Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Pistlar

Jólahald í 150 ár - og sögulok
Miðvikudagur 14. desember 2022 kl. 11:03

Jólahald í 150 ár - og sögulok

Stóru-Vogaskóli 150 ára 2022 - 46. þáttur

Fyrstu áratugi barnaskólans voru miðsvetrarpróf haldin dagana fyrir jól, gjarna á Þorláksmessu og upplestrarfríi einn, tvo daga áður. Fer engum sögum af jólahaldi í skólanum frá þeim tíma. Í desember 1921 var Viktoría Guðmundsdóttir orðin skólastjóri. Þá var eftir sem áður upplestrarfrí 19. og 20. desember og próf 21. og 22. desember. Að loknum prófum sungu börnin jólasálma, kennarinn las jólaguðspjallið og talaði nokkur orð til barnanna áður en þau gengu heim til sín. Síðan var jólaleyfi til 3. janúar 1922.

Árið 1922 skrifar Viktoría í dagbók skólans: 13. desember vantaði sex börn og „þau sem komu voru öll mjög lasin af kvefi og heyrðist varla mannsmál í skólastofunni sökum hósta“ og gaf kennari þá þriggja daga leyfi – upplestrarleyfi. Var vel mætt 19. og 20. desember og næstu tvo daga voru próf. Á þorláksmessu komu börnin í skólann kl. 10. „Las þá kennarinn prófeinkunnir þeirra og afhenti þeim jólakveðju dönsku sunnudagsskólabarnanna. Síðan voru sungnir sálmar, kennari sagði börnunum jólasögu og las jólaguðspjallið. Var svo gefið jólaleyfi til 3. janúar.“

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

3. janúar „komu öll skólabörnin. Var þá sungið, minnst nýbyrjaða ársins, myndir sýndar og lesin saga. Loks var börnunum sett fyrir til næsta dags.“  6. janúar síðdegis kom hjálpræðisherinn í Hafnarfirði og hélt jólatré (jólaball), líkt og fyrri ár. Koma hjálpræðishersins lagðist af fljótlega eftir þetta en áfram bárust kveðjur frá dönskum sunnudagaskólabörnum næstu ár.

Þann 16. desember 1924 voru flest börnin lögst í mislinga. Ákvað formaður skólanefndar og kennarinn að gefa jólafrí þá þegar. „Var svo komandi jóla minnst í skólanum, þennan síðasta kennsludag, á líkan hátt og undanfarna vetur með sálmasöng, lestri og stuttri bæn og börnunum síðan gefið jólaleyfi til 3. janúar 1925.“

Þau 31 ár sem Viktoría sá um kennsluna voru dagarnir kringum jólin á þennan veg en þó eftir aðstæðum. Til dæmis 1926 var ráðgert að prófa að venju 21. og 22. desember „en báða þá daga var veður ill og komu fá börn svo að kennara þótti ekki taka að prófa þau, en á Þorláksmessu ekki unnt að prófa, sökum þess að þann dag skyldi jólatré skreytt þar. Síðasti starfsdagur var því 21. desember, er nokkur börn voru prófuð í kristnum fræðum.“ 1927 var yngri deildin prófuð 21. desember og þann 22. var „munnlegt próf í eldri deild til klukkan 2. Barnastúkufundur eftir það. Í lok fundarins var jólanna minnst á venjulegan hátt. Börnin sungu jólasálma, kennari las upp jólasögu, og talaði nokkur orð til barnanna um hátíðina og þýðingu hennar og las að síðustu jólaguðspjallið. Síðan var gefið jólaleyfi til 3. janúar 1928.“ 

Í 27. þætti segir frá því hve sorglega næsta skólaár byrjaði. Í Brunnastaðaskóla og fyrsta áratug Stóru-Vogaskóla voru litlu jólin helsti viðburður félagslífsins, eins konar árshátíð að mati Hreins Ásgrímssonar. Æfð voru leikrit og atriði sem tengdust ekki endilega jólahaldi. Árið 1982 var til dæmis foreldrasýning og jóladiskó föstudaginn 17. desember og kennarar gengu frá mánudaginn 20. desember og hófst jólaleyfi þeirra eftir það. Nemendur mættu svo eftir jólaleyfi 5. janúar. 

Frá því um 1990 hefur sérstök árshátíð nemenda, þar sem foreldrum er boðið, verið haldin skömmu fyrir páskaleyfi en sérstakar foreldrasýningar á litlu jólum lagðar af. En litlu jólin eru haldin engu að síður, aðallega fyrir nemendur. Bergsveinn skólastjóri stóð fyrir þessum breytingum, einnig því að 6. bekkur fór árlega að æfa og sýna helgileik sem byggður er á jólaguðspjallinu. Hér er mynd af slíkum helgileik í skólanum, líklega 1995. Löng hefð er fyrir jólaföndurdegi á aðventu. Nemendur skreyta skólann; klippa, stimpla, teikna og skrifa á jólakort til nemenda, kennara og síns heimilisfólks. Sérstakir póstkassar eru settir upp við hverja bekkjarstofu. Höfundi þessara þátta hlýnar um hjartarætur er hann minnist handgerðra jólakorta með hlýjum kveðjum frá nemendum. Í desember 2013 var til dæmis skipulagt jólaföndur á átta stöðvum í skólanum með þessum vinnustöðvum: Krukkur og kökubox; smíðastöð; saumastöð; dagatal 2014; matarstöð í salnum – piparkökur og kókoskökur; saumur/sköpun: könglar, vatt, pípuhreinsarar; trölladeig í heimilisfræði; krukkur málaðar. Jólakortaefni var á öllum stöðvum og músastigar, í námsveri jólakort og bíó. Síðasta kennsludag ársins halda umsjónarkennar stofujól, hver með sínum bekk, þar sem lesin er jólasaga og nemendur skiptast á lukkupökkum. Síðan eru litlu jólin þar sem allir koma saman, dansa kringum jólatréð og syngja og jólasveinn kemur í heimsókn. Síðan hefst jólafrí nemenda upp úr hádegi. Þetta fyrirkomulag hefur verið frá því fyrir 1980. 

Frá því fyrir 2000 hafa kennarar og annað starfsfólk – annað en eldhússtarfsfólkið – eldað hangikét með tilheyrandi og átt saman hátíðlega stund eftir hádegi þegar nemendur eru farnir heim, uns þeir sjálfir halda heim í jólafrí. Á myndinni eru Jón Ingi, Guðmundur og Helgi Hólm viðeigandi klæddir við þau störf. 

Löng hefð er fyrir þrettándaskemmtun með grímudansleik en venjulega ekki á vegum skólans heldur félaga eins og Þróttar, kvenfélagsins Fjólu, Lionsklúbbsins Keilis og Björgunarsveitarinnar Skyggnis.

Heimildir:  Dagbók Suðurkotsbarnaskóla 1917 – 1932. Fundagerðabók kennarafunda 1981–1989.  Ræður Hreins Ásgrímssonar. Samtöl við kennara og fyrrum nemendur og reynsla höfundar sem hefur verið viðriðinn skólann frá því árið 2000.

Þar með lýkur þessum þáttum úr sögu skóla í Vatnsleysustrandarhreppi og Sveitarfélaginu Vogum sem birst hafa vikulega í Víkurfréttum og á netinu. Hafið þökk þið sem lásu. Þættirnir verða áfram aðgengilegir – auknir og endurbættir – á storuvogaskoli.is, vogar.is og vf.is.