3núll5: Viðtöl við Guðjón Skúlason og Inga Þór Steinþórsson
Fyrsti hluti netsjónvarpsþáttarins "3núll5" er orðinn aðgengilegur hér á vf.is. Þátturinn er samstarfsverkefni nokkurra vefmiðla, þ.e. vf.is, karfan.is og leikbrot.is. Í þessum þáttum verður nýliðin körfuknattleiksvertíð gerð upp.
Í fyrsta þættinum er rætt við þá Guðjón Skúlason frá Keflavík og Inga Þór Steinþórsson frá Snæfelli.
Þáttastjórnendur eru þeir Jón Björn Ólafsson (karfan.is) og Andri Kristinsson (Leikbrot) en stjórn upptöku og tæknivinnsla var í höndum Eggerts Baldvinssonar og Hilmars Braga Bárðarsonar.