Þrjátíu og níu milljónir króna söfnuðust í Góðgerðarfesti Blue Car rental sem renna til 39 aðila sem eru nær allir á Suðurnesjum. Hátíðin fór fram í reiðhöll Mána í Reykjanesbæ 10. október þar sem mikill fjöldi gesta mætti, skálaði og skemmti sér. Nokkrir af helstu tónlistarmönnum landsins mættu, m.a. Bubbi Morhens, bræðurnir Jón og Friðrik Dór Jónssynir, Salka sól og Herra Hnetusmjör. Hér eru myndir frá kvöldinu góða.
Safnahelgi á Suðurnesjum var sett í hlöðunni Skjaldbreið á Kálfatjörn á Vatnsleysuströnd í gær fimmtudag. Fjölmargir áhugaverðir viðburðir verða í boði á Safnahelgi á Suðurnesjum 17. og 18. október en einhverjir viðburðir verða á föstudag 16. október.
Björg Ásta Þórðardóttir, bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Vogum setti Safnahelgina með ávarpi þar sem hún sagði verkefnið skemmtilegt og samstarf um það meðal Suðurnesjamanna og sveitarfélaganna væri ánægjulegt og gott.
Við setningu Safnahelgar fluttu hjónin Þorvaldur Örn Árnason og Ragnheiður Jónsdóttir, Heiða, kona hans þulu um Geirfuglasker og sungu hana við lagið Sagt hefur það verið um Suðurnesjamenn eftir Sigvalda Kaldalóns.
Gestir við opnun Safnahelgar skoðuðu við það tækifæri skólasafnið Norðurkot en það er í aldargömlu skólahúsnæði í næsta húsi við hlöðuna. Í þessu litla húsi fór fram á sínum tíma grunnskólakennsla fyrir allt að nítján börn og kennarinn bjó í íbúð á efri hæð. Í Norðurkoti má sjá gömul leikföng, skóladót, húsgögn og fleira frá því í gamla daga. Það verður opið laugardag og sunnudag á Safnahelgi kl. 13.-16. Skólahúsið gamla og hlaðan eru í næsta nágrenni við Kálfatjarnarkirkju og golfvöllinn á Kálfatjörn. „Hér á Kálfatjörn kemur saman þrennt sem auðgar andann; trúin, hreyfingin og menningin,“ sagði Björg Ásta bæjarstjóri.
Björg Vogabæjarstjóri setti Safnahelgi á Suðurnesjum.
Skólahúsið gamla og hlaðan Skjalbreið.
Séð inn í gamla skólahúsið. Þarna sátu 19 nemendur við nám.
Sviðslistahópurinn Óður fagnar 5 ára starfsafmæli í ár en frá árinu 2021 hefur hópurinn sýnt 75 sýningar af 5 klassískum óperum. Einn af forsprökkum hópsins er Keflvíkingurinn Sævar Helgi Jóhannsson.
Allar uppfærslur hópsins eru nýjar leikgerðir sem þau hafa þýtt á íslensku í bundnu máli. Á þessu leikári sýna þau La bohème í Borgarleikhúsinu sem var frumsýnd í desember á síðasta ári. Óður var Listhópur Reykjavíkur árið 2024 og hlaut verðlaun sem Flytjandi ársins í sígildri og samtímatónlist á Íslensku tónlistarverðlaununum 2026 þar sem þýðing þeirra á La bohème var einnig tilnefnd sem Texti ársins.
Meðlimir Óðs eru óperusöngvararnir Þórhallur Auður Helgason, Sólveig Sigurðardóttir, Ragnar Pétur Jóhannsson og Áslákur Ingvarsson, píanóleikarinn Sævar Helgi Jóhannsson og leikstjórinn Tómas Helgi Baldursson.
Óður vinnur nú að sjöttu uppfærslu sinni og tónleikagestum býðst forsmekkur af henni á afmælistónleikum hópsins, sem haldnir verða í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 18. október kl. 17:00.
Á tónleikunum mun hópurinn flytja eftirlætiskafla sína úr öllum 5 óperuuppfærslum Óðs. Miðar eru í sölu á Tix.is en einnig má nálgast þá í gegnum heimasíðu Óðs, www.odur.is.
Hversu vel þekkir þú persónurnar sem hafa lifað, elskað, logið, leyst morðgátur og tekið misgóðar ákvarðanir á síðum bókmenntanna? Á skemmtilegu kvisskvöldi á föstudag kl. 20 í Stapasafni verður látið reyna á þekkingu þátttakenda á eftirminnilegum persónum úr bókmenntasögunni.
Þema kvöldsins er Aðalpersónur bókmenntanna og verða spurningarnar af ýmsum toga. Farið verður allt frá vígamönnum Íslendingasagnanna til snjallra spæjara, stormasamra elskhuga og þekktra persóna úr nútímabókmenntum.
Kvissið er ætlað jafnt víðlesnum bókaunnendum og þeim sem einfaldlega vilja eiga skemmtilega kvöldstund í góðum félagsskap.
Keppt verður í tveggja manna liðum og hefst leikurinn klukkan 20:00 í Stapasafni.
Vegleg verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu liðin og eru þau í boði KEF spa, Hljómahallar, Brons, GeoSilica og Langbest.
Þá verður sérstök bónusspurning í lok keppninnar sem gæti sett allt á annan endann og ráðið úrslitum um hvaða lið fer með sigur af hólmi.
Kvöldið er hluti af dagskrá Safnahelgar á Suðurnesjum.
„Fljótlega eftir að eldgos hófst á Reykjanesskaga í mars 2021 fór ég upp að gosstöðvunum með myndavélina mína. Eftir nokkrar ferðir ákvað ég að skipta yfir í drónamyndatöku til að fanga gosið betur, enda tók það miklum breytingum á þessum fyrstu vikum,“ segir Magnús Einarsson sem mætir með myndasýninguna Eldur á Reykjanesskaga á Safnahelgi á Suðurnesjum, tekur á móti gestum og gefur innsýn í tilurð verksins í Bókasafni Reykjanesbæjar.
„Hér var komið kjörið tækifæri til að safna myndum sem gátu fallið vel að ákveðnu verkefni sem fólst í því að tengja saman tónlist Gustavs Holst og ljósmyndir af náttúru Íslands. Hérna runnu vel saman iðandi eldgos og hraði í tónlistarþættinum sem Holst kennir við fyrstu plánetuna, Mars. Flæði kviku, tóna og lita í þessari sýningu spannar rétt tæpar 8 mínútur. Dróninn varð skyndilega lykillinn að því að fanga þennan samruna kviku, tóna og lita,“ segir í frétt frá Safnahelgi á Suðurnesjum.
Þessi stórbrotna kvikmynd samanstendur af drónamyndskeiðum sem tekin eru af sex eldgosum á tímabilinu 2021 til 2024. Magnús tekur fram að markmiðið hafi þó aldrei verið að búa til beina heimildamynd í klassískum skilningi um eldgos á Reykjanesskaga.
Sýningar verða í Félagsbíói á bókasafninu laugardaginn kl. 13-17. Sjón er sögu ríkari!
Sýnd á hálftíma fresti til kl. 17.00.
Undir sömu stjörnu eru heitið á stórkemmtilegum viðburði þar sem söngvarar Óperunnar flytja okkur nokkrar fegurstu perlur óberubókmenntann en leikarar Þjóðleikhússins leiða áhorfendur í gegnum söguna.
Nýstofnuð Ópera mun hefja starfsemi sína með glæsilegum viðburði sem fengið hefur nafnið Undir sömu stjörnu. Alls verða sýningarnar fimm og munu fara fram víða um landið. Fjörið byrjar í Hofi á Akureyri þann 18. október og flyst í framhaldi af því á Eskifjörð, í Skálholt, í Reykjanesbæ og loks í Þjóðleikhúsið. Það er stefna hinnar nýju Óperu að ná til landsins alls – enda ópera þjóðarinnar allrar. Söngvarar Óperunnar og leikarar Þjóðleikhússins koma fram öll kvöldin en á hverjum stað munu sinfóníuhljómsveitir, kórar og gestasöngvarar úr nærumhverfi vera í fyrirrúmi.
18. október - Hof, Akureyri
25. október - Eskifjarðarkirkja
1. nóvember - Hljómahöllin, Reykjanesbær
8. nóvember - Skálholt
15. nóvember - Þjóðleikhúsið
Ástarstjarna yfir Hraundranga og kvöldstjarna Wagners
Sama ár og þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson orti ljóð sitt um „Ástarstjörnu yfir Hraundranga“ samdi Richard Wagner óperuaríu til „Kvöldstjörnunnar“ sunnar í Evrópu. Skyldi það hafa verið sama tindrandi himinstjarnan sem kveikti hugmyndir beggja? Í þessari veglegu söngdagskrá er saga óperunnar rakin, allt frá hirðsölum Ítalíu að Íslands ströndum. Söngvarar Óperunnar flytja okkur nokkrar fegurstu perlur óperusögunnar en leikarar Þjóðleikhússins leiða áhorfendur í gegnum söguna. Fróðleik og skemmtun er hér fléttað saman á léttleikandi hátt.
Söngvarar Óperunnar: Gunnar Björn Jónsson, Hildigunnur Einarsdóttir, Kristín Einarsdóttir, Mäntylä og Kristján Ingi Jóhannesson.
Leikarar Þjóðleikhússins: Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Örn Árnason
Listrænir stjórnendur
Handrit og leikstjórn: Ólafur Egill Egilsson
Tónlistarstjóri: Richard Schwennicke
Búningar: Eva Björg Harðardóttir
Stjórnandi: Jóhann Smári Sævarsson
Söngvarar: Gunnar Björn Jónsson, Hildigunnur Einarsdóttir, Kristín Einarsdóttir Mäntylä og Kristján Ingi Jóhannesson.
Leikarar: Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Örn Árnason
Hljómsveit: Hljómsveit Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
Kór: Hátíðarkór Norðuróps
Aðrir aðstandendur
Framleiðslustjóri: Jara Hilmarsdóttir
Klæðskeri: Helga Lúðvíksdóttir
Gestasöngvari: Martyna Patrycja Gesella
Aðalfundur FKA Suðurnesjum var haldinn á Library nýlega. Ný stjórn var kjörin og er Guna Mežule nýr formaður samtakanna en hún tekur við af Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur.
Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum fór hópurinn í Gusu til Unnar Svövu gusumeistara í Leiru. FKA Suðurnes býður til opnunarviðburðar starfsársins í samstarfi við Blue Car Rental og Brons fimmtudaginn 15. október nk. þar sem FKA konur eru hvattar til að taka með sér vinkonu sem hefur áhuga á að kynnast FKA og starfi félagsins.
Ný stjórn hefur nú tekið við fyrir starfsárið 2026–2027 og hana skipa:
Guna Mežule – formaður
Erla Bjarný Gunnarsdóttir – varaformaður
Sigurbjörg Gunnarsdóttir – stjórnarkona og ritari
Ásta Kristín Guðmundsdóttir – stjórnarkona og gjaldkeri
Erna Rán Arndísardóttir – varastjórn
Unnur Svava Sverrisdóttir – varastjórn
Sæunn Alda Öldudóttir – varastjórn
„FKA Suðurnes þakkar fráfarandi stjórn kærlega fyrir gott starf, tíma og metnað í þágu félagsins. Sérstakar þakkir fær fráfarandi formaður, Guðný Birna Guðmundsdóttir, fyrir hennar góða framlag, forystu og ómetanlegt starf fyrir FKA Suðurnes,“ segir Guna Mežule, nýr formaður deildarinnar.
„Ný stjórn fer full tilhlökkunar inn í nýtt starfsár og að halda áfram að efla starf FKA á Suðurnesjum með áherslu á að styrkja konur í atvinnulífinu, auka sýnileika og þátttöku og skapa fleiri tækifæri til tengslamyndunar, vaxtar og samstarfs,“ segir Guna.
„Helstu áherslur okkar verða að virkja fleiri félagskonur, styrkja tengslanetið á svæðinu og bjóða upp á vandaða og valdeflandi viðburði þar sem tengslamyndun, hagnýt þekking, innblástur og tækifæri fyrir félagskonur fara saman. Við viljum einnig leggja ríka áherslu á að auka sýnileika kvenna í atvinnulífinu á Suðurnesjum, kynna félagskonur, fyrirtæki þeirra, árangur og spennandi verkefni sem þær eru í. Markmið okkar fyrir starfsárið 2026–2027 er að byggja áfram upp öflugt, sýnilegt og vel tengt samfélag FKA-kvenna á Suðurnesjum, þar sem þátttaka, valdefling, samstarf og raunverulegt virði fyrir félagskonur er í forgrunni,“ segir þessi öfluga félagskona sem hefur átt sæti í aðalstjórn FKA og tekið að sér fjölmörg verkefni fyrir Félag kvenna í atvinnulífinu.
Ný stjórn FKA Suðurnes.
Ný heimildarmynd úr Garðinum mætir á hvíta tjaldið í Reykjanesbæ á sunnudaginn, 4. október. Myndin Ár í Miðhúsum verður sýnd á þremur sýningum í Bergi í Hljómahöll. Viðburðurinn er hugsaður fyrir eldri borgara í Reykjanesbæ og er ókeypis aðgangur. Öll eru þó velkomin á meðan húsrúm leyfir en gestir sem hafa bókað sæti á póstfangið hilmar@vf.is hafa forgang í sæti. Sýningar eru kl. 14:00, 15:30 og 17:00 en sýningarnar eru í boði Hljómahallar.
Þann 3. október er myndin sýnd á Byggðasafninu á Garðskaga á 86” skjá í sal safnsins. Frumsýningin kl. 14:00 er fullbókuð, fá sæti eftir kl. 15:30 en talsvert er laust kl. 17:00. Á þessar sýningar er einnig ókeypis aðgangur en sýningarnar eru í boði Menningarsjóðs Suðurnesjabæjar.
Saga um tengsl sem standast tímans tönn
Í Miðhúsum í Garði hafa kynslóðir alist upp við búskap, sjó, fjöru og síki. Þar komu Torfi og Margrét sér fyrir um 1940 og ólu upp fjórtán börn. Á jörðinni ráku þau um árabil stærsta kúabú Garðsins, með um þrjátíu mjólkandi kýr og stundum allt að fimmtíu gripi með geldneytum. Börnin tóku frá unga aldri fullan þátt í störfunum, en fundu jafnframt frelsi og ævintýri í náttúrunni umhverfis bæinn.
Heimildarmyndin Ár í Miðhúsum fylgir lífinu á þessum sérstaka stað í gegnum árstíðirnar. Myndin er eftir þá Hilmar Braga Bárðarson og Hörð Gíslason og er í senn persónuleg fjölskyldusaga, lýsing á íslenskum búskaparháttum og frásögn af sterkum tengslum fólks við jörðina, fortíðina og hvert annað.
Gamla fjósið varð hjarta ættarinnar
Þótt hefðbundnum kúabúskap hafi lokið í Miðhúsum lifa húsin áfram. Systkinin tóku höndum saman, gerðu gamla fjósið og hlöðuna upp og breyttu þeim í félagsheimili og samverustað fjölskyldunnar. Þar eru haldin ættarmót, skötuveislur og aðrar samkomur. Húsin geyma jafnframt verkstæði, búvélar, ferðavagna og allt það sem fylgir lifandi athafnasemi.
