HSS
HSS

Mannlíf

Von á yfir 400 manns á skötumessu
Miðvikudagur 22. júlí 2015 kl. 08:30

Von á yfir 400 manns á skötumessu

Árleg skötumessa veður haldin í tíunda sinn i Gerðaskóla í Garði í kvöld. Von á er á yfir fjögurhundruð manns eins og undanfarin ár. „Þetta hefur vaxið mikið á undanförnum árum. Þetta er skemmtileg uppákoma á miðju sumri og allur ágóði fer til málefna tengd fötluðum,“ segir Ásmundur Friðriksson sem hefur ásamt mörgum ættingjum og vinum sínum staðið fyrir þessari óvanalegu sumarmessu.


Undanfarin ár hefur safnast um 1,1 til 1,5 milljón króna í hvert skipti. Ásmundur sem er formaður Þroskahjálpar á Suðurnesjum segir að það sé skemmtilegt að geta notað ágóðann til að fara í skemmtiferð með hóp fatlaðra á Suðurnesjum. Meðal annars hefur verið farið í hvalaskoðun á Alþingi, í bíó, keilu og farið á veitingastaði, svo fátt eitt sé nefnt.
Það eru margir sem leggja hönd á plóginn í Skötumessunni, m.a. gefur Fiskmarkaður Suðurnesja skötuna, Halldór Pétursson saltfiskinn og Skólamatur ehf. séð um eldamennsku og lagt til plokkfisk. Halldór Pétursson gefur saltfisk, Forsæti sér um kartöflur í mannskapinn og rófur koma frá Hrafnkeli Karlssyni. Þá gefur Kristjánsbakarí rúgbrauð.
Eftir matinn verður skemmtidagskrá þar sem einvalalið kemur fram. Kollegi Ásmundar, þingmaðurinn og fyrrverandi ráðherra Össur Skarphéðinsson er ræðumaður kvöldsins. Síðan er harmonikkuspil og fleira fjör.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Það er vinsamleg ábending frá aðstandendum kvöldsins að greitt sé inn á reikning Skötumessunnar; 0142-05-70506, kt. 580711-0650 (vinsamlegast prentið út innleggsnótuna og sýnið við innganginn) Þeir sem greiða í forsölu fá örugg sæti en samkvæmt venju er uppselt á Skötumessuna.

Salurinn í Gerðaskóla var gerður klár í vikunni fyrir allan fjöldann sem mætir.