Vulva í Keflavík
Laugardaginn 31. október kl. 16 opnar Valgerður Guðlaugsdóttir sýningu á verkum sem unnin eru á þessu ári.
Valgerður vinnur verk sín út frá kvenímyndinni og veltir henni á ýmsa kanta á þessari sýningu. Myndir af Playboy fyrirsætum, tilfinningaskæruliðar og kona með einhyrningshorn koma fyrir ásamt því að fylgst er með ævintýrum prjónadúkkukonu. Valgerður er búsett í Höfnum.
Sýningin stendur frá 31. október til 6. desember og er opin fráklukkkan 14 til 17 um helgar eða eftir samkomulagi.