Ættin telur nú yfir 200 manns og á fjölmennum ættarmótum fyllist Miðhús af lífi. Þar er tjaldað, kveiktur varðeldur, börn leika sér við fjöruborðið og tónlistarfólk úr fjölskyldunni heldur uppi gleðinni. Gamla fjósið, sem eitt sinn stóð undir lífsafkomu stórfjölskyldunnar, hefur öðlast nýtt hlutverk sem hjarta hennar og sameiningartákn.
Minningin um Torfa og Margréti er ætíð nærri. „Þau eru sagan okkar,“ segir einn afkomendanna. Staðurinn er tileinkaður þeim og þeirri arfleifð sem þau skildu eftir sig.
Einn traktor á hverja rollu
Í Miðhúsum eru um átta gamlir traktorar, flestir fimmtíu til sjötíu ára. Þeir eru ekki aðeins til sýnis. Hver einasti er gangfær og notaður við störfin. Traktor sem keyptur var til niðurrifs reyndist vera með svo góða vél að ekki kom til greina að fórna honum í varahluti. Hann var þess í stað gerður upp og bættist í hópinn.
Þar eru einnig heyvinnslutæki, rúlluvél, pökkunarvél og mykjudreifari frá áttunda áratugnum, samsettur úr tveimur gömlum dreifurum. Tækin eru þrifin, lagfærð og varðveitt af natni. Í Miðhúsum er sjálfbærni ekki nýtt tískuorð heldur gamall lífsmáti: að nýta það sem til er, gera við hlutina og láta þá endast.
Búskapurinn er ekki rekinn í hagnaðarskyni. Heyjað er fyrir eigið fé og afurðirnar nýttar innan fjölskyldunnar. Eins og sagt er með bros á vör í myndinni er þar nánast „einn traktor á hverja rollu“.
Heilt ár í lífi staðarins
Myndin fylgir bræðrunum og fjölskyldunni við dagleg störf. Á vorin er sauðburður og stundum þarf að hjálpa stórum lömbum í heiminn. Á sumrin eru túnin slegin og heyinu rúllað. Á haustin er slátrað til heimilisins og handtök sem lærðust í bernsku rifjuð upp. Þegar veturinn leggst yfir Miðhús standa gömlu húsin og vélarnar áfram vörð um söguna.
Innan um störfin vakna minningar um bernskuárin: börnin sem ráku kýrnar á beit, smíðuðu sér leikföng, léku sér í fjörunni og skautuðu á frosnum síkjunum. Vinnan var mikil, sérstaklega á sumrin þegar allur barnahópurinn var kallaður út á tún með hrífur. Samt var alltaf tími fyrir gleði og leiki.
Kynslóð tekur við af kynslóð
Jón Gunnar Torfason var síðasti bóndinn í Miðhúsum. Hann þekkir hvert tún, hvert hús og hvert handtak. Um leið og hann og bræður hans halda húsunum, tækjunum og jörðinni við vaknar óhjákvæmilega spurningin um framtíðina.
Mun yngra fólkið halda merkinu á lofti?
Svarið er varfærnislega bjartsýnt. Afkomendurnir vilja ekki missa staðinn. Þeir vilja varðveita húsin, jörðina og tengslin sem þar hafa orðið til. Þekkingin, minningarnar og samheldnin ganga áfram milli kynslóða.
Ár í Miðhúsum er hlý, einlæg og oft brosleg heimildarmynd um vinnusemi og hugvit, sterka fjölskyldu og stað sem heldur áfram að sameina fólk. Hún fjallar um verðmætin sem felast í því að þekkja uppruna sinn, nýta það sem til er og varðveita tengslin við fortíðina – án þess að gleyma að lifa í núinu.
Sýningartími er um 60 mínútur.
Landamæri tónlistarstefna eru ekki hindrun fyrir tónlistarkonuna og Keflvíkinginn Marínu Ósk, sem er listrænn stjórnandi nýrrar heimatónleikaraðar á Eyrarbakka, „Söngvaskáld í stofunni“. Þar býður hún íslenskum söngvaskáldum heim í stofu, hvar þau flytja tónlist hvors annars, spjalla við áhorfendur og segja sögur. Hreimur Örn Heimisson var gestur fyrstu tónleikanna, sem fóru fram 13. september síðastliðinn. Þau Marína Ósk hafa nú sent frá sér nýja ábreiðu og tónlistarmyndband af hinu sígræna lagi Dolly Parton, Jolene. Næstu stofutónleikar fara fram sunnudaginn 27. september þar sem Ragnheiður Gröndal verður söngvaskáld kvöldsins.
„Söngvaskáld í stofunni“ er hugarfóstur söngkonunnar Marínu Óskar og viðburðafyrirtækisins MX PROJECTS. „Hugmyndin kviknaði þegar við maðurinn minn keyptum okkur hús á Eyrarbakka með veglegri stofu. Það er mikill kraftur í lxistalífinu á Suðurlandi og okkur langaði að leggja okkar að mörkum. Eyrbekkingar hafa boðið okkur velkomin í bæinn svo okkur fannst tilvalið að bjóða þau velkomin heim til okkar á tónleika“, segir Marína Ósk. Fyrstu tónleikar tónleikaraðarinnar fóru fram, sem fyrr segir, þann 13. september í þétt setinni stofunni og var Hreimur Örn Heimisson söngvaskáld kvöldsins. Mikið var hlegið og eftir tónleikana gátu gestir spjallað við listafólkið.
Margir tengja Marínu Ósk eflaust við hljómsveitina The Bookstore Band, sem leikur fyrir fullu húsi Máls og menningar öll kvöld vikunnar, en hún hefur komið víða við á sínum ferli og er m.a. tvöfaldur handhafi Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir söng sinn og lagasmíðar í jazztónlist. Hún er reynslumikil í skipulagningu tónleika og stígur óhikandi inn í ólíkar tónlistarstefnur og ný samstörf. „Við Hreimur vorum að vinna saman í fyrsta skipti en mér fannst þetta ganga alveg grunsamlega vel, eins og við hefðum sungið og spilað saman í mörg ár. Ég er ennþá í skýjunum með hvað þetta gekk vel!“ segir Marína.
Lagið Jolene hefur sérstaka þýðingu fyrir tvíeykið. „Við Hreimur kynntumst um Verslunarmannahelgina 2015. Rúnar Eff, sameiginlegur vinur okkar, bauð mér að kíkja með sér á Siglufjörð þar sem Hreimur var að spila með hljómsveitinni Made in Sveitin. Einhvernveginn endaði ég upp á sviði með míkrafón og flutti Jolene og síðan höfum við fylgst með hvoru öðru á samfélagsmiðlum. Okkur fannst tilvalið að útsetja Jolene sem dúett og gefa laginu þannig skemmtilegan og öðruvísi vinkil.“ segir Marína.
Næstu stofutónleikar fara fram sunnudaginn 27. september kl. 20:00 að Háeyrarvöllum 2 á Eyrarbakka, en þá mætir Ragnheiður Gröndal í heimsókn. „Við Ragga höfum þekkst lengi og ég hef alltaf litið upp til
hennar. Við ætlum að flytja lög eftir hvora aðra og svo má vera að eitthvað glænýtt efni læðist með.“
Húsið opnar 19:15 og er sætaframboð takmarkað. „Miðasala fer fram við hurð og miðaverðið sjálft er túlkunaratriði hvers og eins. Ég hugsa að þetta verði bara hinir allra huggulegustu hausttónleikar og
hlakka mikið til!“ segir Marína að lokum.
Lagið Jolene kemur út á streymisveitum á næstu dögum en tónlistarmyndbandið má sjá hér að neðan.
Í Miðhúsum í Garði hafa kynslóðir alist upp við búskap, sjó, fjöru og síki. Þar komu Torfi og Margrét sér fyrir um 1940 og ólu upp fjórtán börn. Á jörðinni ráku þau um árabil stærsta kúabú Garðsins, með um þrjátíu mjólkandi kýr og stundum allt að fimmtíu gripi með geldneytum. Börnin tóku frá unga aldri fullan þátt í störfunum, en fundu jafnframt frelsi og ævintýri í náttúrunni umhverfis bæinn.
Heimildarmyndin Ár í Miðhúsum fylgir lífinu á þessum sérstaka stað í gegnum árstíðirnar. Myndin er eftir þá Hilmar Braga Bárðarson og Hörð Gíslason og er í senn persónuleg fjölskyldusaga, lýsing á íslenskum búskaparháttum og frásögn af sterkum tengslum fólks við jörðina, fortíðina og hvert annað.
Myndin verður sýnd helgina 3. til 4. október næstkomandi. Þann 3. október er myndin sýnd á Byggðasafninu á Garðskaga á 86” skjá en þann 4. október er myndin til sýninga í Bergi í Hljómahöll á bíótjaldi. Sýningartímar eru kl. 14:00, 15:30 og 17:00 báða dagana.
Gamla fjósið varð hjarta ættarinnar
Þótt hefðbundnum kúabúskap hafi lokið í Miðhúsum lifa húsin áfram. Systkinin tóku höndum saman, gerðu gamla fjósið og hlöðuna upp og breyttu þeim í félagsheimili og samverustað fjölskyldunnar. Þar eru haldin ættarmót, skötuveislur og aðrar samkomur. Húsin geyma jafnframt verkstæði, búvélar, ferðavagna og allt það sem fylgir lifandi athafnasemi.
Ættin telur nú yfir 200 manns og á fjölmennum ættarmótum fyllist Miðhús af lífi. Þar er tjaldað, kveiktur varðeldur, börn leika sér við fjöruborðið og tónlistarfólk úr fjölskyldunni heldur uppi gleðinni. Gamla fjósið, sem eitt sinn stóð undir lífsafkomu stórfjölskyldunnar, hefur öðlast nýtt hlutverk sem hjarta hennar og sameiningartákn.
Minningin um Torfa og Margréti er ætíð nærri. „Þau eru sagan okkar,“ segir einn afkomendanna. Staðurinn er tileinkaður þeim og þeirri arfleifð sem þau skildu eftir sig.
Einn traktor á hverja rollu
Í Miðhúsum eru um átta gamlir traktorar, flestir fimmtíu til sjötíu ára. Þeir eru ekki aðeins til sýnis. Hver einasti er gangfær og notaður við störfin. Traktor sem keyptur var til niðurrifs reyndist vera með svo góða vél að ekki kom til greina að fórna honum í varahluti. Hann var þess í stað gerður upp og bættist í hópinn.
Þar eru einnig heyvinnslutæki, rúlluvél, pökkunarvél og mykjudreifari frá áttunda áratugnum, samsettur úr tveimur gömlum dreifurum. Tækin eru þrifin, lagfærð og varðveitt af natni. Í Miðhúsum er sjálfbærni ekki nýtt tískuorð heldur gamall lífsmáti: að nýta það sem til er, gera við hlutina og láta þá endast.
Búskapurinn er ekki rekinn í hagnaðarskyni. Heyjað er fyrir eigið fé og afurðirnar nýttar innan fjölskyldunnar. Eins og sagt er með bros á vör í myndinni er þar nánast „einn traktor á hverja rollu“.
Heilt ár í lífi staðarins
Myndin fylgir bræðrunum og fjölskyldunni við dagleg störf. Á vorin er sauðburður og stundum þarf að hjálpa stórum lömbum í heiminn. Á sumrin eru túnin slegin og heyinu rúllað. Á haustin er slátrað til heimilisins og handtök sem lærðust í bernsku rifjuð upp. Þegar veturinn leggst yfir Miðhús standa gömlu húsin og vélarnar áfram vörð um söguna.
Innan um störfin vakna minningar um bernskuárin: börnin sem ráku kýrnar á beit, smíðuðu sér leikföng, léku sér í fjörunni og skautuðu á frosnum síkjunum. Vinnan var mikil, sérstaklega á sumrin þegar allur barnahópurinn var kallaður út á tún með hrífur. Samt var alltaf tími fyrir gleði og leiki.
Kynslóð tekur við af kynslóð
Jón Gunnar Torfason var síðasti bóndinn í Miðhúsum. Hann þekkir hvert tún, hvert hús og hvert handtak. Um leið og hann og bræður hans halda húsunum, tækjunum og jörðinni við vaknar óhjákvæmilega spurningin um framtíðina.
Mun yngra fólkið  halda merkinu á lofti?
Svarið er varfærnislega bjartsýnt. Afkomendurnir vilja ekki missa staðinn. Þeir vilja varðveita húsin, jörðina og tengslin sem þar hafa orðið til. Þekkingin, minningarnar og samheldnin ganga áfram milli kynslóða.
Ár í Miðhúsum er hlý, einlæg og oft brosleg heimildarmynd um vinnusemi og hugvit, sterka fjölskyldu og stað sem heldur áfram að sameina fólk. Hún fjallar um verðmætin sem felast í því að þekkja uppruna sinn, nýta það sem til er og varðveita tengslin við fortíðina – án þess að gleyma að lifa í núinu.
Sýningartími er um 60 mínútur.
Helga Sigrún Harðardóttir er ein af mörgum nemendum sem sótti nám í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hér rifjar hún upp nokkur atvik frá árunum í FS.
Skólagangan var eftirminnileg að því leyti að ég tilheyrði þéttum vinahópi úr Njarðvík sem var virkur í félagslífinu og nemendafélaginu. Þessi hópur fékk m.a. Helga heitinn Eiríksson, sögukennara, til að leiðsegja sér í göngu yfir Fimmvörðuháls þegar Þórsmerkurferð var í aðsigi, sennilega haustið 1988. Gangan var tekin í tvennu lagi og gist í Baldvinsskála um nóttina. Sjálf var ég nú enginn göngugarpur á þessum tíma, í lánsskóm og með allt of þungan bakpoka. Ég fékk hælsæri eftir hálftíma göngu sem Helgi bjó um með því að setja smokk yfir blöðruna og plástra svo allt í drasl, sem bjargaði því sem eftir var af hælnum á mér. Þá komst upp um hinn ofurþunga bakpoka seinni daginn þegar heljarmenni úr Öræfunum sem hafði ákveðið að slást í för með okkur ákvað að skipta um bakpoka við mig á niðurleiðinni og kvartaði sáran undan þyngslunum. Ég lærði mína lexíu og hef síðan gengið glöð á fjöll með hæfilega þyngd á bakinu í tilgengnum skóm!
Við Anna Karlsdóttir Taylor rákum bóksöluna í skólanum um tíma og fórum reglulega „í bæinn“ að sækja bækur og selja í frímínútum. Það er gaman að segja frá því að í fyrravetur var ég svo í leikfimi hjá Guðbjörgu Finns úr Sandgerði sem var líka í FS. Einn viðskiptavina hennar er Anna María Sigurjónsdóttir úr Njarðvík og í einum tímanum áttuðum við okkur á því að allar höfðum við rekið bóksöluna í FS á einhverjum tímapunkti sem var skemmtileg tilviljun.
Sigga Bílddal var á þessum tíma námsráðgjafi í FS. Hún reyndist mér mjög vel og stendur upp úr hvað varðar starfsmenn og kennara, alltaf boðin og búin og svo endalaust almennileg við stelpu sem mætti ólétt í skólann og eignaðist barn á annarri önninni. Ég þurfti nú kannski ekki miklar tilslakanir þess vegna en það var ómetanlegt að eiga Siggu að sem kenndi mér líka fingrasetningu og að pikka sjúklega hratt á lyklaborð. Það er kunnátta sem ég hef notið æ síðan. Þess utan eru Gísli heitinn Torfa og Þórunn Friðriks eftirminnilegust fyrir hvað þau voru alltaf með okkur krökkunum í liði, Gísli með stærðfræðiútskýringar á heimsmælikvarða, alltaf svo hlýr og styðjandi með sitt óræða bros og Þórunn með félagsfræðilegar, heimspekilegar og siðfræðilegar pælingar sem vöktu forvitni og spurningar.
