Miðvikudagur 7. febrúar 2024 kl. 18:21

Bein útsending: Eldgosa- og náttúruvárvakt

Víkurfréttir hafa sett upp beina útsendingu úr myndavél sem beint er að Grindavík og svæðinu þar norður af. Á myndinni sem streymt er er Þorbjörn lengst til hægri á myndinni en Stóra-Skógfell lengst til vinstri. Innan þessa svæðis telja vísindamenn mestar líkur á að eldgos brjótist út.

Kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram þótt aðeins hafi hægst á landrisinu þar síðustu daga. Svipað ferli átti sér stað fyrir kvikuhlaupin og eldgosin sem urðu í janúar 2024 og desember 2023. Samkvæmt nýuppfærðum líkönum sem byggja á gervitungla- og GPS gögnum sem ná yfir tímabilið frá 16. janúar til 5. febrúar er magn kviku undir Svartsengi nú metið um 9 milljón rúmmetrar. Áætlað er að um 9 – 13 milljón rúmmetrar hafi streymt frá kvikusöfnunarsvæðinu undir Svartsengi þegar kvika hljóp þaðan og gaus nærri Hagafelli þann 14. Janúar. Því hefur áætlað magn kviku undir Svartsengi nú náð neðri mörkum af því magni sem talið er að hafi safnast þar fyrir síðasta eldgos. Áfram eru því taldar auknar líkur á kvikuhlaupi og eldgosi á næstu dögum eða vikum.