Vox Felix komið áfram í Kórar Íslands
Vox Felix, ungmennakór frá Suðurnesjum komst áfram í undanúrslit í þættinum Kórar Íslands á Stöð 2 síðastliðið sunnudagskvöld. Arnór Vilbergsson er stjórnandi kórsins en hann var stofnaður árið 2011 og fór almennilega að koma fram árið 2012.
Arnór segir að það sé mikill kraftur í kórnum og að eigin sögn heillar krafturinn. Hér má heyra og sjá flutning kórsins á „Ég lifi í draumi“ í þættinum Kórar Íslands.