Þriðjudagur 9. nóvember 2010 kl. 10:21

Fundi ríkisstjórnarinnar með bæjarstjórum lokið: „Siglum í sömu átt“

Fundi ríkisstjórnarinnar með bæjarstjórum sveitarfélaganna á Suðurnesjum í Víkingaheimum er lokið. Bæjarstjórarnir voru þokkalega sáttir að honum loknum.
„Við erum á sama (Víkinga)skipi og siglum í sömu átt. Við kynntum stöðuna í okkar helstu málum á svæðinu og síðan voru þau rædd. Ríkisstjórnin mun svo kynna hér á eftir næstu skref,“ sagði Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ í stuttu spjalli við VF rétt eftir fundinn. Sigrún Árnadóttir, bæjarstjóri í Sandgerði sagði fundinn hafa verið góðan. „Ég er mjög sátt og þetta voru góðar umræður“.
Bæjarstjórarnir máttu að öðru leyti ekki tjá sig um hvað fram fór á fundinum en búast má við því að það verði kynnt á blaðamannafundinum sem hefst kl. 11.30.

Jóhanna forsætisráðherra og Árni Sigfússon, bæjarstjóri rétt fyrir fundinn í morgun. VF-myndir/pket.