Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Mannlíf

  • Vissi ekki að Ísland væri svona fallegt
    Inga fer mikið með fólk um Reykjanesið, sem hún segir falda perlu.
  • Vissi ekki að Ísland væri svona fallegt
    Gunnuhver er mun fallegri en Geysir að mati Ingu og marga gesta hennar.
Sunnudagur 19. júní 2016 kl. 10:33

Vissi ekki að Ísland væri svona fallegt

Ferðafélaginn Inga Ósk er í draumadjobbinu

Keflvíkingurinn Inga Ósk Ólafsdóttir hefur gengt sannkölluðu draumastarfi síðustu mánuði, þar sem hún ferðast vítt og breitt um Ísland með ferðamönnum og sýnir þeim hvað land og þjóð hafa upp á að bjóða. Inga er starfsmaður hjá söludeild Icelandair en hún hefur unnið meira og minna í Flugstöðinni frá árinu 1988.

Síðan í febrúar hefur ferðamönnum staðið til boða að ferðast með starfsfólki Icelandair um landið. Ferðafélaginn (stopover buddy) kynnir þannig land og þjóð fyrir ferðafólkinu og heimsækir áhugaverða staði. Upphaflega voru 12 starfsmenn Icelandair sem tóku þátt en vinsældirnar urðu það miklar að fljótlega voru um 30 starfsmenn sem sinntu verkefninu.

Public deli
Public deli

Ferðafólk frá öllum heimshornum fær „lókal“ upplifun á Reykjanesi

Inga hefur verið á ferðinni með túristum allt frá byrjun febrúar og farið í fjölda ferða víða um landið. Hún leggur talsvert upp úr því að sýna fólkinu Reykjanesið en flestir þekkja lítið sem ekkert til svæðisins að hennar sögn. „Megnið af þessu fólki sem ég hef ferðast með vissi ekkert um Reykjanesið. Það veit enginn hvað má sjá þar,“ segir Inga. Yfirleitt sækir Inga fólkið á Keflavíkurflugvöll og þaðan fer hún yfirleitt rakleiðis rúnt um Reykjanesið. „Þeim finnst Reykjanesið vera náttúruperla sem ekki margir vita af. Flestum finnst miklu meira til Gunnuhvers koma en Geysis. Ég hef farið margar ferðir þangað og þar er upplifunin allt öðruvísi. Ein mynd og málið er búið. Við Gunnuhver er meiri tími til þess að njóta og skoða sig um,“ segir ferðafélaginn Inga.

„Ég fer gjarnan til Grindavíkur og þaðan fer ég alltaf Suðurstrandarveginn. Þar er svo ofboðslega fallegt landslag og lítið af bílum. Margir þessir túristar segja við mig að þeir vilji sjá eitthvað öðruvísi og heimsækja jafnvel staði þar sem ekki eru margir ferðamenn og allt krökkt af rútum.“

Aðallega er Inga að ferðast með fólki sem hefur einn dag til umráða á Íslandi og vill sjá sem mest. Þá fer hún á áhugaverða staði sem heimafólk heimsækir jafnan. Stundum fer hún með blaðamenn í ferðir og þá er jafnan farið í tveggja til þriggja daga ferðir á áhugaverða staði. Hún hefur meðal annars farið í hellaskoðun, að Jökulsárlóni og upp á Langjökul í snjósleðaferð með fjölmiðlafólki.
Vilja upplifa hluti sem heimamenn kjósa

Inga segir að ferðamennirnir hafi ákaflega gaman af því að vera með heimafólki. Heyra þeirra sögur og upplifun á landinu og gera þá hluti sem heimamenn gera. Inga reynir að komast yfir sem mest á einum degi og jafnan finnst ferðamönnunum að það hafi verið hér í nokkra daga eftir annasaman dag með Ingu.

Býður fólki heim í mat

Inga tekur líka upp á því að bjóða fólki heim til sín í mat og hefur það mælst mjög vel fyrir hjá gestunum. Hún hefur eignast vini um allan heim. „Þeim finnst æðislegt að koma heim til mín og fá að borða ekta íslenskan mat,“ segir Inga sem hefur gaman af því að sýna fólki smæð landsins líka. „Þegar ég er að keyra með þau í Reykjavík þá sýni ég þeim meðal annars hvar Björk á heima eða Vigdís Finnboga. Þeim finnst það svaðalegt og merkilegt, en fyrir okkur er það lítið mál.“

Hvað hefur þú persónulega fengið út úr þessu?
„Mig langar bara að fara í leiðsögumanninn,“ segir Inga og hlær. „Ég bara vissi ekki að Ísland væri svona fallegt. Ég er að upplifa þetta með augum útlendingana og sú upplifun er allt öðruvísi. Við erum orðin svo vön þessu öllu að við sjáum þetta ekki orðið. Mér finnst frábært að geta kynnt landið og ég er rosalega stolt af Íslandi.“

Inga segir að þeir sem upplifa svona ferðir með heimafólki sjái mun meira en hinn almenni ferðamaður gerir í stuttu stoppi. Ferðamennirnir eru svo gjarnan æstir í að segja frá upplifun sinni og þannig breiðist hróður Íslands út skemmtilegan hátt.

Inga ásamt gestum sínum á ferðalagi um landið okkar fagra. Hér að neðan má sjá myndband þar sem Inga kynnir verkefnið um ferðafélagana.