Bjóða Þór heimahöfn í Reykjanesbæ
Reykjanesbær hefur ítrekað boð til Landhelgisgæslunnar um að heimahöfn hins nýja varðskips, Þórs, verði í Reykjanesbæ. Í bókun á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar í morgun var eftirfarandi bókun samþykkt:
„Bæjarráð Reykjanesbæjar samfagnar Landhelgisgæslunni við komu hins stórglæsilega varðskips Þórs og ítrekar um leið boð um heimahöfn í Reykjanesbæ“.
Hið nýja varðskip, Þór, var skammt undan Helguvík í allan morgun en tólf á hádegi sigldi skipið framhjá Keflavík og þeytti þokulúðra til að heiðra gamlan heimabæ skipherrans á Þór, Sigurðar Steinars Ketilssonar. Nú er Þór í þann mund að leggja að bryggju í Reykjavíkurhöfn, þar sem formlega verður tekið á móti þessu stórglæsilega varðskipi.
Hilmar Bragi, myndatökumaður Víkurfrétta, var á Vatnsnesi í Keflavík nú áðan og tók upp meðfylgjandi myndskeið þar sem má heyra í lúðrum skipsins þegar það rennir framhjá Vatnsnesinu.