3núll5: Signý Hermannsdóttir og Ægir Þór Steinarsson í viðtali
Þriðji hluti netsjónvarpsþáttarins "3núll5" er orðinn aðgengilegur hér á vf.is. Þátturinn er samstarfsverkefni nokkurra vefmiðla, þ.e. vf.is, karfan.is og leikbrot.is. Í þessum þáttum verður nýliðin körfuknattleiksvertíð gerð upp.
Hér er rætt við þau Signýju Hermannsdóttur frá KR og Ægir Þór Steinarsson frá Fjölni.
Þáttastjórnendur eru þeir Jón Björn Ólafsson (karfan.is) og Andri Kristinsson (Leikbrot) en stjórn upptöku og tæknivinnsla var í höndum Eggerts Baldvinssonar og Hilmars Braga Bárðarsonar.