Ég var líka svo heppin að fá að gegna stöðu formanns NFS síðasta árið mitt í skólanum sem var frábært þó að það skólaár hafi endað á sex vikna kennaraverkfalli. Þann tíma áttum við í samstarfi við aðra framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu sem skipulögðu sameiginlega viðburði þennan tíma svo vorönnin færi ekki til spillis í skemmtanalífinu. Þar kynntist ég „kollegum“ sem margir hverjir hafa fetað velgengnibrautina og orðið forstjórar, stjórnmálamenn og framámenn í viðskiptalífinu. Ég tók hlutverk mitt mjög alvarlega sem formaður því á einu skólaballinu fann ég nemanda grátandi inni á klósetti eftir að hún hafði lent í leiðinda samskiptum við fyrrverandi kærasta. Ég fór með hana heim til hennar, málaði hana upp á nýtt og fór með hana aftur á ballið. Daginn eftir heimsótti ég hana til að vita hvort hún hefði jafnað sig og upp úr því eignaðist ég vinkonu fyrir lífstíð.
Þessi ár í FS einkenndust annars af tíðum verkföllum kennara sem voru á þessum tíma í harðvítugum kjaradeilum. Þess naut ég síðar þegar ég var búin að klára kennó og bæta við mig námsráðgjöf þótt þau laun dygðu samt ekki einni fyrirvinnu til að kaupa íbúð yfir hausinn á sér og dóttur sinni tíu árum síðar. Og enn duga kennaralaun líklega skammt undir slíkum kringumstæðum, því miður.
Skólagangan í Fjölbrautaskóla Suðurnesja undirbjó mig ljómandi vel undir frekara nám sem ég hef stundað af kappi síðan bæði hér heima og erlendis. Fyrir það er ég þakklát og óska þess að FS megi dafna og þroskast á komandi árum, vonandi undir nýju þaki hið allra fyrsta.
Eitt elsta starfandi fyrirtæki á Suðurnesjum, Ellert Skúlason ehf. fagnar á þessu ári 65 ára afmæli. Af því tilefni var boðið til fagnaðar snemm sumars í Stapanum.
Boðið var upp á veitingar og glæsilega skemmtidagskrá þar sem nokkrir af okkar helstu skemmtikröftum landsins komu fram auk hljómsveitar. Fjöldi ættingja og vina auk starfsfólks fagnaði með eigendum á skemmtilegu kvöldi í Stapanum í Njarðvík en eigendurnir og stofnendur eru þaðan.
„Það er gaman að ná svona áfanga og því ber að fagna sem við og gerðum. Þetta var frábært kvöld. Reksturinn gengur vel og það hafa verið næg verkefni undanfarin ár. Við eigum auðvitað langa sögu og erum hvergi nærri hætt, síður en svo, erum að bæta við,“ segir Viðar Ellertsson, framkvæmdastjóri en foreldrar hans stofnuðu fyrirtækið fyrir 65 árum.
Sveppi kann að skemmta fólki og hann var í stuði í  Stapanum.
Viðar Ellertsson ávarpaði afmælisgesti í Stapanum.
Fyrirtækið hefur alla tíð verið vel tækjum og tólum búið. Nokkur voru fyrir utan Stapann á afmælisfagnaðinum.
Njarðvíkingarnir Óli Thord, Hreiðar og Viðar á góðri stundu  að fagna á heimavelli!
Tónlistarlífið á Suðurnesjum ljómaði af hlýju og gleði á dögunum þegar efnt var til viðamikilla afmælistónleika til heiðurs Karen Sturlaugsson í Stapa í Hljómahöll. Karen fagnaði nýverið 70 ára afmæli sínu og átti von á mörgu, en tónlistarfélagar hennar og fyrrum nemendur höfðu undirbúið óvæntu tónleikana í meira en tvö ár án þess að hún vissi af.
Á tónleikunum var Karen heiðruð á margvíslegan hátt fyrir ómetanlegt starf sitt í þágu tónlistareflingar og samfélagsins. Meðal annars var hún gerð að heiðursfélaga SÍSL, Sambands íslenskra skólalúðrasveita, auk þess sem henni voru færðar ýmsar aðrar gjafir og þakkir.
Tónleikagestir fengu að njóta fjölbreyttrar og efnismikillar dagskrár sem endurspeglaði breiddina í tónlistarlífi svæðisins. Tónleikarnir hófust á sameiginlegri afmæliskveðju allra viðstaddra í útsetningu Ellerts Karlssonar. Því næst steig bjöllukór á stokk og flutti lögin Hopp-í-polla með Sigur Rós og Sweet Caroline eftir Neil Diamond, áður en allir flytjendur sameinuðust á ný í einkennislagi Hogan's Heroes og hinu þekkta útilegumannalagi Á Sprengisandi.
Því næst tók Lúðrasveit Verkalýðsins við sviðinu og flutti hátíðleg lög og syrpur, meðal annars Barnum and Bailey's Favorite, syrpu með lögum hljómsveitarinnar Eagles, tónlist úr Galdrakarlinum í Oz og þekkta smelli Bítlanna.
Eftir hlé var dagskráin tekin upp aftur með glæsilegu trompetsamspili þar sem flutt var lagið Maid of the Mist. Í kjölfarið tók stórsveit við og bauð upp á öfluga sveifludagskrá. Fram komu nokkrir af fremstu söngvurum landsins: Marína Ósk Þórólfsdóttir söng Orange Colored Sky, Valdimar Guðmundsson flutti Almost Like Being in Love, Birta Rós Sigurjónsdóttir söng Caught a Touch of Your Love og Jón Marinó Sigurðsson kynnti til leiks Harðsnúnu Hönnu.
Tónleikunum lauk með mikilli lokasyrpu þar sem allir tónlistarmennirnir sameinuðust á sviðinu. Flutt voru lögin Give My Regards to Broadway og að lokum hið vinsæla lag Nakinn, þar sem Jón Jósep Snæbjörnsson (Jónsi) fór á kostum í söngnum, en hann gegndi jafnframt hlutverki kynnis kvöldsins.
Fjöldi tónlistarfólks kom að flutningnum og fór stjórnun tónleikanna í hendur nokkurra aðila. Heimir Ingi Guðmundsson stýrði Lúðrasveit Verkalýðsins og heildaratriðum, Veigar Margeirsson stýrði stórsveitinni, Arnar Freyr Valsson hélt utan um bjöllukórinn og Sandra Rún Jónsdóttir stýrði trompetsamspilinu, á meðan Þórhallur Arnar Vilbergsson sá um hljóðstjórn.
Stemningin í Stapa var rafmögnuð allt kvöldið og var þakklæti og virðing til Karenar í fyrirrúmi hjá öllum viðstöddum.
Karen á sviðinu í Stapa með tónlistarfólkinu sem fagnaði með henni.
Bjöllukórinn   var að sjálfsögðu með afmælistónlist í tilefni dagsins.
Magnús Hlynur Hreiðarsson, fréttamaður til margra ára, rifjar upp skemmtilega tíma í Fjölbrautaskóla Suðurnesja þar sem grunnurinn að fjölmiðlaferli hans var lagður. Hann skipaði stóran sess í félagslífinu, var útvarpsstjóri Útvarps Suðurnes sem sett var upp í skólanum og sat síðar í skólanefnd FS.
Magnús Hlynur er fæddur á Sjúkrahúsinu í Keflavík 4. september árið 1969 og ólst upp í Vogum. Faðir hans er Hreiðar Guðmundsson úr Vogum en móðir hans var Anna Halldóra Snorradóttir, kölluð Bíbí, fædd og uppalin í Njarðvík, en hún lést árið 1986. Magnús á einn bróður, Snorra, en elsti bróðir þeirra, Ómar Snorri, lést af slysförum aðeins tíu ára gamall árið 1975.
Að loknum grunnskóla í Stóru-Vogaskóla lá leið Magnúsar í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. „Ég fór strax á fjölmiðlabrautina í FS. Það var virkilega skemmtilegur tími,“ segir Magnús. Hann lét mikið að sér kveða í félagslífinu og var meðal annars útvarpsstjóri Útvarps Suðurnes árið 1988 á meðan hann stundaði námið, en hann útskrifaðist sem stúdent vorið 1989.
Öflugir kennarar og ógleymanleg skólaböll
Þegar Magnús er spurður út í kennarana úr FS koma tvö nöfn strax upp í hugann. „Það voru þau Borgþór Arngrímsson, alltaf kallaður Boggi, sem kenndi dönsku, og Guðrún Erla Sigurðardóttir, alltaf kölluð Gerla, sem kenndi þýsku. Viðar Oddgeirsson heitinn, sem vann hjá RÚV á þessum tíma, var líka töluvert með okkur á fjölmiðlabrautinni auk margs annars góðs fólks.“
Skólinn tengdist líka einkalífinu á skemmtilegan hátt því kona Magnúsar, Anna Margrét Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur, flutti í Vogana til fjölskyldu hans og var með honum í FS tvo síðustu veturna. Magnús rifjar skólaárin upp af mikilli hlýju: „Ég á mjög góðar minningar úr skólanum, ekki síst af skólaböllunum í Stapanum sem voru frábær. Ég var líka duglegur í félagsmálum og sat í ýmsum nefndum og ráðum, meira að segja í skólanefnd skólans sem fulltrúi Voga árin 1990 til 1994.“
Fjölbreyttur ferill og víðfeðm fréttamennska
Þótt fjölmiðlabrautin í FS hafi kveikt neistann tók við nokkuð fjölbreytt náms- og starfsævi. Magnús fór í Bændaskólann á Hvanneyri árið 1991 og ætlaði að verða bóndi en breytti um stefnu og lærði garðyrkju í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi þaðan sem hann útskrifaðist 1996. Hann starfaði í kjölfarið í áratug sem endurmenntunarstjóri skólans. Síðar bætti hann við sig BA-gráðu í fjölmiðlafræði frá Háskólanum á Akureyri árin 2014–2017.
Ljóst er þó að fjölmiðlaáhuginn sem kviknaði í FS hefur alltaf fylgt honum. Magnús var fréttaritari RÚV á Suðurnesjum ásamt Viðari Oddgeirssyni tökumanni, var fréttamaður á Stöð 2 og RÚV til skiptis, ritstjóri og blaðamaður Dagskrárinnar á Suðurlandi í um 15 ár og hefur skrifað í Bændablaðið í tvo áratugi.
Í dag býr Magnús á Selfossi ásamt eiginkonu sinni. Þau eiga fjóra stráka og fjögur barnabörn. Hann starfar í hálfu starfi sem fréttamaður hjá RÚV á Suðurlandi og í hálfu starfi í Frístund í Stekkjarskóla á Selfossi, auk þess að vera virkur í Rótarýklúbbi Selfoss og Karlakór Hveragerðis.
„Mér fannst fjölmiðlanámið í Fjölbrautaskóla Suðurnesja mjög gott og skemmtilegt og það varð örugglega til þess að ég hélt áfram í fréttamennsku. Ég óska skólanum að sjálfsögðu til hamingju með afmælið og vona að framtíð hans verði björt,“ segir Magnús Hlynur að lokum.
Ég á afar góðar minningar frá FS. Námskerfið hentaði mér mjög vel og ég náði að sameina raungreinar og tónlist á mjög hagkvæman hátt. Félagslífið var mjög blómlegt en stærsta minningin tengist ansi dramatísku óhappi.
Vorið 1991 var jarðfræðinemaferð með Ægi kennara á hverasvæðið á Reykjanesi. Við vorum á troðnum stíg að ganga um svæðið og allt í einu steig ég niður í gegnum jarðveginn og með vinstri fótinn í hver. Vatnið hafði fundið sér leið og myndað lítinn hverapoll með leirskán yfir, þannig að ég sá að pollurinn sást ekki. Sársaukinn var ógurlegur og ég hoppaði um á hinum fætinum og lagðist á grasbala og var rifinn úr skónum. Ég var svo keyrður á sjúkrahúsið í Keflavík og reyndist vera með 4. stigs bruna. Þetta endaði í 4 vikna legu á Landspítala.
Ég þurfti síðan að þreyta jarðfræðiprófið í júní langt á eftir hinum bekkjarfélögunum. Stóðst prófið með prýði en ákvað að láta allt jarðfræðitengt eiga sig eftir þetta. Reyni að forðast hverasvæði að mestu enn þann dag í dag.
Fjölbrautarárin voru hreint út sagt stórskemmtileg og ævintýraleg um leið. Ég var mjög virk í félagslífinu, hvort sem það var í stjórn nemendafélagsins, leikfélaginu, íþróttakappleikjum, ræðukeppnum o.fl. Það sem var samt eftirminnilegast voru allir þessir snilldarkennarar sem voru við skólann og þegar ég byrjaði 1982 var skólinn bara 6 ára, en maður upplifði sannarlega engan byrjendabrag, bara grósku, gleði og kraft. Allt eðalkennarar og eftirminnilegir. Ég hef í gegnum tíðina verið talsmaður og stoltur fyrrverandi nemandi Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Skólinn hefur skilað af sér fjölbreyttum hópi einstaklinga út í lífið sem hefur látið taka til sín á öllum sviðum mannlífsins. Fyrir það ber að þakka og ærin ástæða til að fagna 50 ára afmælinu. Takk fyrir mig.
Mín skólaganga í Fjölbrautaskóla Suðurnesja hófst haustið 1980. Ég ákvað að læra húsasmíði. Námið gekk bara nokkuð vel og ég tók sveinsprófið árið 1985. Síðan hélt ég áfram í FS og fór á viðskiptabraut og útskrifaðist sem stúdent árið 1987.
Þegar ég hugsa til baka og rifja upp hvernig skólagangan í FS hafi verið þá eru það jákvæðar og góðar minningar. Íþróttatímarnir og frjálsir tímar í íþróttahúsinu voru sérstaklega skemmtilegir, þar sem áhuginn og ákefðin var mikil og tekist á í fótbolta, körfubolta og fleiri greinum. Einnig var útskriftarferðin til Acapulco í Mexíkó mjög skemmtileg og eftirminnileg. Síðast en ekki síst er það félagsskapurinn og allt það góða fólk sem maður kynntist og þar myndaðist kunningsskapur og vinskapur sem lifir enn.
Það voru góðir kennarar sem kenndu mér og hafa haft áhrif á mig í gegnum tíðina. Vil ég sérstaklega minnast á Sturlaug Ólafsson sem kom mikið að kennslunni í húsasmíðinni, góður maður sem hvatti mann áfram. Sturlaugur Björnsson var einnig frábær kennari sem kenndi grunn- og fagteikningu. Í tímum hjá honum sköpuðust oft skemmtilegar umræður um lífið og tilveruna. Gísli Torfason kenndi stærðfræði, mjög góður kennari sem nálgaðist kennsluna á sérstakan hátt, var þolinmóður og útskýrði dæmin ótrúlega vel. Þar sem ég hef kennt stærðfræði í Gerðaskóla í nokkuð mörg ár, hef ég reynt að hafa hann sem fyrirmynd í stærðfræðikennslunni. Guðni Kjartansson kenndi íþróttir, skemmtilegur og góður kennari, oft að tala um fótbolta og þar sem ég var að spila með Víði á þessum tíma þá komu leiðbeiningar og hans viska um fótbolta sér að góðum notum hjá mér. Einnig vil ég minnast á Gunnar Þórarinsson sem kenndi viðskiptagreinar og þjóð- og rekstrarhagfræði og tókst honum að vekja áhuga minn á þessum greinum.
