Sunnudagur 21. apríl 2002 kl. 00:13
Vor í lofti í Reykjanesbæ
Það var sannkallað vor í lofti í Reykjanesbæ í gær. Óopinber hitamælir sýndi mest 12,5°C hita á götum bæjarins. Unga fólkið nýtti sér sparkvelli og körfuboltavelli til útiveru.Meðfylgandi myndir voru teknar við íþróttahúsið í Keflavík þar sem krakkar voru að leik um miðjan dag í gær.