5700 mælar í stað hemla á hitaveitugrindur
– þetta eru mælarnir sem allir hafa skoðun á í dag
Nú er unnið að því að skipta út hemlum á hitaveitugrindum á heimilum á Suðurnesjum og setja mæla í staðinn. Samtals verða settir upp 5700 mælar en verkefnið mun taka þrjú ár og kostar um 350 milljónir króna.
Sjónvarp Víkurfrétta kynnti sér mælauppsetninguna og hér að neðan er innslag þáttarins.