Vortónleikar í Keflavíkurkirkju og sænskir gestir
Kór Keflavíkurkirkju heldur árlega vortónleika sína í kirkjunni miðvikudaginn 13. maí.
Flutt verða létt og skemmtileg sönglög í tilefni sumarkomu. Gestir tónleikanna eru félagar í kórnum Pangea frá Svíþjóð og munu kórarnir bæði flytja eigið efni og syngja saman.
Stjórnandi er Arnór B. Vilbergsson.
Það er enginn aðgangseyrir á tónleikana og allir velkomnir.