Eftir skólagönguna í FS vann ég við húsasmíði í nokkur ár. Íþróttir hafa alltaf heillað mig og ég átti þann draum að fara í Íþróttaskólann á Laugarvatni og þangað fór ég og útskrifaðist vorið 1995. Ég réði mig svo í kennslu við Gerðaskóla haustið 1995 og hef verið þar síðan. Ég fór svo í viðskiptafræði í Háskólanum í Reykjavík með vinnu og útskrifaðist þaðan árið 2006. Nám í FS gefur virkilega góðan grunn og mikla möguleika á fjölbreyttu námi í framhaldinu. Ég hugsa með hlýhug til skólans á þessum tímamótum og vil senda kærar afmæliskveðjur.
Ég byrjaði í FS 1986 fyrir akkúrat 40 árum og stefni á að útskrifast núna um jólin.  Reyndar tók ég fyrst stúdentspróf á síðustu öld, svo meistaraskólann í kvöldskóla rétt eftir aldamótin og er núna í þriðja sinn í skólanum og útskrifast sem rafvirki um jólin úr síðdegisskóla sem ég skellti mér í til gamans.
Hvað hefurðu verið að gera síðan þú útskrifaðist úr FS?
Vann í verslunum og á flugvellinum eftir útskrift og flutti svo til Danmerkur í fjögur ár þar sem ég fór í danska úrsmiðaskólann.  Rak svo verslun á Laugarveginum og réð mig svo á flugvöllinn í 6 mánuði fyrir 20 árum er þar enn.  Fyrst sem öryggisvörður og varðstjóri og starfa í dag sem landamæravörður.
Hvernig fannst þér FS búa þig undir það nám sem þú fórst í?
Ég var ungur og vitlaust og ekkert mikið sem festist í hausnum.  Það sem helst hefur setið í mér og ég hef endurspeglað heiminn í eru þeir félagsfræði og sálfræði áfangar sem ég tók hjá Tótu og Konráði.  Einnig var eftirminnilegt að taka þátt í leiklistaráföngum hjá Bogga.   Ég var með litla dönsku úr FS þegar ég flutti út en það held ég að hafi frekar skrifast á áhugaleysi hjá mér.  Var mjög fljótur svo að læra dönsku í Danmörku þegar ég komst að því að það þarf að innbyrða hana með bjór. En ásamt úrsmíði útskrifaðist ég í Danmörku í bjórdrykkju og er afreksmaður á því sviði.
Hvernig skóli er FS í þínum augum?
Mér er afar hlýtt til FS og finnst gaman að labba þar enn um gangana en lít líklegast út fyrir að vera risaeðla í augum samnema í skólanum.  Skemmtileg tilviljun að í dag erum við öll á heimilinu í FS.  Ég í síðdegisnámi, Gabríel og Nói synir mínir í dagskólanum og Ösp konan mín að taka nokkra áfanga líka.
Viltu deila með okkur eftirminnilegum minningum úr gamla skólanum þínum?
Það er kannski eftirminnilegast að það var mikið djammað og þegar ég var á fyrstu önn einungis 16 ára þá var ung snót sem þá var einungis 15 ára sem blikkaði mig og höfum við verið saman í 40 ár núna 15. Nóv. Var virkur í starfi leikfélagsins og þær sýningar sem við settum upp eru sterkar í minningunni.  Settum upp leikritið Eftirlitsmaðurinn og við vorum um 12 krakkar að setja þetta upp og 10 af þeim hafa látið að sér kveða í listum eftir það. Gefið út hljómlist, skrifað bækur, leikið, leikstýrt og ofl. Mér finnst það magnað.
Hver var eftirminnilegasti kennarinn?
Það voru fjölmargir eftirminnilegir kennarar  en ég held að ég nefni Gísla Torfa en ég var aldrei sérstaklega mikið fyrir stærðfræði en lenti einu sinni í því að leiðrétta dæmi hjá honum og hann sá að það var rétt en þá hélt móðir mín að helvíti vari frosið yfir þegar ég væri farinn að leiðrétta stærðfræðikennara.
Þessi (rassa)mynd er tekinn í busavígslunni haustið 1986. Sé að þarna eru Steindór Bjarni Róbertsson, Sigurður Pálmason,  Skúli Skúlason,  (held ég), Jón Einar Sverrisson, ég, Guðmundur Hreggviðsson.  Þeir sem eiga þessar kinnar er nú í virðulegum störfum í samfélaginu og vil ég ekki gefa upp nöfn þeirra.
Haustið 1985 fengum við vinkonurnar þá skyndihugdettu að koma með atriði á árshátíð skólans næsta vor sem haldin yrði í Félagsbíó, því þetta væri síðasta önnin sem við værum allar saman í skólanum. Við létum vita af því og svo þegar það fór að nálgast árshátíð þá var haft samband við okkur og við rukkaðar um atriði.
Við ákváðum að standa við gefið loforð og bjuggum til okkar útgáfu af ævintýrinu um Litlu ljót. Ein okkar, hún Hlín, hafði þá nýlega tekið þátt í fegurðarsamkeppni og var hún því sett í hlutverk Litlu ljótar og við hinar vorum vondu stelpurnar sem sungu til hennar hvað hún væri ljót. Svo fór Litla ljót djúpt inn í skóginn og þvoði sér úr töfralindinni og varð þá falleg, en í stað þess að Litla ljót (Hlín) risi upp eftir baðið í lindinni þá hvarf Hlín af sviðinu og upp reis ný og falleg Litla ljót í líkama stórs og stæðilegs Bjarna Thors sem klæddur var í ballerínupils með slaufu í hárinu og með rauðan varalit. Vakti atriðið mikla lukku.
Svo mikill atgangur var í atriðinu að Kollý missteig sig og þurfti að fara á slysó eftir atriðið en það fór þó vel og mætti hún með hækjur um kvöldið á ballið í Stapa.
Einnig voru dansarar með okkur í atriðinu sem áttu að túlka skóginn sem Litla ljót fór til, það voru þeir Sigurður Ingimundarson, Ingólfur Haraldsson og Kristjón Grétarsson. Þeir voru berir að ofan og dönsuðu um sviðið með afklipptar trjágreinar úr skrúðgarðinum okkar.
Á myndinni talið frá vinstri eru: Hlín Hólm, Anna Lilja Lárusdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Hallfríður Benediktsdóttir og Kolbrún Garðarsdóttir. Fremst er Bjarni Thor Kristinsson.
Fréttir úr langri sögu Víkurfrétta verða oft og iðulega verðmætari eftir því sem lengra líður frá þeim. Þessi, sem fréttastjóri Víkurfrétta bað mig um tjá mig um, er frá árinu 1992 þar sem við Hjálmar Árnason, þáverandi skólameistari Fjölbrautarskóla Suðurnesja og ég, þáverandi formaður nemendafélagsins NFS, sjáumst á mynd drekka te í nýrri viðbyggingu við skólann.
Hjálmar hafði falið mér sem fulltrúa nemanda að vígja þessa nýju byggingu með því að drekka fyrsta tesopann en hann hafði lofað opinberlega við fyrstu skóflustunguna að hann myndi efna til teboðs þegar byggingin yrði vígð, einu ári áður. Og Hjálmar stóð við það og bauð auðvitað nemanda í boðið! En að sjá þessa gömlu frétt minnir mig enn fremur á samskipti okkar Hjálmars. Ég strunsaði oft og iðulega inn á skrifstofu skólameistara með eitthvert, að mér fannst, brýnt hagsmunamál nemenda og málið þoldi enga bið! Alltaf tók Hjálmar á móti mér! Við ræddum erindið, en samtalið fór oftast fljótlega út um víðan völl, yfir í stjórnmál, Njálu eða samfélags- og heimspekileg viðfangsefni. Hann hefur einstaka frásagnargáfu og smitandi þekkingargleði og ákafi nemendaformaðurinn fór oftar en ekki dáleiddur út af þessum hagsmunafundi. En það sem situr eftir í mér frá þessum árum er virðingin sem Hjálmar bar fyrir nemendum sínum og skólanum. Allir áttu greiða leið að honum en í staðinn gerði hann ríkar kröfur til okkar til baka eins og hann orðaði sjálfur við víxluna að gerðar yrðu „kröfur um árangur og eðlilegan húsaga en þó með sanngirni að leiðarljósi. Skólinn er vinnustaður“. Þessi orð lýsa Hjálmari vel. Er ekki rétt, við þetta tækifæri, nú 34 árum síðar, að bjóða Hjálmari upp á dýrindis te og framhaldsspjall á Aðaltorgi?
Undirritaður á margar skemmtilegar minningar frá námsárunum í FS, 1984–1987. Skólinn skartaði virkilega flottum kennurum og má þar m.a. nefna Ægi Sigurðsson raungreinakennara, Maju Loebell þýskukennara, Gísla Torfason stærðfræðikennara, Björn Örvar líffræðikennara sem kom að stofnun Orf líftækni síðar, og Unni Þorsteinsdóttur sem kenndi efnafræði og er núna framkvæmdastjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu og hefur verið talin ein áhrifamesta vísindakona Evrópu. Ég efast um að nokkur annar framhaldsskóli á þessum tíma hafi haft annan eins hóp úrvalskennara.
Sumir þessara kennara höfðu getið sér orð fyrir sérstaka nálgun í kennslu og maður hafði heyrt þeirra getið löngu áður en maður fór í fyrsta tímann til þeirra. Ægi Sigurðsson hitti ég á fyrstu önn í fyrsta tíma í Eðlisfræði 103 en ég hafði margoft heyrt hann nefndan. Við höfum komið okkur fyrir á fremsta bekk nokkrir busar þegar Ægir þusti inn aðeins seinn en samt einhvern veginn á undan sjálfum sér eins og hann kom okkur á stundum fyrir þegar hann stormaði áfram. Hann lagði frá sér blöð á borðið og flétti í þeim fram og til baka án þess svo mikið sem að líta upp. Loks leit hann upp og horfði á okkur busana á fremsta bekk og sagði: „Þið eigið ekki að vera hér“, bætti svo við „Þið eruð ekki búnir með stærðfræði 103“. Hann varð svo aðeins hugsi og sagði með sínu skemmtilega brosi – glotti: „Jæja, þið komið þá bara aftur í þennan kúrs á næsta ári“. Þetta var hans leið til að láta okkur vita að við þyrftum að hafa aðeins fyrir þessu ef við ætluðum að ná. Skilaboðin náðu í mark enda þorðum við ekki öðru en að leggja okkur alla fram og þurftum vel að merkja ekki að hefja leik aftur á næsta ári. Ægir hafði einstakt lag á því að gera eðlisfræðina skemmtilega.
Fyrstu tímarnir hjá Maju Loebell voru einnig minnistæðir enda höfðum við verið vöruð við því að hjá henni ríkti sannkallaður þýskur agi, áfram gakk og ekkert kjaftæði. Í Þýsku 103 var í hópnum piltur sem var sannarlega klár og skýr en var skulum við segja ekkert sérstaklega ötull námsmaður þegar kom að heimavinnu og verkefnaskilum, við skulum kalla hann Jón hér. Það má leiða líkum að því að ýmsir kennarar hafi reynt að ramma Jón inn áður án mikils árangurs.
Maja hafði þann sið að í hverjum tíma ávarpaði hún alla nemendur, hvern fyrir sig, og spurði út í eitthvað það sem lagt hafði verið fyrir í síðasta tíma. Þegar hún spurði Jón fyrsta sinni þá sagði hann pass og gaf einfaldlega þá skýringu að hann hefði ekki lært heima. Maja lét ekki á neinu bera og vék athygli sinni að næsta nemanda. Það sama gerðist í næsta tíma og þar næsta og tímanum þar á eftir. Við vorum aðeins farin að pæla í þessu og töldum að líkast til væri þessi meinti þýski agi eitthvað orðum ofaukinn. Þegar kom að fimmta tíma og Jón hafði sem fyrr lýst sig algjörlega ólesinn, þá staðnæmdist hún, þagnaði aðeins, horfði á Jón á einhvern þann máta að okkur fannst sem það snarkólnaði í kennslustofunni og sagði honum einfaldlega að það væri óþarfi fyrir hann að koma eitthvað frekar í þýskutíma enda væri það tímasóun fyrir hana, okkur hin og hann sjálfan. Tíminn hélt svo áfram og kláraðist en ég gaf því gaum að Jón dokaði við þegar við hin fórum. Hvað þeirra fór á milli veit ég ekki, en hitt veit ég að eftir þetta þá var erfitt að finna samviskusamari þýskunemanda en Jón og ég áttaði mig á því að henni hefði tekist á 30 sekúndum það sem mögulega engum kennara hafði tekist til þessa, þ.e.a.s. að fá fulla athygli Jóns í kennslustofunni og út fyrir hana í heimavinnu- og verkefnavinnu. Það væri langt mál að tiltaka fleiri af hennar árangursríku kennsluaðferðum, einhvern veginn man ég til dæmis enn þá hvaða forsetningar í þýsku taka með sér þágufall þó svo ég hafi ekki fengið tækifæri til að taka þýskuna mína lengra og hafi í raun lítið gagn af þessari vitneskju sem Maja plantaði þarna fyrir mörgum árum.
Ég hef þó af og til sagt konunni minni frá hinu og þessu sem frá Maju kom. Konan mín er leirlistakona og rekur ásamt fleirum gallerí í Reykjavík. Í fyrra sagði hún mér eitt kvöldið að hún hefði þann daginn hitt konu í galleríinu sem ég kannaðist við. Ég kváði við og hún sagði mér frá því að viðskiptavinur hefði gefið sig á tal við hana og spurt m.a. hvaðan hún væri og þannig komist að því að hún væri frá Keflavík. Konan hafði þá látið þess getið að hún hefði búið þar um skeið og verið kennari. Konan mín spurði þá hvað hún hefði kennt og það var jú þýska í FS. Mín kona var ekki lengi að leggja saman tvo og tvo og spurði: „Ert þú Maja Loebell?!“ Hún svaraði aðeins hissa að jú, hún væri vissulega Maja Loebell og við það hló konan mín og sagði henni sem væri að hún væri búin að heyra fleiri tugi sagna af henni frá mér og það allar af góðu einu. Það gladdi mig mikið að fá svo að sjá mynd af þeim saman, sem og það gleður mig jafnan að hitta mína fyrrverandi FS kennara en allnokkrir og of margir hafa þó þurft frá að hverfa fyrr en maður hefði ætlað.
Það er stórbrotin stemning í Hljómahöll núna þegar öllu er tjaldað til á þriggja klukkustunda afmælistónleikum skólans. Rjómi íslensks tónlistarfólks sem stigið hefur sín fyrstu skref í skólanum mætir á svið og fagnaði þessari einstöku tónlistarsögu með gestum á öllum aldri.
Meðfylgjandi myndir voru teknar nú áðan en tónleikarnir standa til kl. 21:00 og það er ókeypis inn og ekkert aldurstakmark.
Myndasafn hér að neðan ...
Hljómsveitin LÓN gefur út nýja ábreiðu af goðsagnakenndu lagi Eyfa, „Ég lifi í draumi“. Eyfi og LÓN koma saman fram á stórtónleikum Valdimars Guðmundssonar í Eldborg 12. september og ákváðu LÓN-liðar, með söngvarann Valdimar Guðmundsson í broddi fylkingar, að nýta tækifærið til að heiðra Eyfa með nýrri útgáfu af laginu.
