HSS
HSS

Mannlíf

Vortónleikar Karlakórs Keflavíkur
Sunnudagur 28. apríl 2013 kl. 13:00

Vortónleikar Karlakórs Keflavíkur

Hinir árlegu vortónleikar Karlakórs Keflavíkur fara fram í Ytri- Njarðvíkurkirkju mánudaginn 13. maí og miðvikudaginn 15. maí kl. 20:30. Að þessu sinni býður kórinn upp á fjölbreytta, blandaða dagskrá með hefðbundnum karlakórs- og tvísöngslögum, sjómannasöngvum og ýmsum slögurum.

Einsöngvarar með kórnum verða Steinn Erlingsson og Kristján Þ. Guðjónsson. Með kórnum syngur einnig kvartett skipaður kórfélögunum Þorvarði Guðmundssyni, Steini Erlingssyni, Kristjáni Þ. Guðjónssyni og Ingólfi Ólafssyni

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Stjórnandi Karlakórs Keflavíkur er Helga Bryndís Magnúsdóttir.