Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Mannlíf

„Mamma okkar er ofurhetja“
Þau komu m.a. að útkallinu þegar Bjarni Jón fór í hjartastopp. F.v.: Herbert Eyjólfsson, Jóhanna Soffía Hansen, Bjarni Jón Bárðarson, Gunnar Jón Ólafsson, Pétur Óli Pétursson og Viðar Ólafsson.
Fimmtudagur 14. febrúar 2019 kl. 06:00

„Mamma okkar er ofurhetja“

Heiðruð á 112-daginn fyrir lífgjöf

Jóhanna Soffía Hansen var heiðruð af Rauða krossinum á Suðurnesjum á 112-daginn sl. mánudag fyrir lífgjöf fyrir réttu ári síðan. Kunnátta í skyndihjálp kom sér vel þegar Bjarni Jón Bárðarson hneig niður í hjartastoppi á heimili sínu í febrúar í fyrra. Konan hans, Jóhanna Soffía Hansen, byrjaði þegar að hnoða hann á meðan hún hringdi í Neyðarlínuna eftir aðstoð.

Jóhanna starfar hjá HS Veitum en fyrirtækið heldur reglulega öryggisviku þar sem starfsmenn fara m.a. á skyndihjálparnámskeið. Jóhanna hefur því í gegnum starf sitt hjá fyrirtækinu farið á nokkur skyndihjálparnámskeið og reynslan þaðan nýttist henni svo sannarlega á ögurstundu.

Public deli
Public deli

Þau Jóhanna Soffía og Bjarni Jón voru boðuð til Rauða krossins í vikunni, þegar 112-dagurinn var haldinn hátíðlegur, og þar var Jóhanna heiðruð sérstaklega fyrir björgunarafrek sitt og vasklega framgöngu. Þau hjón voru einnig leyst út með gjafabréfi á skyndihjálparnámskeið, skyndihjálpartösku og blómum í tilefni dagsins.

Ásdís Birna Bjarnadóttir, dóttir Bjarna Jóns, skrifaði um hjartastoppið á fésbókina fyrir ári: „Í gær gerðist það hræðilega atvik að pabbi minn hneig niður heima hjá sér, í hjartastoppi. Enginn fyrirboði, ekki neitt. Mamma var sem betur fer heima, þrátt fyrir að hafa átt að vera lōngu farin útúr húsi, og brást hárrétt við. Hún sá að hann var ekki að anda og sýndi engin viðbrögð. Hún byrjaði þegar í stað að hnoða hann á meðan hún hringdi í neyðarlínuna. Örskammri stund seinna var húsið fullt af sjúkraflutningamönnum, lögregluþjónum og lækni sem tóku við af mömmu að halda pabba mínum á lífi,“ segir Ásdís Birna og bætir við: „Ég er svo þakklát fyrir að mamma skuli hafa þorað og getað brugðist hárrétt við án þess að hika. Ég er þakklát fyrir sjúkraflutningamennina sem voru komnir á 3 sjúkrabílum, eldsnöggt. Ég er þakklát fyrir lækninn sem var til taks á HSS og kom á staðinn. Ég er þakklát fyrir lögreglumennina sem komu og hugguðu okkur á meðan á þessu stóð. Ég er þakklát Lögreglunni í Reykjavík fyrir að loka gatnamótum til að koma honum sem fyrst á spítalann. Ég er þakklát læknum og hjúkrunarfræðingum á Hringbraut. En fyrst og fremst þá er ég svo þakklát fyrir að pabbi okkar er enn á meðal vor, og er það hetjunni móður okkar að þakka. Mamma okkar er ofurhetja,“ segir Ásdís Birna Bjarnadóttir en hún veitti Víkurfréttum góðfúslegt leyfi til að vitna í fésbókarfærslu sína.



Jóhanna Soffía Hansen og Bjarni Jón Bárðarson ásamt fulltrúum Rauða krossins á Suðurnesjum. F.v.: Herbert Eyjólfsson, Jóhanna Soffía, Bjarni Jón, Viðar Ólafsson og Hannes Friðriksson. VF-mynd: Hilmar Bragi