Aflafréttir: Bátar orðnir klárir fyrir veiðar á makríl
Komið er fram í miðjan júlí, allir stóru línubátarnir eru orðnir stopp núna og því eru einu línubátarnir sem eru að róa núna um þessar mundir 30 tonna bátarnir, eins og t.d Einhamarsbátarnir og minni bátar.
Aftur á móti þá fer að líða að því að fjör færist í Keflavík og jafnvel Sandgerði því að makrílveiðin fer að hefjast. Hún er reyndar hafin því að stóru uppsjávarskipin eru byrjuð á makrílveiðum og líka er frystitogarinn Hrafn Sveinbjarnarson GK byrjaður á makrílnum. Enn sem komið er er makríllinn reyndar nokkuð djúpt úti og hefur ekki náð landi, eða í það minnsta verið kominn það nálægt að krókabátarnir geta byrjað veiðar.
Nokkuð margir bátar eru orðnir klárir til veiða á makríl og í Keflavík voru fyrstu bátarnir sem komu þangað Rán GK og Andey GK. Andey GK var búinn að liggja í slippnum í Njarðvík í allan vetur en þessi bátur var aflahæstur allra krókabáta á makríl árið 2018. Þá var Bjössi skipstjóri á bátnum en hann lenti í slysi um haustið 2018 og þurfti þá að hætta með Andey GK.
Það sást vel hversu lunkinn fiskimaður Bjössi var því árið 2018 var Andey GK, eins og áður segir, aflahæsti makrílbáturinn á krókum en árið 2019 var Andey GK með neðstu bátunum sem veiddu makríl.
Netabátarnir hans Hólmgríms eru komnir á veiðar. Langanes GK og Maron GK. Báðir er að róa frá Sandgerði og hefur gengið nokkuð vel hjá þeim. Langanes GK kominn með 37 tonn í átta og mest 7,7 tonn og Maron GK 34 tonn í átta og mest níu tonn. Nú fer reyndar að líða að því að hinn stóri báturinn sem Hólmgrímur á, Grímsnes GK, verði klár til veiða en hann lenti í alvarlegri vélarbilun í febrúar 2020 og hefur ekkert róið síðan. Sunna Líf GK hefur landað 6,5 tonn í sex róðrum.
Hjá dragnótabátunum þá kom Sigurfari GK með fullfermi til Sandgerðis því landað var úr bátnum 56 tonnum. Siggi Bjarna GK er með 37 tonn í tveimur, Benni Sæm GK 35 tonn í tveimur og Aðalbjörg RE 31 tonn í fimm.
Annars má segja að flestallir séu í fríi og þar á meðal ég en þessi pistill er skrifaður frá Laugum í Þingeyjarsveit þar sem ég er búinn að vera í sumarbústað í heila viku ásamt konu, börnum og pabba, Reyni Sveinssyni. Eins og gefur að skilja þá er enginn tenging við sjávarútveginn á Suðurnesjum við þennan stað en hægt er að fara til Húsavíkur og þar finnst ansi mikil tenging við útgerð og sjósókn á Suðurnesjum, nánar um það síðar.