Vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
Kvennakór Suðurnesja heldur sína árlegu vortónleika á næstunni. Efnisskrá er mjög fjölbreytt, en þar má nefna klassík gömlu meistaranna, íslensk og ungversk þjóðlög, létt dægurlög og gospel. Haldnir verða tvennir tónleikar að þessu sinni. Þeir fyrri verða á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 22. apríl kl.20.30 í Ytri-Njarðvíkurkirkju og þeir seinni þriðjudaginn 27. apríl kl.20.30 í Safnaðarheimili Sandgerðis. Stjórnandi er Krisztina Kalló Szklenárné, undirleikari á píanó er Geirþrúður Fanney Bogadóttir og á bassa Þórólfur Þórsson.
Kórinn hefur verið starfsamur í vetur og komið fram við ýmsa menningarviðburði. Kórinn hóf starfsárið á því að syngja á Ljósanótt. Haldnir voru tónleikar með Lögreglukór Reykjavíkur í Reykjanesbæ í haust og aðventutónleikar með Karlakór Keflavíkur. Kórinn kom einnig fram við afhendingu Menningarverðlauna Reykjanesbæjar. Í febrúar söng kórinn í Árbæjarkirkju á ljósahátíð Reykjavíkur ásamt fjórum öðrum kórum sem öllum er stjórnað af Krisztinu Kalló Szklenárné, stjórnanda kvennakórsins. Þann 12. maí nk. verða svo sameiginlegir tónleikar með Kvennakór Garðabæjar í Ytri-Njarðvíkurkirkju.
Kórinn undirbýr nú ferð til Ungverjalands í september, þar sem ráðgerðir eru tónleikar, m.a. ásamt ungverskum kvennakór, auk þess sem kórinn mun syngja við ýmis tækifæri þar í landi. Þess má geta að stjórnandi kórsins er frá Ungverjalandi.
Miðasala á vortónleikana verður við innganginn og er miðaverð kr.1500, en kr. 1000 fyrir eldri borgara. Frítt er fyrir börn 12 ára og yngri. Við hvetjum alla tónlistarunnendur til að láta þessa tónleika ekki fram hjá sér fara.