Bræla og léleg veður byrjuðu júní með látum
Strandveiðibátar sátu að mestu í höfn en dragnótin gefur góðan afla
Þá er júnímánuður kominn í gang en ekki er hægt að segja að hann hafi byrjað með neinum glæsibrag – að minnsta kosti ekki þegar litið er til veðursins. Fyrsta vikan var nánast öll undirlögð af brælu og það þýddi að strandveiðibátar gátu lítið sem ekkert komist á sjó.
Dragnótabátar austur undir Skaftárósa
Þrátt fyrir leiðindaveður hefur dragnótin skilað góðum afla. Tveir bátar frá Nesfiski, Sigurfari GK og Siggi Bjarna GK, fóru austur undir Skaftárósa og gengu veiðar þar mjög vel. Sigurfari GK landaði 43 tonnum í einni löndun í Þorlákshöfn og Siggi Bjarna GK var með 37 tonn, einnig í einni löndun þar í bæ.
Tveir aðrir bátar voru við dragnótaveiðar hér fyrir sunnan. Margrét GK landaði 11,2 tonnum í tveimur róðrum, með löndun í Grindavík, og Aðalbjörg RE kom með 19 tonn, einnig í tveimur róðrum, sem var landað í Sandgerði.
Strandveiðar í lágmarki vegna veðurs
Á Suðurnesjum hefur mjög lítið af afla verið landað það sem af er júní og brælan fyrstu vikuna vegur þar þungt. Það voru þó ekki allir strandveiðibátar sem sátu í höfn. Þann 2. júní fóru nokkrir bátar á sjó en einungis þrír náðu dagsskammtinum: Dímon GK: 783 kíló, Hrappur GK: 750 kíló og Arnar ÁR: 1.100 kíló
Þann 5. júní fóru aðeins fimm bátar á sjó og var veiðin að mestu lítil – fyrir utan tvo sem náðu ágætum afla. Dímon GK, sem Bjössi er skipstjóri á, var með 644 kíló eftir veiðar við Sandvík. Arnar ÁR, sem Össi Einars frá Stokkseyri stýrir, var með 854 kíló sem hann veiddi inni í Faxaflóa.
Veðrið var ekki upp á marga fiska þessa daga en báðir skipstjórarnir lýstu því sem „sómaveðri“ – og bátarnir eflaust sjálfir enda eru þeir sannir sómabátar.
Maímánuður gaf góðan afla
Þar sem maí er nú allur, liggja fyrir heildartölur úr strandveiðinni þann mánuð. Samtals lönduðu strandveiðibátar 4.259 tonnum um land allt. Þrjár hafnir voru með yfir 50 báta sem lönduðu afla í maí: Sandgerði: 65 bátar, Arnarstapi: 54 bátar og Bolungarvík: 54 bátar
Sandgerði stendur þannig upp úr sem langstærsta höfnin á strandveiðum í maímánuði.
Búist við betra veðri og meiri veiðum
Nú er von á betri tíð þegar ný vika hefst og veðurútlit mun betra. Því má búast við að fleiri strandveiðibátar haldi til sjós á næstu dögum og vonandi skili það sér í betri aflabrögðum og meira lífi í höfnum Suðurnesja.