tryggja öryggi fólks á ferli. Áætlað er að þeirri vinnu ljúki á næstu vikum.