Þriðjudagur 3. maí 2005 kl. 13:52
Vortónleikar með Víkingum

Söngsveitin Víkingar heldur tónleika í tilefni af 10 ára afmæli stórsveitarinnar. Tónleikarnir verða í Samkomuhúsinu Sandgerði 4. maí og í sal Listasafns Reykjanesbæjar Duushúsum 6. maí. Er athygli vakin á því að tónleikarnir hefjast kl. 20.30 en ekki 20.00 eins og kom fram á aðgöngumiðum.
Í efnisskránni er stiklað á stóru yfir tíu ára sögu sveitarinnar. Stjórnandi Víkinganna er Sigurður Sævarsson. Aðgangseyrir er 1000 krónur.
Mynd af söngsveitinni Víkingum.