Laugardagur 10. september 2011 kl. 12:55

1500 sáu Með blik í auga

Alls sáu 1500 manns hátíðartónleika Ljósanætur 2011, Með blik í auga, sem sett var á svið í Andrews-leikhúsinu á Ásbrú á Ljósanótt og í gærkvöldi. Þá var haldin aukasýning fyrir fullu húsi vegna fjölda áskorana. Ágóði sýningarinnar í gær rann í Velferðarsjóð Suðurnesja.

Í meðfylgjandi myndskeiði syngur Bríet Sunna Valdimarsdóttir um drauminn að vera með dáta en þema hátíðartónleikanna var tónlist og tíðarandi áranna 1950 til 1970.