HSS
HSS

Mannlíf

Vorhátíð í Vogum
Föstudagur 7. maí 2004 kl. 16:09

Vorhátíð í Vogum

Krakkarnir á leikskólanum Suðurvöllum í Vogum héldu í dag sína árlegu vorhátíð og var þar glatt á hjalla þegar ljósmyndara Víkurfrétta bar að garði.

Allir krakkarnir á leikskólanum mættu ásamt foreldrum sínum og gestum úr 1. bekk. Þar gátu krakkarnir farið í glæsilegan hoppukastala sem komið var upp fyrir hátíðina að ógleymdum sjálfum Brúðubílnum sem kom við og gerði mikla lukku.
Dagmar Eiríksdóttir, formaður foreldrafélagsins, sagði í samtali við Víkurfréttir að þetta væri annað árið í röð sem þessi hátíð væri haldin. „Þetta er mikill sprelldagur og allir eru rosa kátir! Við héldum þessa hátíð líka í fyrra og  krakkarnir eru búnir að bíða lengi eftir þessu.“

Krakkarnir máttu varla vera að því að tala við blaðamann þegar hann spurði þau frétta. Þeim fannst auðvitað rosalega gaman en hoppukastalinn var langskemmtilegastur.

VF-mynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson

Bílakjarninn
Bílakjarninn