Barnaskóli í Keflavík frá 1887 eða 1897?
Í Víkurfréttum 23. 2. 2022 segir frá 70 ára afmæli húss Myllubakkaskóla. Þar segir m.a.: „Saga Myllubakkaskólans eða Barnaskóla Keflavíkur nær til ársins 1897.“ Nokkrum blaðsíðum aftar í sama tölublaði er grein um elstu skóla landsins sem undirritaður skrifar í tilefni af 150 ára afmæli barnaskóla í Sveitarfélaginu Vogum. Þar segir að barnaskóli hafi verið stofnaður í Keflavík 1889, þá hýstur í Góðtemplarahúsinu, þar til byggt var barnaskólahúsið við Skólaveg 1911. Þessu ber ekki saman.
Ögmundur Sigurðsson kenndi við Gerðaskóla 1887–1896. Hann var vel menntaður kennari og frumkvöðull í menntamálum, stofnaði ásamt öðrum Timarit um uppeldi og menntamál árið 1888. Í 3. árgangangi, 1890, skrifar Ögmundur um skóla á Suðurnesjum og segir um Keflavík og skólamál þar, á bls. 87: „Næst fyrir utan Njarðvíkur kemur Keflavík; Þar er kaupstaður og allmikil byggð; Þar hefur suma vetur verið skóli, en stundum hefur hann lagzt niður, þrátt fyrir þótt þar sje all mannmargt og mjög hægt að sækja skóla.“
Á bls.95 segir: „Síðastliðinn vetur var haldinn barnaskóli í Keflavík í 6 mánuði. Á honum voru 23 börn; þau voru á ýmsu reki, svo að það varð að skipta þeim í 2 deildir, Kennslugreinir hinar vanalegu; þaraðauki höfðu þau þroskuðustu rjettritun, landafræði og fáein dönsku. Kennari við skólann var ungfrú Guðlaug Arasen, sem í nokkur ár hefur notið menntunar í Danmörku. Skólinn á enn ekkert búsnæði, en handa honum var leigt «Good-Templarshúsið» í Keflavík; það er í alla staði ágætt húsnæði, víst hið bezta, sem notað hefur verið til kennslu á Suðurnesjum. Borð og bekkir var ekki hentugt. Áhöld átti skólinn engin, en kennarinn átti eitthvað af landabrjefum og hnött, sem mátti styðjast við við kennsluna. Framfarir barnanna á þessum skóla voru eptir vonum í flestum greinum eptir jafnstuttan tíma.“ Umrætt hús Góðtemplarastúkunnar Vonar var byggt 1889 þar sem nú er Hafnargata 32.
Í sama tímariti er skýrsla um barnaskóla á Íslandi 1887–1888 og þar kemur fram að þann vetur hafi verið skóli í Keflavík með fjórtán börnum. Ekki er víst hvar þessi skóli var til húsa en í Sögu Keflavíkur er talið líklegt að það hafi verið í húsi Skotfélagsins sem byggt var 1872, sjá mynd, eða í greiðasölu- og íbúðarhúsi sem nefnt var Hótelið.
Ef marka má Sögu Keflavíkur hefur barnaskóli starfað samfleytt í Keflavík frá árinu 1889, og líklega lengur. Hvaðan höfundar áðurnefndrar greinar um 70 ára afmæli Myllubakkaskóla hafa ártalið 1897 er ekki ljóst. Líklega er það vegna þess að árið 1897 flytur skólinn í lítið og snoturt hús við Íshússtíg 3 (sjá mynd), þar sem voru tvær stofur en afar þröngt fyrir tugi barna. Þarna var barnaskólinn í Keflavík (og Njarðvík) til húsa allt þar til hann flytur í glæsilega steinsteypta nýbyggingu við Skólaveg árið 1911 og er þar allt þar til elsti hluti húss Myllubakkaskóla er tilbúið í febrúar 1952.
Ég mæli með köflum um skóla í Keflavík (og Njarðvík) í Sögu Keflavíkur sem til er á bókasafninu.
Þorvaldur Örn Árnason.