Kynni Valdimars og Eyfa hófust á Innipúkanum árið 2011 þegar Eyfi steig á svið með hljómsveitinni Valdimar. Þar var um að ræða skemmtilegt konsept þar sem ný hljómsveit sameinaðist eldri og reyndari kappa á sviðinu.
Nú gefst þeim aftur tækifæri til að deila sviðinu þegar Eyfi kemur fram sem gestur á stórtónleikum Valdimars í Eldborg.
Á tónleikunum 12. september mun Valdimar Guðmundsson líta yfir feril sinn og flytja sínar helstu perlur, bæði með hljómsveitinni Valdimar og úr sólóferli sínum. Auk LÓN og Eyfa koma þar fram aðrir gestir og samverkamenn Valdimars.
„Ég lifi í draumi“ er eitt af þekktari lögum Eyfa og hefur fyrir löngu fest sig í sessi í íslenskri dægurlagasögu. Lag og texti eru eftir Eyjólf Kristjánsson og Aðalstein Ásberg Sigurðsson.
Spotify linkur:
„Þetta var mjög áhrifarík sýning,“ heyrðist meðal áhorfenda eftir kvikmyndasýningu í Bókasafni Reykjanesbæjar á Ljósanótt.
Kvikmyndin „Töfrandi himinn Íslands“ er um 25 mínútur að lengd og er svokallað upplifunarverk þar sem saman fléttast kvikmynd, time-lapse-ljósmyndun og drónamyndir af íslenskri náttúru. Verkið gefur áhorfendum einstakt tækifæri til að upplifa íslenskt landslag og himinn í myndum og tónum. Verkið er eftir ljósmyndarann Jón Rúnar Hilmarsson og við það er flutt frumsamin tónlist eftir Alexöndru Chernyshovu. Tónlistin er flutt af höfundi hennar ásamt hljómsveit og óperukór í Kyiv og var hún tekin upp bæði í Úkraínu og á Íslandi.
Jón og Alexandra eru listahjón sem eru vel kunn á Suðurnesjum. Þau hafa bæði reglulega komið fram á Ljósanótt allt frá árinu 2005. Alexandra hefur komið fram sem óperusöngkona og tónskáld, meðal annars á tónleikum í Ytri-Njarðvíkurkirkju, í Duus Safnahúsi og á Stofutónleikum Alexöndru. Jón hefur haldið fjölmargar ljósmyndasýningar. Þau hafa bæði hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir list sína, bæði hér heima og erlendis.
Þetta er í fyrsta sinn sem þau koma saman á Ljósanótt með eitt sameiginlegt listaverk. „Það var ánægjulegt að sjá að heimafólk og ferðamenn létu sig hafa það að koma í Bókasafnið í bíó, þó að það sé aðeins út úr aðalflæðinu frá miðbæ Keflavíkur, þar sem allt er að gerast,“ segir Jón. „Ég er mjög þakklátur fyrir styrkinn frá Uppbyggingarsjóði, sem studdi við verkefnið og gerði okkur kleift að koma því í framkvæmd. Styrkurinn gerði okkur Alexöndru kleift að koma verkefninu í það form sem okkur langaði að sýna áhorfendum.“
Alexandra var einnig ánægð með sýninguna. „Það var mjög gaman að sýna kvikmyndina og fá endurgjöf frá áhorfendum strax á staðnum,“ segir Alexandra og brosir. „Það sem kom mér á óvart, og ég hafði ekki tekið eftir áður, var að verkið nær líka til mjög fjölbreyttra hópa, þar á meðal erlendra gesta. Náttúra Íslands er heillandi og einstök.“ Tónlistin í kvikmyndinni er Sinfonietta fyrir sópran, kór og hljómsveit og skiptist í fjóra kafla: Norðurljós, Vatn og stjörnur, Týnd og Töfrandi ást í himinum. „Það er gaman að upplifa að áhorfendur skynjuðu það sem við Jón vildum segja og endurspegla í verkinu,“ segir Alexandra.
Listaverk í gjöf
Það var einnig skemmtileg nýjung við sýninguna að í fyrsta sinn var dregið úr hópi áhorfenda í lok sýningarinnar og einn heppinn gestur hlaut glæsilega ljósmynd eftir mig á striga að gjöf. Það var Helga frá Hveragerði sem varð svo heppin að fá myndina.
„Ég held að við gerum þetta að hefð hjá okkur og gefum eitt listaverk frá okkur á Ljósanótt,“ segir Jón að lokum í tilkynningu.
Tónleikarnir Heima í Höfnum voru haldnir í fyrsta sinn á Ljósanótt þegar Magnús Einþór Áskelsson og Sara Lind Guðmundsdóttir buðu tónleikagestum í garðinn sinn í Höfnum. Hljómsveitin Hipsumhaps steig á svið og óhætt er að segja að frumraunin hafi tekist vel en uppselt var á tónleikana.
Gestir fjölmenntu til Hafna og rúmlega tvöfölduðu íbúafjölda þorpsins. Tónleikagestir skemmtu sér konunglega í einstöku umhverfi þar sem Hipsumhaps hélt uppi frábærri stemningu.
„Við erum eiginlega bara í skýjunum með hvernig þetta tókst. Það var ótrúlega gaman að sjá garðinn fyllast af fólki og finna stemninguna sem myndaðist. Við gætum ekki verið ánægðari með þessa fyrstu tónleika,“ segja Magnús og Sara Lind.
Hugmyndin með Heima í Höfnum var að bjóða upp á öðruvísi tónleikaupplifun á Ljósanótt og um leið fá fólk til að leggja leið sína til Hafna.
„Okkur langaði að gera eitthvað skemmtilegt hérna heima og sýna fólki hvað Hafnir hafa upp á að bjóða. Við vissum auðvitað ekkert hvernig þessu yrði tekið í fyrsta skipti, þannig að það að selja upp tónleikana og sjá hvað fólk skemmti sér vel fór fram úr okkar björtustu vonum.“
Frumraunin verður ekki sú síðasta. Magnús og Sara Lind eru þegar farin að horfa til næsta árs og undirbúningur fyrir næstu Heima í Höfnum tónleika er hafinn.
„Við ætlum klárlega að gera þetta aftur og jafnvel stærra.
Nú er bara stóra spurningin hver stígur á svið Heima í Höfnum 2027.“
Þverflautuleikarinn ungi og efnilegi úr Reykjanesbæ, Karen Jóna Steinarsdóttir, hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir glæsilegan árangur á tónlistarsviðinu. Nýverið stóð hún á sviði Eldborgar í Hörpu ásamt ungu og metnaðarfullu tónlistarfólki í meistaraflokki, en hún var meðal fárra valinna Íslendinga sem komust inn í hina virtu sinfóníuhljómsveit Orkester Norden. Í viðtali við Víkurfréttir ræddi Karen um krefjandi tónlistarnám, lífið í meistaranámi í Danmörku, hversdagslegan aga og stóru framtíðardraumana.
Á stóra sviðinu með Orkester Norden
Fyrir skömmu lauk Karen átta daga ströngu námskeiði og tónleikaferðalagi með Orchestra Norden, en það er sinfóníuhljómsveit skipuð efnilegustu ungu hljóðfæraleikurum Norðurlanda og Eystrasaltslandanna. Aðeins fjórir Íslendingar náðu inntökuprófi í hópinn að þessu sinni og var Karen eini fulltrúi Suðurnesja.
Verkefnið var fjölbreytt og krefjandi, en flutt voru stórvirki á borð við áttundu sinfóníu Schuberts, Pulcinella eftir Stravinsky, Sinfóníska rapsódíu Nielsens og sjöttu sinfóníu Beethovens. Hápunkturinn var án efa að spila fyrir fullum sal í Hörpu.
„Þetta er bara mjög skemmtilegt. Það er virkilega flott að spila þar. Maður þarf að vita hvenær maður kemur inn og allt þarf að vera mjög nákvæmt.“
Byrjaði átta ára í tónlist
Tónlistaráhugi Karenar kviknaði snemma, sem er kannski fullyrðing sem kemur fáum á óvart þar sem faðir hennar er Steinar Guðmundsson, organisti og píanóleikari. Hún hóf nám átta ára gömul í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar hjá Berglindi Stefánsdóttur og æfði af kappsamri stundvísi. Þegar hún er spurð af hverju þverflautan varð fyrir valinu er svarið einfalt:
„Ég held ég hafi bara valið hana af því að mér hafi fundist hún falleg og hljómaði fallega.“
Námsárin voru krefjandi hjá Karen. Hún stundaði krefjandi nám á raunvísindabraut í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og fór oft beint eftir langan skóladag í tónlistarskólann og á stífar flautuæfingar. Tónlistarnámið kenndi henni aga sem nýtist í öllu öðru námi og lífi.
Árósar, meistaranám og hversdagsleiki
Eftir stúdentspróf og eins árs dvöl sem au pair í Bandaríkjunum innritaðist Karen í Listaháskóla Íslands þaðan sem hún útskrifaðist með bakkalárgráðu. Í dag er hún flutt til Danmerkur þar sem hún stundar meistaranám í þverflautuleik við Konunglega tónlistarháskólann í Árósum, skóla sem krefst strangs inntökuferlis.
Daglegt líf Karenar snýst aukið um stöðuga ræktun á tækninni. Hún mætir snemma á morgnana í æfingaherbergi og mætir í einka og hóptíma hjá kennurum sínum. Til að framfleyta sér í Danmörku heldur hún tveimur boltum í lofti:
„Ég er náttúrulega mjög heppin með fjölskyldu sem hefur stutt mig í gegnum þetta líka og svo er ég líka að vinna á spænskum bar. Það er ágætis tilbreyting frá náminu og ég næ mér í aukapening.“
Fórnir, fyrirmyndir og draumur um Berlín
Árangur í tónlist kemur ekki af sjálfu sér. Karen viðurkennir að hún hafi þurft að fórna þó nokkrum böllum og samverustundum með vinum í gegnum tíðina til að sinna æfingum.
„Það er alveg erfitt. Maður þarf alltaf að æfa sig á hverjum degi og hafa metnað til þess og halda fókus.“
Karen á sér stórar fyrirmyndir í faginu, meðal annars Stefán Ragnar Höskuldsson, sem er yfirflautuleikari hjá hinni heimsþekktu Berlínarfílharmóníu. Draumur Karenar sjálfrar er skýr: Hún vill komast að sem fastamaður í stórri sinfóníuhljómsveit. Þrátt fyrir harða samkeppni og ströng inntökuferli hefur hún trú á verkefninu. Því oft er talað um inntökuferli sem inntökupróf ef um hljómsveit er að ræða. Samhliða framtíðarsýninni á stóra sviðinu hefur hún líka gaman af kennslu og útilokar ekki að miðla af reynslu sinni til komandi kynslóða tónlistarnema á heimaslóðum í Reykjanesbæ.
Það ríkti mikil gleði og það voru fjölmörg brosandi andlit á hátíðarsvæði Ljósanætur í kvöld. Ljósmyndari Víkurfrétta tók hring um svæðið með myndavélina og fangaði stemmninguna þar sem unga fólkið var til mikillar fyrirmyndar eins og sjá má á myndunum í safninu sem er meðfylgjandi.
Kristín Þórarinsdóttir, ökukennari og framkvæmdastjóri Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur verður eins og margir heimamenn á þönum á Ljósanótt. En hún hefur notið sumarsins og hlakkar til Ljósanætur þar sem hún á sínar góðu stundir með fjölskyldu og vinum. Kristín náði til dæmis að tryggja sér miða á hina vinsælu Heimatónleika verða að venju á hátíðinni.
Hvernig varðir þú sumarfríinu?
Ég náði að taka mér ágætis frí frá dagvinnunni og verja tíma með börnunum mínum og fjölskyldu. Ég er ökukennari líka þannig að það er erfitt að vera alveg í fríi en ég náði að tvinna þetta einhvern veginn saman.
Hvað stóð upp úr?
Tvær utanlandsferðir standa upp úr þetta sumarið. Í júlí fórum við systkinin og fjölskyldur ásamt mömmu til Austurríkis þar sem við dvöldum á dásamlega fallegum stað og nutum þess að eyða tíma saman. Ég tók svo skyndiákvörðun og fór með börnin til New York um verslunarmannahelgina. Tvær mjög ólíkar ferðir þar sem í Austurríki var ekkert nema kyrrð og ró en New York algjör andstæða.
Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar?
Ég hef mjög gaman af því að fylgjast með íþróttum og hef lengi fylgst með fótboltaliðunum okkar og ef ég ætti að nefna eitthvað sem hefur komið á óvart í sumar þá er það kannski helst karlaliðið okkar í fótbolta en það hefur glatt mig síðustu tvö sumur. Það er einstaklega gaman að fylgjast með þeim spila þetta tímabil og ég hvet Keflvíkinga til að mæta og fylgjast með þeim leikjum sem eftir eru.
Áttu þér uppáhaldsstað til að heimsækja innanlands?
Ég er ekki beint útilegutýpan þó að mig langi stundum að vera það, sérstaklega þegar ég skoða samfélagsmiðlana. Ég tengi ekkert sérstaklega við ákveðinn stað en mér líður mjög vel í hinum ýmsu baðlónum og ef ég ætti að nefna einhvern stað þá væri það kannski Skógarböðin á Akureyri.
Er eitthvað sérstakt á verkefnalistanum í vetur?
Á veturna tekur körfuboltinn við, ég vinn í Blue-höllinni við að reka körfuknattleiksdeildina og það fer mikill tími í það á veturna. Börnin mín eru bæði að æfa körfubolta þannig að það kemst lítið annað að á okkar heimili.
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
Ég er ekkert sérstaklega mikið fyrir mannmergð og þræði ekki útihátíðir en ég bít á jaxlinn á Ljósanótt. Það er ákveðin stemning sem myndast í bæjarfélaginu þessa helgi og það er gaman að sjá bæinn lifna við.
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt?
Ég keypti miða á Heimatónleikana og við vinkonurnar ætlum að kíkja þangað, annað er nú ekkert skipulagt og verður bara tekin ákvörðun um það þegar nær dregur. Körfuknattleiksdeildin verður svo með sölu og viðburð á Ljósanótt sem ég tek þátt í að vinna við.
Hver er besta minningin þín frá Ljósanótt?
Við fjölskyldan höfum undanfarin ár labbað af hátíðarsvæðinu tímanlega á laugardagskvöldinu til að ná á hól rétt hjá heimili okkar og sest þar niður til að horfa á flugeldasýninguna. Af öllu sem gert er þessa helgi þá held ég bara að þessi stund á tilviljanakenndum hól með börnunum mínum sé besta minningin frá Ljósanótt.
Hefur skapast hefð í tengslum við Ljósanótt, eitthvað sem þú gerir alltaf?
Það er kannski helst það sem ég nefni hér að ofan, að horfa á flugeldasýninguna fjarri mannmergðinni með börnunum mínum. Annars höfum við vinkonurnar yfirleitt farið á tónleika á föstudagskvöldinu og það verður engin breyting á þessa Ljósanótt.
Tryggvi Þór Bragason, leiðsögumaður og verkefnastjóri, fór á flug í sumarfríinu í orðsins fyllstu merkingu og toppaði það með því að skella sér í loftbelg yfir sveitir Póllands. Hann flaug líka til Tene en náði sér niður á jörðina í sumar með göngum um Reykjanesið og góðum tímum í Borgarfirði.
