Lítil sjósókn í apríl vegna hrygningarstopps
Þegar þessi pistill er skrifaður er ég fluttur í nýja húsið mitt í Sandgerði og falleg kvöldsólin blasir við út um gluggana á húsinu. Mikil blíða var þennan dag sem þessi pistill er skrifaður og þó að svo vilji til að það hafi verið sléttur sjór voru fáir bátar á sjó, enda er hrygningarstoppið enn þá í gangi og þeir bátar sem hafa verið á sjó, og þá aðallega frá Sandgerði, hafa farið töluvert langt út til þess að komast út úr þeim svæðum sem hrygningarstoppið nær til.
Sjósókn hjá bátunum í apríl hefur verið frekar lítil, að mestu út af stoppinu, en ef við lítum að smá aflatölum þá hafa Margrét GK og Margrét GK báðir verið að róa í apríl. Margrét GK 33 er línubáturinn sem Nesfiskur gerir út og mælist um 21 tonn, en báturinn hefur landað 26 tonnum í 3 róðrum og mest 14,5 tonnum.
Margrét GK 27 er 160 tonna dragnótabátur sem var að hefja róðra frá Sandgerði núna í apríl, en báturinn var búinn að liggja við bryggju í Sandgerði síðan í byrjun desember 2025, en ýmsar breytingar og viðhald var unnið í bátnum af Vélsmiðju Sandgerðis. Báturinn er búinn að landa 23 tonnum í 3 róðrum og mest 17,5 tonnum í einni löndun. Uppistaðan í aflanum hjá bátnum var ýsa og síðan þorskur.
Þessi bátur á sér orðið nokkuð langa útgerðarsögu á Suðurnesjum, en báturinn var lengi á Snæfellsnesinu og hét þar Egill Halldórsson SH, Egill SH, Ársæll SH og Farsæll SH. Stundaði báturinn þaðan veiðar með trolli, netum, línu, rækju, dragnót og skelfiskveiðar.
Báturinn var keyptur til Grindavíkur árið 2007 og fékk þá nafnið Gulltoppur GK 24. Reyndar landaði báturinn engum afla fyrr en í september 2008, en þá var Stakkavík ehf. í Grindavík orðin eigandi að bátnum og byrjaði hann veiðar með dragnót, og síðan yfir á línu.
Reyndar ekki með beitningavél, heldur var Gulltoppur GK á balalínu, og Gulltoppur GK var á balalínu í ansi langan tíma eða í tæp 10 ár þangað til árið 2018 þegar báturinn var seldur og fékk nafnið Kristbjörg ÁR 11. Þá var línubúnaðurinn tekinn úr bátnum og báturinn settur á dragnót.
Ári seinna var báturinn seldur til Hríseyjar og fékk þar nafnið Ísey EA 40, og þá tók við bátnum skipstjóri sem átti sér mjög langa sögu sem skipstjóri á dagnót og þá aðallega á bátnum Farsæli GK frá Grindavík. En Grétar Þorgeirsson sem var lengi skipstjóri á Farsæli GK tók við Ísey EA og fékk mjög vel á bátnum þann tíma sem hann var með bátinn.
Og öfugt við Farsæl GK, sem landaði að langmestu leyti í Grindavík, Sandgerði og Keflavík, þá landaði Ísey EA ansi víða um landið, hérna fyrir sunnan, á Vestfjörðum og Norðurlandi.
Bátnum var lagt í enda nóvember árið 2022 og lá þá í Hafnarfirði, þangað til að báturinn sem seldur til Kiddó ehf., en eigandi að því fyrirtæki er Siggi Alla, sem er faðir Gylfa Sigurðarsonar fótboltamanns, og þá fékk báturinn nafnið Margrét GK 27.
Báturinn hóf veiðar í janúar árið 2025 og réri allt árið 2025 og er að hefja veiðar núna í apríl á þessu ári. Helst er báturinn að eltast við kola og hefur landað að mestu í Grindavík, Sandgerði og Þorlákshöfn.
Báturinn er íslensk smíði, en hann var smíðaður á Seyðisfirði árið 1976 og hefur reynst mjög vel og fengsæll í gegnum sína tæplega 50 ára útgerðarsögu hérna við land, og miðað við vinnuna sem unnin var í bátnum í Sandgerði núna í vetur þá á þessi bátur nóg eftir.








