Þriðjudagur 14. júní 2011 kl. 15:27

Alvöru grillveisla hjá stuðningsmönnum Grindavíkur

Stinningskaldi, stuðningsmannafélag Grindavíkur í knattspyrnu, kom saman til veglegrar grillveislu í Grindavík á dögunum. Á grillið voru sett þrjú lömb þar sem þau voru heilsteikt. Steikinni var svo skolað niður með Stinnings Kalda, íslenska bjórnum sem ekki var skírður í höfuðið á stuðningsmannafélaginu.

Meðfylgjandi myndband var tekið í grillveislunni.