Hvernig varðir þú sumarfríinu?
Sumarfríið var tekið í nokkrum pörtum. Í byrjun sumars fórum við hjónin í viku boðsferð til Póllands sem var alveg einstakt. Við vorum þrjá daga í Varsjá og fjóra daga í sveitum Póllands og okkur leið eins og hefðarfólki; móttökurnar voru þannig. Þar gerðum við líka eitthvað sem ég hélt að ég myndi ekki gera, en það var að fara í loftbelg. Farið var í 1200 metra hæð í 1,5 klst. flugferð, sem kom skemmtilega á óvart.
Í júlí var farið með fjölskylduna, börn, barnabörn og tengdason í tíu daga ferð til Tenerife. Þvílíkur gæðatími sem það var, dýragarður, vatnsrennibrautagarður, ströndin, sundlaugin og bara að njóta þess að vera saman. Hápunktur sumarsins.
Þá var líka eytt nokkrum dögum á Grjóti í Borgarfirði, bæði til að dytta að húsakosti og líka til að njóta með vinum.
Miðvikudagsgöngurnar með Garðarssystrum um Reykjanesið hittu í mark hjá okkur hjónum og þá sérstaklega ein gangan, en ekki má segja frá því hvað var gert þar að beiðni leiðsögusystranna. Svo er smá sumarfrí rétt fyrir Ljósanótt þar sem við hjónin fórum í aðra boðsferð, en þá til Vancouver í Kanada.
Áttu þér uppáhaldsstað til að heimsækja á Íslandi?
Þar sem ég starfa m.a. sem leiðsögumaður hefur maður kannski þau forréttindi að fá að heimsækja hina ýmsu staði. Ferðir í Landmannalaugar eru alltaf geggjaðar. Bæði staðir sem stoppað er á sem og góður göngutúr um Landmannalaugar. Maður gæti haldið að maður sé staddur í litabók á þessum stað.
Einnig eru fjórhjólaferðir upp í Fljótshlíðina einstaklega skemmtilegar. Þessar ferðir eru farnar með Óbyggðaferðum sem gerir þetta að frábærri upplifun.
Verkefnalisti vetrarins?
Vonandi fótboltaferð á Emirates í London. Eitthvað „gæderí“ og einhverjar fleiri utanlandsferðir og jú, ekki má gleyma pólitíkinni þar sem ég er í atvinnu- og hafnarráði.
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
Ég er alveg heillaður og held að ég hafi tekið þátt í þeim öllum. Passa að setja Ljósanótt inn á dagatalið um leið og það er uppfært þannig að ekkert annað þvælist inn á þessa daga.
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt?
Heimatónleikar og árgangagangan (þar sem ég tilheyri þeim einstaka árgangi 1967) eru alltaf á „to do“-listanum en svo er maður bara líflegur þátttakandi og sækir sýningar og er bara á röltinu um bæinn þessa daga.
Hver er besta minningin frá Ljósanótt?
Mig langar bara að segja fyrsta Ljósanóttin, ég man mjög vel eftir henni og svo er bara frábært að sjá hvað þetta hefur stækkað og dafnað og já, líka hvað það koma margir að þessu.
Hefur skapast hefð í tengslum við Ljósanótt, eitthvað sem þú gerir alltaf?
Meðan foreldrar mínir voru á lífi þá vorum við alltaf með finnska kjötsúpu á laugardeginum en eftir að þau kvöddu þennan heim höfum við breytt aðeins og reynum að troða okkur inn á einhverja sem sjá aumur á okkur. Það sem ég hef alltaf gert er árgangagangan, gaman að geta hitt krakkana úr kærleiksárganginum allavega einu sinni á ári.
Það hefur verið nóg um að vera hjá Grétari Má Garðarssyni og fjölskyldu á liðnu sumri. Sumarfríið var fullt af ferðalögum, bæði innanlands sem erlendis, ásamt því að stór áfangamarkmið náðust á golfvellinum. Nú tekur haustið við og fram undan er Ljósanótt, sem á sér stóran sess í hjarta Grétars.
Grétar þarf að vera talsvert á ferðinni starfa sinna vegna sem forstöðumaður hjá Isavia þar sem hann sinnir flugfélögum og markaðsmálum.
„Við fjölskyldan byrjuðum sumarið á að fagna 75 ára afmæli mömmu minnar í Toscana á Ítalíu í ógleymanlegri ferð. Þá stukkum við Sonja eiginkona mín til Toronto á tónleika með Post Malone. Við fórum í útilegur, spiluðum golf, fórum með strákana í langa helgarferð til Chicago og enduðum svo sumarfríið á Spáni í Los Alcazares í húsi tengdaforeldra minna. Alveg frábær staður til að hlaða batteríin fyrir komandi haust og vetur.“
Grétar segir að það sem hafi staðið upp úr í sumar hafi klárlega verið að ná loksins, eftir margra ára vinnu, að fá Sonju til að draga fram golfsettið að nýju. Nú geta þau spilað golf saman á sumrin og skíðað á veturna, sem honum finnst einfaldlega ekki geta verið betra.
Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar?
Við Sonja getum ekki alltaf planað langt fram í tímann vegna vinnu og því komu þrjár af þessum fjórum utanlandsferðum óvænt inn en okkur finnst skyndiákvarðanir að mörgu leyti bestar.
Áttu þér uppáhaldsstað til að heimsækja innanlands?
Grétar er að hálfu ættaður að norðan og hefur eytt mörgum stundum í Kelduhverfinu. Ásbyrgi stendur hjarta hans næst og er í hans augum fallegasti staður landsins. Þá nefnir hann einnig að alltaf sé gaman að heimsækja Snæfellsnesið.
Er eitthvað sérstakt á verkefnalistanum í vetur?
Halda áfram að rækta líkama og sál og búa til minningar með fjölskyldunni. Einnig ætlum við að skíða eins mikið og við getum bæði hérlendis og erlendis með fjölskyldu og vinum.
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
Ljósanótt er frábær viðburður sem hefur fastan stað í tilveru okkar sem búum hérna á svæðinu. Það er alltaf stemming sem myndast í kringum Ljósanótt og gaman að sjá hvað er margt í boði fyrir fjölskyldur.
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt?
Fastir liðir eru náttúrulega að fara í tívolítækin og hoppukastalana með strákana, kíkja á nokkrar listasýningar og kjötsúputónleikana. Þá er hápunkturinn á laugardagskvöldinu þegar Ljósanótt nær hámarki.
Hver er besta minningin þín frá Ljósanótt?
Fyrsta Ljósanóttin þegar ljósin á Berginu voru kveikt. Ég man að það fannst mér ótrúlega fallegt og magnað að sjá og upplifa.
Hefur skapast hefð í tengslum við Ljósanótt, eitthvað sem þú gerir alltaf?
Tengdaforeldrar mínir hafa alltaf boðið fjölskyldunni til sín á laugardagskvöldið í mat og síðan förum við öll saman niður í bæ. Þá er það ómissandi þáttur af Ljósanótt þegar amma Jóna fer með barnabörnin og kaupir eitthvað dót sem gefur frá sér óhemju skemmtileg hljóð og allir gleðjast.
Birgitta Rún Birgisdóttir er ein af mörgum sem hafa fallið fyrir golfíþróttinni en hún og kærasti hennar eru nýbyrjuð í íþróttinni. Unga konan gerði sér síðan lítið fyrir og fór holu í höggi í sumar. Birgitta er virk á Ljósanótt þar sem hún sækir viðburði og nýtur hátíðarinnar. Sumarið hefur verið skemmtilegt hjá henni í golfi, göngum, veiði og fleiru.
Hvernig varðir þú sumarfríinu?
Þrátt fyrir blautt sumar hér á suðvestur horninu þá er það búið að vera dásamlegt hjá okkur fjölskyldunni. Við Toni kærastinn minn byrjuðum að læra golf svo við höfum reynt að koma því sem mest fyrir í sumar. Við fórum líka að veiða með fjölskyldunni og nutum þess að vera í sveitinni okkar í Grímsnesi. Fótbolta- og körfuboltamót hjá strákunum okkar voru stór partur af sumrinu og ég endaaði sumarfríið svo á frábærri ferð með Fjallagellunum mínum á Borgarfjörð eystri þar sem við áttum skemmtilega daga og gengum m.a. að Stórurð í grenjandi rigningu. Ég held að lærdómur sumarsins sé klárlega sá að í góðum félagsskap skiptir veðrið engu máli.
Hvað stóð upp úr?
Klárlega allir golfhringirnir og veiðiferðirnar með fólkinu mínu.
Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar?
Ætli ég verði ekki að nefna það að ég fór holu í höggi um verslunarmannahelgina þegar ég fór í golf með pabba og strákunum mínum. Ég sá kúluna ekki fara ofan í holuna og leitaði að henni í dágóða stund eða þangað til Tómas sonur minn kallaði á mig og benti mér á að hún væri ofan í holunni.
Áttu þér uppáhaldsstað til að heimsækja innanlands?
Sumarbústaðurinn sem foreldrar mínir eiga hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá okkur strákunum mínum. Annars er fátt sem toppar útiveru í fallegri íslenskri náttúru á góðum sumardegi, óháð staðsetningu.
Er eitthvað sérstakt á verkefnalistanum í vetur?
Það er yfirleitt nóg að gera hjá mér á veturna en þennan vetur ætla ég að gefa mér tíma í að æfa mig í golfi og mæta vonandi með aðeins betri færni í Leiruna næsta vor.
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
Við íbúar Reykjanesbæjar megum vera stolt af þeim menningarhátíðum sem bæjarfélagið okkar stendur fyrir og hef ég alltaf haft mjög gaman af Ljósanótt. Mér finnst sérstaklega skemmtilegt að sjá hvað lifnar yfir öllu bæjarfélaginu og allir tilbúnir að taka höndum saman svo hátíðin verði sem glæsilegust.
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt?
Ég reyni yfirleitt að koma við á sem flestum listasýningum og mun ég halda því áfram. Ég stefni svo á að hitta vinkonur mínar, fá mér kjötsúpu frá Skólamat, mæta í árgangagönguna og á kvöldtónleikana á laugardagskvöldinu með fólkinu mínu.
Hver er besta minningin þín frá Ljósanótt?
Ég á erfitt með að nefna eina sérstaka minningu því ég á svo margar góðar frá þessari helgi en ætli það sé samt ekki fyrir ca. 4 árum síðan, þegar við fengum bongóblíðu á laugardeginum. Ég held að ég hafi aldrei séð jafn mikið af fólki í miðbæ Reykjanesbæjar og það verður eitthvað svo skemmtileg stemning þegar veðurguðirnir eru með okkur í liði.
Hefur skapast hefð í tengslum við Ljósanótt, eitthvað sem þú gerir alltaf?
Ég reyni alltaf að komast yfir sem mest af dagskránni á laugardeginum og fer á kvöldtónleikana með fjölskyldunni en það hefur líka verið skemmtileg hefð að fara á röltið á opnun listasýninga á fimmtudagskvöldinu með góðum vinkonum og starta þannig frábærri helgi.
María Guðmundsdóttir og Unnar Ragnarsson maður hennar, eigendur HUG verktaka, eru ekki bara að smíða hús og íbúðir. Þau hafa verið dugleg að sækja sumarbústað sinn í Bláskógabyggð, þau fóru austur í blíðuna í júlí og svo kynntust þau nýlega golfíþróttinni sem heillaði þau upp úr skónum.
Hvernig varðir þú sumarfríinu?
Við hjónin erum búin að eignast nýtt og skemmtilegt áhugamál sem er golfið.  Við höfum stundað það af kappi í sumar þegar færi hefur gefist.  Við fórum líka í skemmtilegt ferðalag um Austfirðina í veðurblíðunni sem var þar og auðvitað nýttum við tækifærið til að kíkja á golfvellina.  Við náðum þarna skemmtilegri stund með systur minni og mági.
Hvað stóð upp úr?
Við verjum miklu af frítímanum í sveitasælunni okkar í Bláskógabyggð en þar höfum við byggt notalegt athvarf þar sem okkur líður vel. Í sveitinni er afskaplega gott samfélag og gott fólk í kringum okkur og alltaf eitthvað skemmtilegt í gangi.
Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar?
Það sem kom mér skemmtilega á óvart var hvað golfið náði að heilla mig. Það er næstum sama hvernig viðrar, alltaf erum við til í að fara einn hring. Við fórum líka alveg óvænt vestur til Suðureyrar á æskuslóðir tengdapabba og nutum þar einleikjahátíðarinnar Act alone með góðum vinum.
Áttu þér uppáhaldsstað til að heimsækja innanlands?
Fyrir nokkrum árum fórum við Unnar í ógleymanlega gönguferð um Borgarfjörð eystri og Stórurð heillaði okkur.  Við erum ákveðin í að fara þangað aftur. Einnig fórum við í skemmtilega göngu í Jökulfjörðunum og Hesteyri er staður sem við munum heimsækja aftur.
Er eitthvað sérstakt á verkefnalistanum í vetur?
Eitt stærsta hlutverkið mitt er að ég er amma átta yndislegra barna og þykir mér dýrmætt að fá að njóta samveru með þeim. Við Unnar höfum lagt mikið upp úr því að eiga gæðastundir saman í sveitasælunni og njóta hvers dags eins og hann kemur.
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
Ljósanótt er mjög skemmtileg bæjarhátíð og þar hittir maður mikið af fólki sem maður hittir sjaldan annars. Ljósanótt er í raun miðpunktur menningarlífs í Reykjanesbæ.
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt?
Við höfum alltaf reynt að fara í bæinn á fimmtudagskvöldinu og skoða hinar fjölbreyttu listsýningar sem í boði eru og njóta mannlífsins og stemningarinnar.  Einnig finnst mér árgangagangan skemmtileg hefð sem gaman er að taka þátt í.
Atli Geir Júlíusson, framkvæmdastjóri Verkfræðistofu Suðurnesja, varði sumarfríinu í faðmi fjölskyldunnar. Atli Geir er Njarðvíkingur en hefur búið lengst af í Grindavík og er einn af „brottfluttum“ íbúum Grindavíkur eftir goslætin þar við bæinn.
Hvernig varðir þú sumarfríinu?
Ferðalög erlendis og góðar helgar í búðstaðnum okkar á Flúðum. Hefði reyndar viljað eyða meiri og betri tíma „heima“ í Grindavík en það bíður vonandi betri tíma. Ég notaði líka tímann til að hlaupa þar sem ég hljóp hálft maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu og stefni á að taka þátt í Grindavík Ultra og fleiri hlaupum núna í lok sumars og í haust.
Hvað stóð upp úr?
Ferð með fjölskyldunni til Króatíu stóð upp úr, frábær ferð í alla staði.
Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar?
Tónleikar Kaleo á Þingvöllum, en þangað fór ég með konunni og mömmu og pabba. Veðrið var eins og best verður á kosið, frábær tónlist og góður félagsskapur. Þá kom sólmyrkvinn mér skemmtilega á óvart, magnað náttúrufyrirbæri.
Áttu þér uppáhaldsstað til að heimsækja innanlands?
Stykkishólmur, fer alls ekki nógu oft þangað en Hólmurinn heillar.
Er eitthvað sérstakt á verkefnalistanum í vetur?
