Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Pistlar

Jólin á Heiðarbrún
Sunnudagur 11. desember 2022 kl. 13:06

Jólin á Heiðarbrún

Lokaorð Ragnheiðar Elínar Árnadóttur

Það er eitthvað óendanlega jólalegt við húsið okkar á Heiðarbrúninni og dásamleg sú tilhugsun að þar verði jólin haldin þetta árið. Það voru Parísarjól hjá okkur í fyrra, yndisleg í alla staði en auðvitað allt öðruvísi. Í staðinn fyrir að komast í jólaskapið á tónleikum með Valdimar og Baggalúti voru jólatónleikarnir síðdegis á jóladag í sjálfum Effelturninum, þar sem við horfðum yfir ljósum prýdda borgina undir hátíðlegum jólalögum.

Á Heiðarbrúninni horfum við hins vegar yfir ljósum prýddan kirkjugarðinn og það er ekkert sem kemur mér meira í jólaskap en þegar ég er að steikja rjúpurnar á aðfangadag með tilheyrandi ilmi og fylgjast með traffíkinni í garðinum þegar kveikt er á hverju kertinu eftir öðru. Allt verður svo hátíðlegt, svo friðsælt og notalegt. Svo rétt fyrir jólabaðið fer ég yfir með kerti á leiði foreldra minna og ömmu og afa – og þá mega jólin koma.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ég er ótrúlega íhaldssöm þegar kemur að jólunum og mikið jólabarn. Þegar ég fór að búa sjálf og halda jólin okkar fann ég til gríðarlega mikillar ábyrgðar. Allt varð að vera fullkomið til þess að jólaminningar barnanna minna yrðu fullkomnar eins og mínar jólaminningar voru. Við höfum skapað okkar eigin jólahefðir sem eru sambland af okkar og því sem við ólumst upp með. Piparkökur bakaðar og skrautkökurnar hennar mömmu, allt fullt af mandarínum, kertum og jólaskrauti. Alltaf lifandi jólatré, furan á sínum stað og ekki skreytt fyrr en á Þorláksmessu, þrátt fyrir mikla pressu hin síðustu ár þegar fólk er nánast farið að setja jólatréð upp um mitt sumar! 

Jólin snúast svo auðvitað um matinn, hann má sko alls ekki klikka. Maturinn hennar mömmu var alltaf fullkominn – nema möndlugrauturinn sem mér fannst alltaf vondur og mér dettur alls ekki til hugar að hafa á aðfangadagskvöld. En íhaldssemin í mér kallar samt á möndlugjöf og þess vegna hefur okkar hefð verið að möndlugrauturinn sé í hádeginu á aðfangadag fyrir þá sem það vilja. Það eru svo engin jól án rjúpna – hvort sem það er í Keflavík eða París – og alltaf verð ég jafn stressuð yfir því að sósan klikki. Þetta er háalvarlegt mál – að bera ábyrgðina á jólasósunni er gríðarlega stressandi, rjúpnasósunni sem er bara borðuð einu sinni á ári. Vond sósa = ónýt jól. Sem betur fer hefur þetta ekki klikkað hingað til.

Þetta verða tólftu jólin okkar á Heiðarbrúninni og ætlum við að leggja okkur fram um að þau verði extra fullkomin. Þetta verða síðustu jólin okkar þar, komið að tímamótum og hver veit hvar við höldum næstu jól. Ég veit það eitt að íhaldssama jólabarnið ég mun leggja mig alla fram við að halda í hefðirnar og skapa góðar jólaminningar hvar sem við verðum. Og svo veit ég að Heiðarbrúnin verður í afar góðum höndum þar sem dýrmætar gamlar minningar munu mæta nýjum hefðum. Allt eins og það á að vera.

Mínar allra bestu jólakveðjur til ykkar allra.