Vonsviknir Bubba - aðdáendur
Vefmiðilinn dv.is greinir frá því að eigendur og gestir Primo í Reykjanesbæ hafi orðið afar óánægðir með framkomu Bubba Morthens á tónleikum á miðvikudagskvöldið. Ástæðan er sú að tónleikarnir þóttu heldur snubbóttir miðað við það sem hinir fyrrnefndu töldu sig eiga að fá fyrir peninginn.
Eigendur Primo stóðu í þeirri trú að tónleikarnir ættu að standa yfir í 60 – 90 mínútur og vísa í tölvupóst frá umboðsmanni Bubba þar að lútandi. „Við héldum að hann væri að taka pásu en svo var hann bara rokinn,“ hefur dv.is eftir eigendunum.
Bubbi vísar þessu á bug og segist hafa verið ráðinn til að spila í 45 mínútur. Hann hafi gert gott betur og spilað í klukkustund.
Aðdáendum fannst þeir illa sviknir, enda höfðu þeir greitt 2900 krónur fyrir inngöngumiðann. Fjölmargar þeirra kvörtuðu við eigendur staðarins og voru afar vonsviknir.
Haft er eftir eigendum Primo að þeir ætli ekki að sætta sig við þetta enda telji þeir sig í fullum rétti. „Við viljum bara fá endurgreiddan þennan mismun í tíma enda borguðum við rúmlega 300 þúsund krónur fyrir þetta. Við erum nýr og flottur staður og þetta kemur sér ekki vel fyrir okkur að farið sé svona með viðskiptavini okkar, “ hefur dv.is eftir eigendum Primo.