Við hjónakornin ætlum til Tenerife í eina viku en ég er líklega einn af fáum Íslendingum sem hafa ekki komið til eyjunnar. Svo mun maður fylgja börnunum eftir í því sem þau taka sér fyrir hendur, syninum í körfunni og svo dótturinni í leikhúsinu en hún ætlar að stíga á stóra svið Þjóðleikhússins og fara með hlutverk í jólasýningu Þjóðleikhússins, „Hetjur hafsins“, sem verður frumsýnd á annan í jólum.
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
Mér finnst Ljósanótt stórskemmtileg bæjarhátíð, ein af þessum stóru og hefur sinn sjarma. Tímasetningin á henni finnst mér góð því hún svona slúttar sumrinu og gefur tóninn inn í haustið og rútínuna.
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt?
Ég stefni á að mæta á gospeltónleika hjá Kór Njarðvíkurkirkju á miðvikudeginum og í kjötsúpuveislu Skólamatar á föstudagskvöld. Svo tekur maður árlega röltið niður Hafnargötuna til að kíkja í verslanir og skoða þær sýningar sem eru í boði. Ég hef líka undanfarin ár mætt í árgangagönguna sem mér finnst einstaklega skemmtileg hefð og svo er það að sjálfsögðu hápunkturinn að njóta tónleikanna og flugeldasýningarinnar á laugardeginum með fjölskyldunni. Mér finnst líka líklegt að ég eigi eftir að kaupa töluvert af miðum í tívolítæki fyrir dótturina.
Hver er besta minningin þín frá Ljósanótt?
Erfitt að velja einhverja eina, en það sem stendur alltaf upp úr er samvera með fjölskyldu og vinum.
Hefur skapast hefð í tengslum við Ljósanótt, eitthvað sem þú gerir alltaf?
Matur hjá mömmu og pabba, yfirleitt súpa.
Hámundur Örn Helgason, framkvæmdastjóri UMFN er eins og starfstitillinn gefur til kynna mikill Njarðvíkingur og fylgir sínum liðum í gegnum súrt og sætt. Það verður stórleikur hjá karlaliði félagsins á laugardegi á Ljósanótt þar sem mikið er í húfi. Kappinn fór með fjölskyldu um landið í sumar og á Ljósanótt ráða börnin í fjölskyldunni.
Hvernig varðir þú sumarfríinu?
Við ferðuðumst innanlands í sumar og vorum mest fyrir vestan, meðal annars á Ísafirði. Við fórum einnig í fimm daga í fjölskylduhús á Látrum í Aðalvík. Þá fórum við norður á Blönduós á vel heppnaða bæjarhátíð, Húnavöku. Annars nýttum við bara þá sólardaga sem gáfust hér fyrir sunnan.
Hvað stóð upp úr?
Vikan í Aðalvík stóð klárlega upp úr. Við reynum að fara þangað á hverju ári og hún stendur alltaf fyrir sínu. Það er svo gott að kúpla sig alveg frá öllum tækjum og áreiti.
Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar?
Það var líklega sólardagurinn 15. ágúst, þegar við ákváðum að skella okkur með stelpurnar okkar í rúnt um Suðurlandið. Við fórum í fjölskyldugarðinn Slakka og svo í Fontana á Laugarvatni. Fontana er nýuppgert baðlón sem er virkilega vel heppnað og kom skemmtilega á óvart.
Áttu þér uppáhalds stað til að heimsækja innanlands?
Já, það er Aðalvík, ekki spurning.
Er eitthvað sérstakt á verkefnalistanum í vetur?
Það er alltaf nóg að gera. Yngri stelpan er að byrja í leikskóla og allt að detta í ágætis rútínu. Ætli ég finni mér ekki eitthvað skemmtilegt verkefni heima fyrir ef gefst einhver tími til þess utan vinnu.
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
Mér finnst Ljósanótt frábær. En eins og með allar þessar bæjarhátíðir þá skiptir veðrið allt of miklu máli.
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt?
Það er stórleikur á JBÓ-vellinum klukkan tvö á laugardeginum sem ég hlakka mest til. Ég hvet alla Njarðvíkinga til að mæta í þá veislu! Svo eru það auðvitað Kjötsúpan og flugeldasýningin. Annað er kannski óákveðið, ég leyfi börnunum að ráða ferðinni.
Hver er besta minningin þín frá Ljósanótt?
Ég á reyndar mjög góðar minningar frá Ljósanótt 2019. Þá fórum við á frábæra útitónleika á laugardagskvöldinu og nutum óvenju glæsilegrar flugeldasýningar. Seinna um nóttina missti Anna, konan mín, vatnið og tveimur sólarhringum síðar eignuðumst við okkar fyrsta barn. Ljósanótt það árið er því ansi eftirminnileg!
Hefur skapast hefð í tengslum við Ljósanótt, eitthvað sem þú gerir alltaf?
Nei, ég hef nefnilega haft þetta mjög opið. Það er mikið í gangi og ekkert mál að breyta til. Það hefur þó verið fastur liður að Njarðvík spili fótboltaleik þessa helgi og af því missi ég ekki.
Gunnar Jónsson, elsti íbúi Reykjanesbæjar, er 103 ára og hann lét sig ekki vanta í kjötsúpuna frá Skólamat sem boðið var uppá í kvöld við Tjarnargötutorg í Reykjanesbæ í tilefni Ljósanætur. Mjög góð mæting var í súpuveisluna og svo fór að súpan kláraðist að lokum.
Á sviðinu var boðið upp á dans og tónlist. Ljósmyndari Víkurfrétta smellti af meðfylgjandi myndum.
Hundruð gesta mættu saman og skemmtu sér konunglega í kvöld þegar slegið var upp brekkusöng í Njarðvík. Dagskráin fór fram á milli klukkan 20:00 og 21:00 í brekkunni við Kambinn, þar sem gott veður og létt yfirbragð léku við viðstadda.
Trúbadorinn Guðlaugur Ómar leiddi sönginn af sinni alkunnu snilld, vopnaður gítarnum. Hann fékk alla til að taka undir í þekktum dægurlögum og hitaði raddbönd viðstaddra í kvöldhúminu. Fjölskyldur og vinahópar komu sér vel fyrir í brekkunni, margir með teppi og útivistarsessur, og nutu samverunnar í frábæru söngviðri.
Mikið verður um dýrðir í Innri-Njarðvík í kvöld, föstudagskvöldið 4. september, þegar slegið verður upp alvöru brekkusöng. Dagskráin hefst klukkan 20:00 og stendur til klukkan 21:00.
Söngskemmtunin fer fram í brekkunni við Kambinn í Innri-Njarðvík, þar sem tilvalið er fyrir fjölskyldur og vini að koma saman, koma sér vel fyrir og taka undir í þekktum textum.
Það er trúbadorinn Guðlaugur Ómar sem mætir með gítarinn og leiðir sönginn af sinni alkunnu snilld. Hann mun tryggja létta stemningu og hita upp raddbönd viðstaddra með úrvali af þekktum dægurlögum.
Íbúar og gestir eru hvattir til að mæta vel klæddir miðað við veður, taka jafnvel með sér teppi eða útivistarsessu og eiga saman notalega og skemmtilega stund í kvöldhúminu.
Útgáfufyrirtækið Geimsteinn heldur upp á hálfrar aldar afmæli á þessu ári. Geimsteinn er nú elsta starfandi útgáfufyrirtæki landsins, en það var stofnað af Rúnari Júlíussyni og fjölskyldu hans vorið 1976. Allt frá upphafi var lagt upp með að grasrótarstarf myndi blómstra hjá fyrirtækinu og að ungir tónlistarmenn fengju þar tækifæri. Sú varð svo sannarlega raunin, en auk margra helstu listamanna þjóðarinnar má nefna að Brimkló gaf út sína fyrstu plötu hjá Geimsteini og Páll Óskar söng þar fyrst inn á plötu í ævintýrum Gylfa Ægissonar.
Í tilefni tímamótanna hefur hópur þekktra listamanna, sem stigu mörg af sínum fyrstu skrefum í Geimsteini, verið ræstur út til að halda sérstaka tónleika að Skólavegi 12. Dagskráin er uppsett þannig að listamennirnir munu bæði flytja sín bestu lög og deila sögum af ferlinum.
Dagskrá afmælistónleikanna:
3. september: Bjartmar Guðlaugsson ríður á vaðið og kallar til Sumarliða, hippann, járnkarlinn og fleiri þekkta karaktera úr sínu auðuga lagasafni.
11. september: Unglingahljómsveitin Pandora rifjar upp gamla takta.
17. september: Sóli Hólm stígur á stokk og rifjar upp feril Gylfa Ægissonar með gamansömum hætti.
24. september: Siggi og Kiddi hjálmur greina frá því hvað þeir voru að grallarast í Geimsteini fyrir ríflega 20 árum.
1. október: Baggalútur fagnar rótum sínum á Skólaveginum og fer yfir sína léttustu spretti.
9. október: Breiðbandið kemur í heimsókn.
15. október: Félagarnir Björgvin Ívar og Valdimar ljúka afmælisröðinni með því að fara yfir heildstæð og helstu verkefni sín.
Listakonan Sigurdís Gunnarsdóttir heldur sína fimmtu einkasýningu, en þá fyrstu á Ljósanótt, á Park-Inn hótelinu í Reykjanesbæ. Sýningin ber heitið Að rótum og hefur ríka tengingu við æskuslóðir hennar í Njarðvík.
Sigurdís á sér fjölbreytta sögu en hún er Njarðvíkingur í húð og hár, fædd í heimahúsi í Grænási þar sem amma hennar, sem var ljósmóðir, tók á móti hennar. Faðir hennar starfaði hjá Loftleiðum og bjó hún því ytra á Bahamaeyjum og í Bandaríkjunum fram á unglingsár. Eftir heimkomuna flutti fjölskyldan aftur í Njarðvík þar sem hún æfði körfubolta og hún átti síðan frumburð sinn í Keflavík. „Ég bjó þar um tíma en flutti síðan búferlum til Akureyrar og síðan til Reykjavíkur þar sem ég bý nú,“ segir Sigurdís en  síðar lá leiðin til Akureyrar og loks Reykjavíkur þar sem hún býr núna.
„Það er eitthvað við staðinn sem maður kemur frá sem fylgir manni alla ævi. Þótt leiðin liggi víða, leitar hugur og hjarta oft aftur að rótunum. Með þessari sýningu finnst mér eins og ég sé að snúa heim — heim til að heimsækja minningarnar og finna tengsl við staðinn og fólkið,“ segir Sigurdís.
Verkin á sýningunnbi eru draumkenndar abstract landslagsmyndir málaðar á árinu 2026 með olíu á striga og við. Sigurdís er með vinnustofu við sjóinn á Eyrarbakka sem gefur hennar endalausan innblástur, en verkin einkennast af kyrrð, hlýju og ró þar sem náttúran leikur stórt hlutverk.
Sigurdís hefur stundað mikið nám síðastliðin 30 ár, meðal annars í Myndlistarskóla Reykjavíkur, Kópavogs og Mosfellsbæjar, auk Central Saint Martin’s í London og kennslu og leiðsögn hjá fjölda listamanna.
Verk hennar hafa verið til sýnis í Gallery Art 67 á Laugavegi, en hægt er að fylgjast með list hennar á Instagram (sigurdis_gunnars) og Facebook (Sigurdis Art).
Árgangagangan, einn ástsælasti hápunktur Ljósanætur, verður á sínum stað laugardaginn 5. september.
Í ár færist mætingarstaður hvers árgangs niður um 20 húsnúmer við Hafnargötu (til dæmis mæta þeir sem fæddir eru 1950 við Hafnargötu 30), en árgangur 2001 og yngri hittist við 88-húsið.
Gangan hefst klukkan 13:30 og endar við aðalsviðið þar sem Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri flytur íbúum kveðju sína, auk þess sem listflugmaðurinn Snorri Bjarnvin Jónsson sýnir listir sínar á lofti yfir svæðinu.
Verkið Magical Sky Iceland / Töfrandi himinn Íslands verður sýnt á Ljósanótt, en um er að ræða áhrifamikið tónverk og kvikmynd sem dregur áhorfendur inn í einstaka veröld íslenskrar náttúru, sólmyrkva og norðurljósa.
Samspil flæðandi hljóma, strengja og stórbrotinna myndskeiða af dimmum vetrarnóttum og víðáttumiklum himni skapar hugleiðslukennda og dýpstu upplifun þar sem áhorfendur skynja tengingu milli lands og innri tilfinninga.
Sýningin fer fram í Bókasafni Reykjanesbæjar í Hljómahöll og er opin föstudaginn 4. september og laugardaginn 5. september, báða daga frá klukkan 15:00 til 17:30.
Íslenska ilmmerkið Arolé heldur sýningu ásamt listakonunni Elísabetu Ásberg á Park Inn by Radisson Keflavík við Hafnargötu 57, þar sem ilmur og myndlist mætast í sameiginlegri upplifun.
Arolé er í eigu og uppbyggingu þeirra Hilmis Ásbergs Björnssonar, Elíasar Uche Elíassonar og Hilmars Goða Hilmarssonar. Þeir hafa unnið saman að þróun merkisins, ilmanna og heildarhugmyndarinnar á bak við Arolé.
Fyrir Hilmi hefur sérstaka þýðingu að kynna Arolé í Keflavík. Hann ber Ásberg-nafnið, sem á sér sterkar rætur á Suðurnesjum, og verður sýningin haldin ásamt frænku hans, listakonunni Elísabetu Ásberg.
„Það er mjög gaman fyrir mig að fá að koma með Arolé til Keflavíkur. Ég er stoltur af tengingunni minni hingað og því að bera Ásberg-nafnið. Að fá svo að gera þetta með Elísabetu og tengja saman hennar list og það sem við þrír höfum verið að byggja upp með Arolé gerir sýninguna sérstaklega persónulega,“ segir Hilmir Ásberg Björnsson.
Arolé hélt sinn fyrsta viðburð á Menningarnótt í Reykjavík, þar sem gestum gafst tækifæri til að kynnast merkinu, prófa ilmina og kaupa þá í forsölu. Viðtökurnar fóru fram úr björtustu væntingum þeirra félaga og margir gestir tryggðu sér ilmina strax í forsölu.
„Við vissum ekki alveg hverju við áttum von á fyrir fyrsta viðburðinn okkar, en viðtökurnar fóru langt fram úr okkar björtustu væntingum. Það var ótrúlega gaman að sjá áhugann, fá fólk til að prófa ilmina og sjá hversu margir vildu tryggja sér þá í forsölu. Það gaf okkur enn meiri trú á því sem við erum að byggja upp með Arolé,“ segja Elías, Hilmar og Hilmir.
Arolé er íslenskt ilmmerki sem vinnur með ilm sem hluta af daglegum stíl og upplifun. Ilmir merkisins eru framleiddir í Grasse í Suður-Frakklandi, sem hefur lengi verið þekkt sem ein helsta miðstöð ilmgerðar í heiminum.
Merkið hefur þróað þrjá einkennisilmi í formi roll-on ilmolíu sem borin er beint á húð. Olíurnar eru húðvænar og koma í ferðavænum umbúðum sem auðvelt er að hafa með sér. Á sýningunni verður hægt að kynnast öllum þremur ilmunum og verða olíurnar jafnframt í forsölu þar.
Arolé hefur einnig þróað reykelsi sem sækja nótur úr hverjum ilmi fyrir sig. Þannig er ilmheimur hverrar lyktar færður yfir í annað form og verður hægt að upplifa bæði ilmolíurnar og reykelsin á sýningunni. Reykelsin verða einnig til sölu þar.
Á sýningunni verður hægt að upplifa ilmi Arolé samhliða verkum Elísabetar. Hugmyndin er að skapa rými þar sem ólík skynfæri vinna saman og þar sem ilmur og myndlist geta kallað fram stemningu, tilfinningar og minningar.
„Okkur langaði að gera eitthvað sem væri meira en hefðbundin vörukynning. Ilmur getur haft mjög sterk áhrif á tilfinningar og minningar og okkur fannst því spennandi að setja hann í samtal við myndlist. Með sýningunni viljum við búa til upplifun þar sem fólk getur bæði skoðað verkin og kynnst ilmheimi Arolé á sama tíma,“ segja Elías, Hilmar og Hilmir.
Elísabet Ásberg hefur um árabil unnið að fjölbreyttri myndlist og skúlptúrgerð og sýnt verk sín bæði hér heima og erlendis. Á sýningunni í Keflavík mætast því tveir ólíkir skapandi heimar – myndlist Elísabetar Ásberg og ilmheimur Arolé – í sameiginlegu rými.
Sýningin verður haldin á Park Inn by Radisson Keflavík, Hafnargötu 57 í Keflavík.
Á Ljósanótt verður Oddfellowhúsið í Keflavík enn á ný opnað gestum bæjarhátíðarinnar og húsið fyllt af list, hönnun, tónlist og góðri stemningu.
Þetta er annað árið sem Oddfellowhúsið er nýtt með þessum hætti á Ljósanótt. Frábærar viðtökur í fyrra hvöttu okkur til að endurtaka leikinn og skapa aftur lifandi vettvang fyrir list og menningu í hjarta hátíðarinnar.
Í ár kemur saman einstaklega fjölbreyttur hópur sýnenda:
Ásmundur Friðriksson – rithöfundur
Dagmar Róbertsdóttir – myndlist
Hendrikka Waage – myndlist og skartgripir
Hlín Reykdal – skartgripir
Jollington Handverk – Eyjólfur Sverrisson – tréhandverk
Katla María Brynjarsdóttir – myndlist
Krósk – Kristín Ósk Halldórsdóttir – fatahönnun
Leirbakaríið – María Kristín Óskarsdóttir – leirlist
Neskja – handgert konfekt
Ragnhildur Jónsdóttir – Jónsdóttir & Co – hönnun
Reynir Valbergsson – myndlist
URÐ – Erla Gísladóttir – íslenskt vörumerki
Við opnun sýningarinnar fimmtudaginn 3. september kl. 17 verður einnig líf og fjör þegar hljómsveitin Krummafótur leikur fyrir gesti.
Oddfellowstúkan Eldey sér um veitingasölu meðan á sýningunni stendur og rennur allur ágóði af veitingasölunni til líknarmála. Þannig sameinast list, samfélag og góðgerðarmál undir einu þaki.
Okkur þykir sérstaklega vænt um að geta opnað þetta frábæra hús fyrir bæjarbúum og gestum Ljósanætur á ný og sýnt hversu skemmtilegur vettvangur Oddfellowhúsið getur verið fyrir menningu og mannlíf.
Við hvetjum fólk til að líta við, hitta listafólkið og hönnuðina og njóta veitinga og stemningar í okkar frábæra húsi.
Oddfellowhúsið í Keflavík – 3.–6. september 2026.
Komdu og upplifðu sköpun, stemningu og samfélag í hjarta bæjarins.
Hljómsveitin Hipsumhaps býður til heimafundar í Höfnum á Ljósanótt þar sem öll þeirra vinsælustu lög verða flutt í notalegu og einstöku umhverfi.
Viðburðurinn fer fram í garðinum að Djúpavogi 1 í Höfnum föstudaginn 4. september.
Garðurinn verður opnaður klukkan 19:00, tónleikarnir hefjast klukkan 20:00 og er áætlað að þeim ljúki um 21:30.
Miðasala á tónleikana fer fram á tix.is.
Listamaðurinn og presturinn Guðmundur Karl Brynjarsson býður upp á fjölbreytta og áhugaverða dagskrá á Ljósanótt í ár undir yfirskriftinni Vitin fimm og minningarnar. Dagskráin fer fram í Kirkjulundi og Keflavíkurkirkju og samanstendur af málverkasýningu ásamt sérstakri helgistund.
Guðmundur Karl hefur þjónað sem prestur í þrjá áratugi, lengst af í Kópavogi. Hann hefur dundað sér við myndlist frá unga aldri en á síðustu árum hefur listin leitað meira og meira á huga hans. Fyrir tveimur árum dvaldi hann í Flórens á Ítalíu þar sem hann stundaði nám í olíumálun.
Verkin sem sýnd verða í Kirkjulundi eru að hluta til máluð í náminu á Ítalíu, en önnur tengjast æskuslóðunum í Keflavík og töfrum minninganna sem breyta hversdeginum í ævintýri. Guðmundur Karl sýndi einnig á Ljósanótt í fyrra og var afar ánægður með viðtökurnar.
„Það var virkilega gaman og ný reynsla sem kom pínu á óvart. Ég er vanur því að koma fram fyrir fólk og tala og svoleiðis, en gagnvart því að sýna myndirnar sínar verður maður pínu feiminn. En þarna var stöðugt rennerí af skemmtilegu fólki, gömlum sveitungum og öðrum sem var gaman að hitta og spjalla við,“ segir Guðmundur Karl.
Helgistund í Keflavíkurkirkju
sunnudagskvöldið 6. september kl. 20:00:
Sýningunni lýkur með dagskrá sem ber sömu yfirskrift, Vitin fimm og minningarnar. Dagskráin er í umsjón Guðmundar Karls og hljómsveitarinnar Þrír englar og þreyttir hestar.
Hljómsveitina skipa að þessu sinni þau Bergþór Haukdal Jónasson, Birta Sigurjónsdóttir, Henning Emil Magnússon, Jón Ólafur Erlendsson og Örn Úlfar Sævarsson. Sveitin hefur getið sér gott orð fyrir flutning á lögum Bob Dylan.
Dagskrá og opnunartímar
Málverkasýning í Kirkjulundi:
Fimmtudagur 3. september:
Kl. 17:00–22:00
Föstudagur 4. september:
Kl. 17:00–20:00
Laugardagur 5. september:
Kl. 14:30–18:0
Sunnudagur 6. september:
Kl. 13:00–16:00
Skólamatur býður gestum Ljósanætur upp á hina hefðbundnu og gómsætu íslensku kjötsúpu við Tjarnargötu 12 í Keflavík. Dagskráin hefst með komu Skólamatarlestarinnar klukkan 18:00, en samhliða súpueldhúsinu verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá á Kjötsúpusviðinu í Skrúðgarðinum.
Á sviðinu stíga á stokk Skólamatarlestin, DansKompaní, Ungleikhúsið og Föruneytið, auk þess sem heimsmeistarar verða heiðraðir. Arnór Sindri Sölvason stýrir dagskránni sem kynnir. Viðburðurinn fer fram föstudaginn 4. september á milli klukkan 18:00 og 20:00 (kjötsúpan borin fram til kl. 19:30).
Hún er aðeins 15 ára gömul, nemandi í Stapaskóla og þann 1. júní síðastliðinn gaf hún út heila bókaseríu,  þrjár enskar skáldsögur í einu. Ada Hafliðadóttir er nafn sem vert er að leggja á minnið en hún fetar nú sín fyrstu skref sem sjálfstætt starfandi rithöfundur. Bækur hennar, Solved By You, Consumed By You og Hidden By You, mynda saman seríuna Beyond The Field. Sögurnar hafa vakið mikla athygli og ein þeirra náði meðal annars inn á topp þrjú í handritakeppni Storytel eftir að Ada þýddi fyrstu bókina yfir á íslensku.
Blaðamaður Víkurfrétta settist niður með þessum efnilega rithöfundi á Bókasafni Reykjanesbæjar til að ræða bækurnar, sköpunargleðina og það að skrifa á erlendri tungu samhliða skóla.
Hugmyndirnar normalísera nútímavandamál
Ada segir að áhuginn á ritlistinni hafi fylgt henni lengi en hún byrjaði af alvöru að láta blekið flæða undir lok ársins 2024.
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á að lesa. Því eldri sem ég varð, því meira fór mig að langa til að prófa að skrifa mína eigin bók. Mér fannst svo mikill áhugi í því að segja sögur sem mér duttu í hug. Ég leyfði starfsfólki í skólanum að lesa það sem ég var með og fékk svo góð viðbrögð að ég ákvað bara að slá til og gefa hana út,“ segir Ada brosandi.
— En um hvað fjalla þessar þrjár bækur?
„Þetta eru nútímarómantískar sögur, svona nýrómantík. Bækurnar þrjár mynda eina seríu þar sem við fylgjumst með sama vinahópnum, en hver bók einblínir á ólíka karaktera. Þetta snýst í grunninn um að normalísera og segja frá krökkum sem eru að glíma við nútímavandamál eins og kvíða og erfiðleika innan vinahópsins eða í skólanum. Sem einstaklingur sem hefur gengið í gegnum slíkt þá langaði mig að segja svolítið frá því. Þetta er ekki beint mín saga, en ég kannast við þetta og vildi að fólk gæti tengt við karakterana.“
Betra að tjá sig á ensku
Það vekur athygli að Ada skrifar sögur sínar á ensku. Aðspurð segir hún það eiga sér eðlilegar skýringar.
„Ég hef alltaf haft meiri áhuga á að lesa enskar bækur og mér fannst sögurnar mínar hreinlega meika meira sens á ensku. Svo er ég líka mjög vön því að tala ensku heima, til dæmis við frænku mína sem er að læra íslensku en er ekki alveg komin þangað. Mig langaði að hún gæti lesið bókina og eins á ég fullt af vinkonum erlendis sem geta þá notið þeirra líka.“
Það kom Ödu því skemmtilega á óvart þegar skrifstofustjórinn í skólanum benti henni á handritakeppni Storytel fyrir ungmenni á aldrinum 12 til 17 ára. Til þess að taka þátt þurfti handritið að vera á íslensku.
„Mamma og stjúppabbi sögðu bara: „Jájá heyrðu, þú tekur þátt í þessu og sleppir ekkert þessu tækifæri“. Þannig að ég settist niður og þýddi Solved By You yfir á íslensku. Það var mjög sérstakt því það er ekki hægt að beinþýða allt og ég þurfti oft að orða hlutina öðruvísi, en mér fannst það skemmtilegt. Svo fékk ég þær fréttir að sagan hefði lent í einu af þremur efstu sætunum. Mér fannst það svo klikkað að ég trúði því varla sjálf!“
Skrifað í skólastofunni og inni á herbergi
Ada fer hratt yfir sögu þegar innblásturinn lætur á sér kræla. Hún segir það taka um einn til tvo mánuði að móta hugmyndina og svo tvo til þrjá mánuði að skrifa hverja bók. En hvenær gefst tími til þess að skrifa heila bókaseríu á miðju skólaári?
„Skólinn minn, Stapaskóli, er ógeðslega næs. Þegar ég er búin með verkefnin mín og hef lítið að gera þá leyfa kennararnir mér stundum að skrifa í tíma og ég er mjög þakklát fyrir það. Svo sér fólk mig ógeðslega oft bara með tölvuna úti um allt. Annars er ég bara heima inni í herbergi að skrifa í þrjá tíma í senn.“
Hún nýtur líka dyggs stuðnings vinkvenna sinna sem hún fær til að lesa yfir fyrstu uppköstin og gefa sér hugmyndir. „Fyrsta bókin breyttist ógeðslega mikið frá fyrsta eintaki yfir í það síðasta. Vinahópurinn minn hefur sýnt mér rosalega mikinn stuðning og umhyggju. Ég gæti ekki beðið um betri vini.“
Enginn bílskúr fullur af kössum
Bækurnar þrjár eru sjálfsútgefnar í gegnum útgáfukerfi Amazon (KDP). Margir gætu haldið að slíku fylgdi mikill kostnaður og geymsluvesen, en tæknin hefur breytt miklu fyrir unga höfunda.
„Það kostar mig í rauninni ekki neitt að láta prenta bækurnar, það kostar bara ef ég vil fá eintak sjálf,“ útskýrir Ada. „Bækurnar eru einfaldlega prentaðar jafnóðum og fólk kaupir þær. Þannig að ég er ekki með fullan bílskúr af kössum til að selja!“
Ada stefnir ótrauð á að halda áfram á rithöfundabrautinni og er strax byrjuð að vinna að nýrri bók. Þótt rómantíkin sé hennar sterkasta hlið viðurkennir hún að spennusaga eða leyndardómssögur (mystery) hafi kraumað í huganum.
— Hvar er hægt að nálgast bækurnar?
Fyrir þá sem vilja kynna sér verk þessa efnilega rithöfundar úr Reykjanesbæ eru bækurnar fáanlegar á eftirfarandi stöðum:
Á Amazon: Hægt er að leita að nöfnum bókanna (Solved By You, Consumed By You, Hidden By You) ásamt nafni Ödu. Fáanlegar bæði sem rafbækur og kiljur.
Á bókasöfnum í Reykjanesbæ: Bækurnar hafa verið teknar inn á Aðalsafn Bókasafns Reykjanesbæjar og í Stapasafn í Stapaskóla, þar sem hægt er að nálgast útprentuð eintök.
Byggðasafn Reykjanesbæjar býður upp á létta og fræðandi arkitektúrgöngu um elsta hluta Keflavíkur sunnudaginn 6. september frá klukkan 11:00 til 12:30.
Jón Stefán Einarsson arkitekt leiðir gönguna sem hefst við Duus safnahús og liggur um Vallargötu og Hafnargötu.
Þátttakendur fá tækifæri til að lesa sögu bæjarins úr húsunum, götunum og smáatriðum í umhverfinu.
Inn í frásögnina fléttast skemmtilegar sögur af fólki og bæjarlífi, svo sem af bíói í gömlu salthúsi, húsum byggðum úr Jamestown-timbri og brunninum sem gaf Brunnstíg nafn sitt. Þátttaka í göngunni er ókeypis og eru allir hjartanlega velkomnir.
Ný ljósmyndasýning verður opnuð á Ljósanótt þar sem staldrað er við helstu vörður bílvæðingar á Suðurnesjum og litið til skemmtilegra augnablika sögunnar.
Sýningin dregur upp leikræna og fræðandi mynd af þeim miklu breytingum sem urðu á samgöngum, atvinnulífi og ferðalögum frá því að fyrsta bílferðin var farin frá Hafnarfirði til Keflavíkur árið 1913.
Sýningaropnunin fer fram í Duus safnhúsum fimmtudaginn 3. september á milli klukkan 18:00 og 20:00 og eru allir velkomnir.
Björgin, geðræktarmiðstöð Suðurnesja, býður gestum og gangandi á listakaffihús á Ljósanótt þar sem lögð verður áhersla á samveru, virkni og skapandi umhverfi. Á staðnum verður fjölbreytt handverk og vörur sem notendur Bjargarinnar hafa sjálfir skapað til sölu, ásamt því að boðið verður upp á ýmislegt góðgæti. Markmiðið er að opna dyrnar fyrir samfélaginu, sýna sköpunarkraft notenda og bjóða öllum upp á skemmtilega og hlýlega stund.
Listakaffihúsið verður opið í húsnæði Bjargarinnar við Suðurgötu í Keflavík á fimmtudaginn 3. september frá klukkan 14:00 til 18:00 og föstudaginn 4. september frá klukkan 12:00 til 16:00.